Læknablaðið - 01.03.2017, Síða 40
148 LÆKNAblaðið 2017/103
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Ólafur Hergill
Oddsson
embættis-, heimilis- og
geðlæknir á Akureyri
olafurh.oddsson@gmail.com
„Strákar mínir, viljið þið ekki koma með
mér niður í Hlégarð, ég er að fara að skoða
ungversku flóttamennina sem komu
til landsins í gær“ sagði pabbi. Pabbi
hét Oddur Ólafsson og var yfirlæknir á
Reykjalundi og við Þengill bróðir fengum
að fara með honum í gula Chevrolettinum
niður í Hlégarð, félagsheimilið í Mosfells-
sveit. Það var jóladagur árið 1956, ég var
að verða 10 ára gamall og Þengill tveimur
árum eldri. Það var bjart veður, nýfallin
mjöll og fallegt um að litast í sveitinni
okkar. Á aðfangadag hafði dr. Gunnlaugur
Þórðarson, formaður framkvæmdaráðs
Rauða kross Íslands, komið með hópinn
í flugi frá Austurríki.2 Þegar við komum
í Hlégarð fór pabbi inn að skoða flótta-
mennina en við máttum ekki fara inn með
honum þar sem fólkið var í sóttkví. Við
fórum þá að leika okkur í snjónum, hnoða
snjóbolta og búa til snjókarla. Fólkið sem
var inni í stóra salnum fór að fylgjast með
okkur og veifa til okkar þar sem það stóð
við gluggana. Þetta var bráðmyndarlegt
og glaðlegt fólk, mest man ég eftir ungum
karlmönnum, líklega um tvítugsaldurinn.
Kvenfélagið í Mosfellssveit kom ríkulega
að móttöku flóttamannanna og eldaði all-
ar máltíðir í Hlégarði í tvær vikur, en sjálf
sóttkvíin stóð í eina viku. Einnig var safn-
að fötum og leikföngum handa fólkinu
og má rétt ímynda sér að fjölskyldurnar í
sveitinni hafa gefið það sem þær voru af-
lögufærar með. Á þessum tíma var fatnað-
ur mest heimasaumaður úr ull og bómull
og flestir áttu rétt nóg fyrir sig. Skreytt
jólatré beið fólksins í Hlégarði og fannst
því þetta vera yndislegar móttökur.
Flóttamennirnir voru 52 á aldrinum
3ja til 54 ára. Eins og áður sagði var farið
með fólkið í Hlégarð í Mosfellssveit þar
sem það var í hálfan mánuð. Eftir mánuð
var allt vinnufært fólk komið í vinnu
og næstum allir höfðu fengið samastað.
Flestir settust að á höfuðborgarsvæðinu
en sex fóru til Vestmannaeyja og tveir til
Akraness. Af þessum 52 flóttamönnum
sem hingað komu settust 25 einstaklingar
að hér á landi og fengu íslenskan ríkis-
borgararétt og 10 manns sneru aftur til
Ungverjalands en hinir fóru vítt og breitt
um heiminn.2
En af hverju flúði fólkið frá Ungverja-
landi? Jú, árið 1945 fór kommúnista-
flokkurinn í landinu að seilast til valda,
studdur af Sovétríkjunum. Árið 1949 hafði
kommúnistaflokknum tekist að sölsa
til sín öll völd. Í október árið 1956 reis
þjóðin upp gegn stjórnvöldum, sem voru
algerlega undir hælnum á Sovétmönnum.
Uppreisnin stóð frá 23. október til 10.
nóvember 1956. Hún var barin niður af
sovéska hernum. Yfir 2500 Ungverjar og
700 sovéskir hermenn féllu í átökunum og
200.000 Ungverjar flýðu til annarra landa.
Árið 1989 fengu Ungverjar frelsið að nýju
og 23. október varð opinber hátíðisdagur.3
Frá 1981-1983 var ég í Kanada vegna
náms í heimilislækningum. Ég man að
þá hitti ég einu sinni Ungverja sem hafði
flúið frá landi sínu árið 1956 og flust til
Kanada. Hann sagði að eitt það sárasta
við byltinguna hafi verið þegar Ungverjar
uppgötvuðu að vesturveldin mundu ekki
koma þeim til hjálpar.
Við komum heim frá Kanada árið 1983
og ég var bæði í heimilislækningum en þó
mest í embættisstarfi sem héraðslæknir
yfir Norðurlandi eystra. Vegna síðar-
nefnda starfsins var ég í miklu samstarfi
við bæði landlæknisembættið og heil-
brigðisráðuneytið. Í nóvember 1986 bað
Ólafur Ólafsson landlæknir mig um að
fara fyrir sig á fund um slysavarnir í Búda-
pest í Ungverjalandi. Ég sagði auðvitað, já
takk, enda höfðu slysavarnir verið hluti af
starfi mínu sem héraðslæknir. Fyrirvar-
inn var naumur, aðeins ein vika, og þess
vegna var ekki tími til að fá vegabréfsá-
ritun hjá ungverska sendiráðinu í Svíþjóð.
Ég ákvað samt að fara því að ég hafði
fengið þær upplýsingar að hægt væri að fá
þessa áritun á flugvellinum í Búdapest við
komu til landsins. Ég ákvað að fara í þessa
ferð en þegar ég sagði Páli Sigurðssyni
ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu
frá þessu hristi hann höfuðið áhyggjufull-
ur. Hann og Guðrún Jónsdóttir, eiginkona
hans, höfðu verið á ferð um Tékkóslóvakíu
stuttu áður og lent þar í tveggja klukku-
stunda yfirheyrslu á flugvellinum í sam-
bandi við vegabréf og leist honum ekkert á
þessa fyrirætlun mína.
Ég fór af stað fullur eftirvæntingar,
millilenti í Kaupmannahöfn og fór beint
með SAS-vél til Búdapest. Það var orðið
dimmt þegar við lentum í Búdapest og ég
fór nú að verða verulega áhyggjufullur
vegna vegabréfsáritunarinnar. Flugstöðin
var gömul og niðurnídd og vitin fylltust
af þessari Austur-Evrópulykt sem ég fann
í Júgóslavíu árið 1972 og í Eistlandi 1992.
Vopnaðir hermenn voru úti um allt og
titrandi sagðist ég ekki vera með neina
vegabréfsáritun og var þá vísað til konu
sem hafði með þau mál að gera. Hún leit
á vegabréfið og bað mig um mynd af mér.
Hjartslátturinn jókst ennþá meira og ég
hugsaði hvernig gat mér yfirsést þetta. Ég
sagðist ekki hafa mynd en það var nú ekki
vandamálið því það var ljósmyndasjálfsali
þarna á staðnum og þar með var málið
leyst.
Dvölin í Búdapest var mjög eftirminni-
leg. Þetta var í nóvember og loftmengunin
Uppreisnin í Ungverjalandi árið 1956
Erindi í Rótarýklúbbi
Akureyrar 23. nóvember
2016 með nokkrum
breytingum.