Læknablaðið - 01.03.2017, Síða 37
LÆKNAblaðið 2017/103 145
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
„Nákvæmlega núna er ég að vinna sem
deildarlæknir á hjartagáttinni. Mér líkar
það mjög vel, sérstaklega að fást við krefj-
andi vandamál og skemmtilegt er að fást
við bráðatilfelli. Ég verð hér út febrúar,“
segir hann. Að því loknu mun Arnar Jan
fara í fæðingarorlof í mars og fram á haust.
Eðlilega mun föðurhlutverkið þá eiga hug
hans nánast allan, verandi með tvö ung
börn.
Mjög gott prógramm
Arnar Jan segir prógrammið á lyflækn-
ingasviði vera mjög gott og búið sé að
byggja það vel upp. „Það er mjög vel stutt
við þá deildarlækna sem eru í því. Bæði í
tengslum við klíníska vinnu, námstæki-
færi og rannsóknir.“ Dæmigerður vinnu-
dagur hjá deildarlæknum á hjartagátt hefj-
ist á morgunfundi á hjartadeildinni þar
sem farið er yfir sjúklinga sem lögðust inn
á deildina sólarhringinn á undan og síðan
yfir tilfelli næturinnar. Eftir morgunfund-
inn hefjist vinna á hjartagáttinni og þar
séu yfirleitt tveir til þrír deildarlæknar í
dagvinnu þegar mest er og sérfræðingur í
hjartalækningum að auki, en á nóttunni sé
einn deildarlæknir.
Kennsluglaðir sérfræðingar
„Þetta er bráðamóttaka svo álagið er
mismikið en yfirleitt er nóg að gera.
Vinnan felst aðallega í að taka á móti og
greina vandamál einstaklinga sem koma
á hjartagáttina ásamt því að taka á móti
fólki í hjartastoppi.“ Einnig framkvæmi
deildarlæknar áreynslupróf undir leiðsögn
sérfræðinga. „Vandamálin eru fjölbreytt og
skemmtileg að glíma við og fólk á öllum
aldri sem leitar hingað þótt flestir séu nú
yfir fimmtugt. Samvinna með hjúkrunar-
fræðingum og sjúkraliðum er töluverð,
sem gerir vinnuna skemmtilegri að mínu
mati. Þarna er einnig nóg af námstækifær-
um og sérfræðingarnir eru kennsluglaðir
og mjög reiðubúnir að fara yfir tilfellin.“
Einsleitar samræður við matarborðið
Meðfram starfinu á hjartagáttinni er
Arnar Jan í doktorsnámi og rannsóknin
sem hann kynnti á lyflækningaþinginu er
hluti af því. „Ég byrjaði í doktorsnáminu á
sjötta ári í læknisfræðinni og hef ákveðið
að taka það meðfram þessu prógrammi.
Ég mæli með því að gera það. Það er bæði
gaman að vera í klínískri vinnu og rann-
sóknum. Það gefur manni víðari sýn á
þetta allt saman, vel stutt við það eins og
ég nefndi áðan og þetta er mjög dýrmæt
og góð reynsla.“ Arnar Jan og eiginkona
hans, Gunnhildur Vala Hannesdóttir, búa
á Seltjarnarnesi og hún er einnig læknir.
„Það eru ekki mjög fjölbreyttar samræður
við matarborðið, get ég sagt þér,“ segir
Arnar Jan hlæjandi og bætir við að lokum:
„Frúin er deildarlæknir eins og ég og ætlar
í kvensjúkdómalækningar og fæðingar.“
Rósa er alsæl með vinnustaðinn sinn og það sem þar fer fram. Arnar Jan fyrir utan Hjartagáttina, þar sem hann er deildarlæknir.
Leiðrétting
Læknablaðið biðst velvirðingar á því að
hafa farið rangt með nafn þátttakanda
á málþingi á Læknadögum. Rétt nafn
hennar er Petra Lind.