Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.03.2017, Side 30

Læknablaðið - 01.03.2017, Side 30
138 LÆKNAblaðið 2017/103 ■ ■ ■ Þröstur Haraldsson U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Rakaskemmdir og mygla hafa á undan- förnum árum orðið eins konar táknmynd fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi. Niðurskurð- ur og sparnaður í rekstri hefur meðal annars valdið því að víða í húsakynn- um heilbrigðisstarfsfólks hefur eðlilegt viðhald verið vanrækt. Myndir og fréttir af raka- og mygluskemmdum á Landspít- alanum eiga eflaust stóran þátt í þeirri kröfu sem risið hefur að framlög til heil- brigðismála á fjárlögum verði stóraukin og það helst í gær. Og nú hefur málið komist á dagskrá Læknadaga þar sem umræða um raka og myglu og áhrif hennar á heilsufar fólks stóð yfir í heilan dag. Eins og frá var sagt í Læknablaðinu í des- ember var það hópur lækna sem tók frum- kvæðið að þessu málþingi en ástæða þess var ekki síst sú að læknar höfðu verið að veikjast vegna myglu og raka á vinnustöð- um sínum. Kristín Sigurðardóttir bráða- læknir er ein úr hópnum og hún sagði frá því að í hennar árgangi í læknadeild HÍ hefðu verið 30 manns en af þeim hafa sex læknar orðið fyrir heilsutjóni af völdum myglu og raka á undanförnum árum. Fjórir þeirra sögðu sögu sína í Hörpu og hér á eftir er gripið ofan í frásögn Gunn- laugs Sigurjónssonar heimilislæknis á Heilsugæslustöð Árbæjar. Mygla í Árbænum „Ég byrjaði að vinna á Heilsugæslunni í Árbæ í ársbyrjun 2003. Ég var fyrstu árin ekki með fasta stofu heldur flakkaði á milli stofa á stöðinni. Árið 2006 fékk ég fasta stofu í suðurhluta húsnæðisins, stofu sem bar merki um miklar og langvarandi rakaskemmdir. Dúkurinn í suðurhluta herbergisins var svartur og morkinn og allur í bungum. Ekki var óalgengt að eldra fólk hrasaði um bólurnar í dúknum. Ástæða þessa leka þarna inn var að utan við vegginn voru stórar svalir og allt vatn sem kom niður á þessar svalir átti greiða leið undir útvegginn sem var úr timbri og þaðan beint undir gólfdúkinn. Á þessum árum var ég talsvert að hlaupa og einnig duglegur að ganga á fjöll og stunda útivist. Á árunum 2006 og 2007 fór ég að finna að árangur af þjálfun lét á sér standa og ég náði engum framförum lengur. Það var svo í ársbyrjun 2008 að ákveðið var að lagfæra gólfdúkinn á stof- unni minni. Þegar gamli gólfdúkurinn var tekinn upp fylgdu með ofnalagnir sem voru illa ryðgaðar í gólfinu og silfur- skottur í þúsundatali hlupu út um allt. Vegna þessa heyktust menn á að taka dúk- inn upp á minni stofu og þess í stað var skorið í bólurnar, dúkurinn límdur niður og svo settur nýr dúkur yfir allt saman. Ekki var reynt að laga lekann að utan. Fljótlega eftir þetta hrundi heilsa mín, í stað þess að hlaupa 10-20 km náði ég að drattast þetta 2-3 km og var þá alveg bú- inn á því. Ég upplifði endurtekið tvísýni þegar ég var í símatímum og þurfti að horfa stöðugt á tölvuskjá í 30-40 mínútur í Trúir þú á myglusögur? – Rakaskemmdir og mygla herja jafnt á lækna sem leika og voru til umræðu á Læknadögum Hér eru forsvarskonur málþingsins, frá vinstri: María I. Gunnbjörnsdóttir, Unnur Steina Björnsdóttir, Kristín Sig- urðardóttir, Dóra Lúðvíksdóttir og Sigríður Ólína Haraldsdóttir.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.