Læknablaðið - 01.03.2017, Side 36
■ ■ ■ Olga Björt Þórðardóttir
144 LÆKNAblaðið 2017/103
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Rósa hefur verið í fullu starfi hjá Íslenskri
erfðagreiningu í eitt ár og er aðallega að
vinna á hjarta- og æðasjúkdómadeildinni
þar. Stefnan er að Rósa skrái sig í dokt-
orsnám með þá vinnu sem hún er núna
í. „Vinnan snýst aðallega um erfðir gátta-
tifs, eins og efni greinarinnar minnar
sem ég fjallaði um á vísindaþinginu fyrr
í vetur. Svo er ég líka í verkefnum um
erfðir hjartagalla og hjartavöðvakvilla
en ég tengi mig við ýmis verkefni hérna.
Það er mjög skemmtlegt að vera læknir
hérna upp á að fá að taka þátt í alls kyns
spennandi hlutum,“ segir Rósa og bætir
við að mjög fjölbreyttar rannsóknir séu
stundaðar hjá Íslenskri erfðagreiningu og
að vinnustaðurinn sé afar skemmtilegur.
Forréttindi að starfa hér
Rósa viðurkennir að í sínu starfi þarna fá-
ist hún við aðra hluti en flestir unglæknar,
sem séu aðallega í klíník á sjúkrahúsum
eða heilbrigðisstofnunum. „Ég er bara í
rannsóknum og er mjög þakklát fyrir að
fá að vera hér. Hér starfar afar margt mjög
klárt fólk sem ég gert lært af og það eru
forréttindi að fá að vinna með öll þessi
bákn hérna sem Íslendingar hafa séð til
þess að eru eins góð og raun ber vitni.“
Situr við tölvu og pælir
Eins og áður segir stefnir Rósa á dokt-
orsnám og er á byrjunarstigi með að móta
það. Hún er þó ákveðin í að hluti af því
verði greinin hennar um erfðir gáttatifs.
„Hjarta- og æðasjúkdómar eru eitthvað
sem mér hefur alltaf fundist spennandi
vðfangsefni. Það var samt eitthvað sem
ég í raun álpaðist inn í.“ Eftir fjórða árið
í náminu byrjaði hún í rannsóknarvinnu
með Karli Andersen hjartalækni og
fleirum hjá Hjartavernd. „Það leiddi mig
svolítið inn á þessa braut að pæla í slíkum
sjúkdómum. En það sem ég vann mest
við í klíník var á geðdeild Landspítalans.
Það er einnig eitthvað sem mér hefur
alltaf þótt spennandi og hér hjá Íslenskri
erfðagreiningu eru meðal annars rann-
sóknir á geðsjúkdómum.“ Að sögn Rósu
hefur hún alltaf haft sérstakan áhuga á
rannsóknum síðan hún hóf nám og það
eigi vel við hana að starfa í því umhverfi
þar sem hún er núna, sitjandi við tölvu
og pælandi í hlutunum. „Ég efast um að
margir læknanemar á spítölum segi að
þeir sakni þess að sitja við tölvu og vinna
en það varð raunin með mig. Mig langar
líka að læra meiri tölfræði og aðferðafræði,
hef mikinn áhuga á því.“
Fjölskyldan stækkar í sumar
Fjölskylduaðstæður Rósu eru að hluta
til ástæðan fyrir því að hún starfar hjá
ÍE en ekki til dæmis á Landspítala. „Mér
finnst þetta henta betur fjölskyldulífi. Ég á
tveggja ára son og annað barn er á leiðinni
í sumar. Okkur manninum mínum hefur
fundist erfitt að vera bæði í fullri vinnu
á spítalanum á vöktum. Við ákváðum að
gera það ekki. Það er áskorun að samræma
vinnu og heimilislíf þegar maður er á
þessum aldri,“ segir Rósa, en eiginmaður
hennar, Júlíus Kristjánsson, lauk sama
námi og hún og starfar sem deildarlæknir
á barnadeildinni. „Hann er mjög ánægður
þar og stefnir í sérnám í barnalækningum.
Það blasir því við hjá okkur að flytja út og
við horfum til Svíþjóðar eins og margir
aðrir. Maður fær á tilfinninguna að það
gæti hentað fjölskyldulífi vel. Bróðir minn
og mágkona eru líka í sérnámi þar. Það
vill oft verða að heilu fjölskyldurnar velja
sama fag. Foreldrar mínir og tengdafor-
eldrar eru þó ekki læknar en við eigum
bæði systkini sem eru það,“ segir Rósa.
Dýrmæt og góð reynsla
Arnar Jan er deildarlæknir á lyflækninga-
sviði og er á fyrsta ári í því prógrammi.
Starfa við það sem
er hjartanu nær
Tveir unglæknar, Rósa B. Þórólfsdóttir og Arnar Jan Jónsson, voru meðal þeirra sem
verðlaunaðir voru fyrir framúrskarandi vísindaerindi á þingi Félags íslenskra lyflækna
sem fór fram í desember síðastliðnum. Erindi Rósu var valið besta erindi unglæknis á
þinginu, en það heitir „Mislestursstökkbreyting í PLEC-geni eykur áhættu á gáttatifi“.
Erindi Arnars nefndist „Algengi langvinns nýrnasjúkdóms áætlað út frá reiknuðum
gaukulsíunarhraða: Lýðgrunduð rannsókn“. Blaðamaður hitti unglæknana á fallegum
vorviðrisdegi á vinnustöðum þeirra; Rósu hjá Íslenskri erfðagreiningu og Arnar Jan á
Hjartagátt Landspítalans við Hringbraut.