Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2017, Blaðsíða 35

Læknablaðið - 01.03.2017, Blaðsíða 35
LÆKNAblaðið 2017/103 143 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R í stað þess að fara í fangelsi. Fangarnir í seinni könnuninni voru því flestir síbrota- menn eða aðrir með dóma fyrir alvarlegri brot, sagði Jón Friðrik. En hvað rekur menn til þess að gera falskar játningar? Fyrir því eru í raun fjöl- breyttar ástæður. – Um það bil helmingur er að hylma yfir með öðrum, taka á sig sakir annarra, segir Jón Friðrik. – Það eru ekki síst ungir afbrotamenn sem taka sak- ir eldri félaga sinna á sig. Með því vinna þeir sér traust í hópnum. Ég man eftir einum sem hitti eldri félaga sem bað hann að koma með sér í innbrot í fyrirtæki þar sem hann vissi að voru tölvur. Sá ungi var eitthvað vant við látinn svo sá eldri fór einn. Morguninn eftir hringir hann í þann yngri og segist hafa skilið eftir sig fótspor í snjónum sem hægt væri að rekja til hans. Hvort sá ungi væri ekki til í að fara niður á stöð og taka á sig glæpinn? Jú, hann gerði það og málið endaði fyrir dómara. Við yfirheyrslur var ungi maðurinn spurður hvað hann hefði gert við fenginn og hann fór að skálda, sagði tölvuna hafa verið svo þunga að hann hefði skilið hana eftir einhvers staðar. – Jæja já, sagði dómarinn, en þetta var bara lítil reiknivél. Þá fóru viðstaddir að hlægja, unga manninum var sleppt og ég held að málinu hafi verið vísað frá. Ekki sleppa þó allir svo vel því að sögn Jóns Friðriks er um þriðjungi þeirra sem gefa falskar játningar refsað fyrir brotin. Óttinn við gæsluvarðhald Þeir sem ekki eru að hylma yfir með öðr- um skiptast í tvo hópa. – Annars vegar eru þeir sem játa vegna þrýstings við yfirheyrslur hjá lögreglu. Þá er ég ekki að meina að þeir séu beittir ofbeldi heldur eru þeir bornir sökum og eru það illa á sig komnir að þeir játa hvað sem er. Hins vegar eru þeir sem óttast að þeir verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Það var þó miklu algengara í fyrri rannsókninni því á þeim tíma voru reglur um gæslu- varðhald miklu meira á valdi lögreglu en nú er. Þeir sem lentu í gæsluvarðhaldi eða var hótað því vissu ekki hvort það stæði í dagpart eða í lengri tíma og það fannst þeim mjög ógnvekjandi. Lögreglan gat hneppt menn í svonefnda síbrotagæslu og þá gátu menn þurft að dúsa lengi í Síðu- múlanum. Nú hefur þetta breyst, komið skýrara regluverk í kringum gæsluvarð- haldið. Það verður að bera úrskurð um varðhald undir dómara, það er tímabund- ið og reynt hefur verið að stytta varð- haldið, segir Jón Friðrik. Hann bætir því við að þeir hópar sem helst rata í fréttir eða jafnvel bíómyndir séu mjög fámennir hér á landi þó þeir eigi sína fulltrúa hér. – Þar á ég við fólk sem kemur ótilkvatt og tekur á sig sök í ein- hverju máli sem hefur verið á síðum blað- anna. Í þeim tilvikum er ástæðan yfirleitt annað hvort geðtruflanir eða athyglisþörf. Engar afsakanir Hann vísar því á bug að í fangelsum séu allir fangar saklausir að eigin sögn. – Þeir eru yfirleitt ekki að afsaka sig neitt. Þeir sem hafa gefið falskar játningar eiga það langflestir sameiginlegt að hafa verið í fé- lagsskap síbrotamanna frá ungum aldri. Eins og hér hefur komið fram notar Jón Friðrik oftar en ekki orðin „drengur“ eða „ungur maður“ um þá sem hann rannsakaði. Hvað um konurnar? Jú, þær komu við sögu en voru mjög fáar, 8% í fyrri rannsókninni. Þær voru að einu leyti frábrugðnar drengjunum því þær voru oftar en ekki að hylma yfir og taka á sig sök sambýlismanna, ekki síst ef þeir voru á skilorði. Jón Friðrik og samstarfsfólk hans hef- ur gert fleiri rannsóknir þar sem meðal annars er borinn saman bakgrunnur þeirra sem segjast hafa gefið falskar játn- ingar við lögregluyfirheyrslu og annarra ungmenna sem ekki segjast hafa gert slíkt. Hann vísar líka til erlendra rannsókna þar sem reynt hefur verið að greina ein- kenni á fyrrnefnda hópnum. Niðurstöður fjölmargra rannsókna hafa sýnt að eftir- farandi áhrifaþættir eru líklegir til þess að ýta undir falskar játningar: ● Þeir eiga sér gjarnan sögu um langa af- brota- eða andfélagslega hegðun. ● Þeir eru undanlátssamir og leiðitamir. ● Þeir glíma við geðræna erfiðleika (kvíða og þunglyndi). ● Sjálfsmynd þeirra er léleg. ● Vímuefnaneysla er algeng. ● Geðraskanir og námserfiðleikar eru algengir. ● Ofvirkni og athyglisbrestur. Eins og á fleiri sviðum er þörf á frekari rannsóknum á stöðu fanga og þeirra sem gefa falskar játningar. Með aukinni þekk- ingu er hægt að efla og bæta menntun þeirra sem starfa í réttarkerfinu – lög- reglumanna, saksóknara og dómara. Ef til vill þarf að semja verklagsreglur um yfirheyrslur fyrir lögreglu og dómstóla um hvernig er tekið á einstaklingum sem eiga við geðræn vandamál að stríða, eru viðkvæmir fyrir streitu eða eiga sögu um ofvirkni/athyglisbrest. Þá má nota niður- stöður þessara rannsókna til að aðstoða þá sem eru í áhættu að gefa falskar játningar. Það hlýtur að teljast mikilvægt að koma í veg fyrir að menn séu dæmdir á grundvelli falskra játninga en þær eru að sjálfsögðu afdrifaríkar fyrir viðkomandi sakborninga og fjölskyldur þeirra og raun- ar allt samfélagið. Þegar rangur maður er dæmdur þýðir það að sá seki gengur laus. Jón Friðrik Sigurðsson hefur, ásamt samstarfsfólki sínu, rannsakað falskar játningar í aldarfjórðung

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.