Læknablaðið - 01.03.2017, Síða 35
LÆKNAblaðið 2017/103 143
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
í stað þess að fara í fangelsi. Fangarnir í
seinni könnuninni voru því flestir síbrota-
menn eða aðrir með dóma fyrir alvarlegri
brot, sagði Jón Friðrik.
En hvað rekur menn til þess að gera
falskar játningar? Fyrir því eru í raun fjöl-
breyttar ástæður. – Um það bil helmingur
er að hylma yfir með öðrum, taka á sig
sakir annarra, segir Jón Friðrik. – Það eru
ekki síst ungir afbrotamenn sem taka sak-
ir eldri félaga sinna á sig. Með því vinna
þeir sér traust í hópnum. Ég man eftir
einum sem hitti eldri félaga sem bað hann
að koma með sér í innbrot í fyrirtæki þar
sem hann vissi að voru tölvur. Sá ungi var
eitthvað vant við látinn svo sá eldri fór
einn. Morguninn eftir hringir hann í þann
yngri og segist hafa skilið eftir sig fótspor
í snjónum sem hægt væri að rekja til hans.
Hvort sá ungi væri ekki til í að fara niður á
stöð og taka á sig glæpinn? Jú, hann gerði
það og málið endaði fyrir dómara. Við
yfirheyrslur var ungi maðurinn spurður
hvað hann hefði gert við fenginn og hann
fór að skálda, sagði tölvuna hafa verið
svo þunga að hann hefði skilið hana eftir
einhvers staðar. – Jæja já, sagði dómarinn,
en þetta var bara lítil reiknivél. Þá fóru
viðstaddir að hlægja, unga manninum
var sleppt og ég held að málinu hafi verið
vísað frá.
Ekki sleppa þó allir svo vel því að sögn
Jóns Friðriks er um þriðjungi þeirra sem
gefa falskar játningar refsað fyrir brotin.
Óttinn við gæsluvarðhald
Þeir sem ekki eru að hylma yfir með öðr-
um skiptast í tvo hópa. – Annars vegar
eru þeir sem játa vegna þrýstings við
yfirheyrslur hjá lögreglu. Þá er ég ekki að
meina að þeir séu beittir ofbeldi heldur
eru þeir bornir sökum og eru það illa á sig
komnir að þeir játa hvað sem er.
Hins vegar eru þeir sem óttast að þeir
verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Það var
þó miklu algengara í fyrri rannsókninni
því á þeim tíma voru reglur um gæslu-
varðhald miklu meira á valdi lögreglu en
nú er. Þeir sem lentu í gæsluvarðhaldi eða
var hótað því vissu ekki hvort það stæði
í dagpart eða í lengri tíma og það fannst
þeim mjög ógnvekjandi. Lögreglan gat
hneppt menn í svonefnda síbrotagæslu og
þá gátu menn þurft að dúsa lengi í Síðu-
múlanum. Nú hefur þetta breyst, komið
skýrara regluverk í kringum gæsluvarð-
haldið. Það verður að bera úrskurð um
varðhald undir dómara, það er tímabund-
ið og reynt hefur verið að stytta varð-
haldið, segir Jón Friðrik.
Hann bætir því við að þeir hópar sem
helst rata í fréttir eða jafnvel bíómyndir
séu mjög fámennir hér á landi þó þeir eigi
sína fulltrúa hér. – Þar á ég við fólk sem
kemur ótilkvatt og tekur á sig sök í ein-
hverju máli sem hefur verið á síðum blað-
anna. Í þeim tilvikum er ástæðan yfirleitt
annað hvort geðtruflanir eða athyglisþörf.
Engar afsakanir
Hann vísar því á bug að í fangelsum séu
allir fangar saklausir að eigin sögn. – Þeir
eru yfirleitt ekki að afsaka sig neitt. Þeir
sem hafa gefið falskar játningar eiga það
langflestir sameiginlegt að hafa verið í fé-
lagsskap síbrotamanna frá ungum aldri.
Eins og hér hefur komið fram notar
Jón Friðrik oftar en ekki orðin „drengur“
eða „ungur maður“ um þá sem hann
rannsakaði. Hvað um konurnar? Jú, þær
komu við sögu en voru mjög fáar, 8% í
fyrri rannsókninni. Þær voru að einu leyti
frábrugðnar drengjunum því þær voru
oftar en ekki að hylma yfir og taka á sig
sök sambýlismanna, ekki síst ef þeir voru
á skilorði.
Jón Friðrik og samstarfsfólk hans hef-
ur gert fleiri rannsóknir þar sem meðal
annars er borinn saman bakgrunnur
þeirra sem segjast hafa gefið falskar játn-
ingar við lögregluyfirheyrslu og annarra
ungmenna sem ekki segjast hafa gert slíkt.
Hann vísar líka til erlendra rannsókna
þar sem reynt hefur verið að greina ein-
kenni á fyrrnefnda hópnum. Niðurstöður
fjölmargra rannsókna hafa sýnt að eftir-
farandi áhrifaþættir eru líklegir til þess að
ýta undir falskar játningar:
● Þeir eiga sér gjarnan sögu um langa af-
brota- eða andfélagslega hegðun.
● Þeir eru undanlátssamir og leiðitamir.
● Þeir glíma við geðræna erfiðleika
(kvíða og þunglyndi).
● Sjálfsmynd þeirra er léleg.
● Vímuefnaneysla er algeng.
● Geðraskanir og námserfiðleikar
eru algengir.
● Ofvirkni og athyglisbrestur.
Eins og á fleiri sviðum er þörf á frekari
rannsóknum á stöðu fanga og þeirra sem
gefa falskar játningar. Með aukinni þekk-
ingu er hægt að efla og bæta menntun
þeirra sem starfa í réttarkerfinu – lög-
reglumanna, saksóknara og dómara. Ef
til vill þarf að semja verklagsreglur um
yfirheyrslur fyrir lögreglu og dómstóla
um hvernig er tekið á einstaklingum sem
eiga við geðræn vandamál að stríða, eru
viðkvæmir fyrir streitu eða eiga sögu um
ofvirkni/athyglisbrest. Þá má nota niður-
stöður þessara rannsókna til að aðstoða þá
sem eru í áhættu að gefa falskar játningar.
Það hlýtur að teljast mikilvægt að
koma í veg fyrir að menn séu dæmdir á
grundvelli falskra játninga en þær eru að
sjálfsögðu afdrifaríkar fyrir viðkomandi
sakborninga og fjölskyldur þeirra og raun-
ar allt samfélagið. Þegar rangur maður er
dæmdur þýðir það að sá seki gengur laus.
Jón Friðrik Sigurðsson hefur, ásamt
samstarfsfólki sínu, rannsakað falskar
játningar í aldarfjórðung