Víkurfréttir - 17.12.2015, Page 73
73VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015
Reykjanes Geopark er þátt-takandi í alþjóðlegu verkefni
sem nefnist Drifting Apart. Verk-
efnið er styrkt af Norðurslóða-
áætlununinni 2014-2020 (Nort-
hern Periphery and Arctic 2014-
2020). Verkefnið stendur yfir á
árunum 2015-2018 og er ætlunin
að undirstrika og styrkja skilning
á sameiginlegri jarðfræðiarfleið
á norðurslóðum, og þær mörgu
tengingar sem jarðfræðiarfleiðin
hefur við náttúru og menningu.
Geoparkar skipta miklu máli í því
samhengi.
Verkefninu er m.a. ætlað að styðja
við geoparka sem eru að stíga sín
fyrstu skref, kynningu á nýjum
vörum og þjónustu sem ætlað er
að styrkja þá innan frá, m.a. með
námsefnisgerð sem og að styrkja
þá sem áfangastaði fyrir ferða-
menn. Þá verður byggt upp sterkt
samstarfsnet geoparka á norður-
slóðum. Að verkefninu standa
aðilar frá Norður Írlandi, Írlandi,
Skotlandi, Noregi, Íslandi, Kanada
og Rússlandi.
Í vikunni funduðu 14 fulltrúar
þeirra geoparka og stofnana sem
standa að verkefninu í Grinda-
vík. Skemmst er frá því að segja
að fundargestir voru í skýjunum
með móttökurnar á Reykjanesinu.
Þá lýstu þeir yfir mikilli ánægju
með aðstöðuna sem byggð hefur
verið upp í Grindavík sem þeim
þótti henta vel til fundahalda sem
þessara. Gestirnir gistu á Geo Hotel
en funduðu í Gjánni, nýrri fund-
araðstöðu í íþróttamiðstöðinni í
Grindavík. Þá nutu þeir veitinga frá
Salthúsinu og Hjá Höllu.
Fulltrúarnir ásamt fleiri starfs-
mönnum geoparkanna munu
sækja Reykjanesið aftur heim
snemma árs 2018 þegar hér
fer fram alþjóðleg ráðstefna um
árangur verkefnisins á vegum
Reykjanes Geopark.
Geoparkar á norðurslóðum
funduðu í Grindavík
-fréttir pósturu vf@vf.is
Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð og
farsæld á komandi ári!
Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!
Tannlæknastofa
Kristínar Geirmunds og
Kristínar Erlu Ólafsdóttur
Tannlæknastofan
Skólavegi 10
Tannlæknastofan
Tjarnargötu 2
Vökvatengi
421 4980
Radíonaust
Norðurtúni 2 - Reykjanesbær
sími 421 3787
Vetrardekk og heilsársdekk
fyrir allar tegundir bíla
10% afsláttur af öllum dekkjum
Njarðarbraut 11 í Reykjanesbæ
421 1251 - 861 2319
og frí umfelgun ef keypt eru 4 ný dekk
Gildir til 24. desember
Sendum íbúum allra sveitar-
félaga á Reykjanesi okkar
bestu jóla- og nýárskveðjur.
Samband sveitarfélaga á
Suðurnesjum.