Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.03.2017, Qupperneq 40

Læknablaðið - 01.03.2017, Qupperneq 40
148 LÆKNAblaðið 2017/103 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Ólafur Hergill Oddsson embættis-, heimilis- og geðlæknir á Akureyri olafurh.oddsson@gmail.com „Strákar mínir, viljið þið ekki koma með mér niður í Hlégarð, ég er að fara að skoða ungversku flóttamennina sem komu til landsins í gær“ sagði pabbi. Pabbi hét Oddur Ólafsson og var yfirlæknir á Reykjalundi og við Þengill bróðir fengum að fara með honum í gula Chevrolettinum niður í Hlégarð, félagsheimilið í Mosfells- sveit. Það var jóladagur árið 1956, ég var að verða 10 ára gamall og Þengill tveimur árum eldri. Það var bjart veður, nýfallin mjöll og fallegt um að litast í sveitinni okkar. Á aðfangadag hafði dr. Gunnlaugur Þórðarson, formaður framkvæmdaráðs Rauða kross Íslands, komið með hópinn í flugi frá Austurríki.2 Þegar við komum í Hlégarð fór pabbi inn að skoða flótta- mennina en við máttum ekki fara inn með honum þar sem fólkið var í sóttkví. Við fórum þá að leika okkur í snjónum, hnoða snjóbolta og búa til snjókarla. Fólkið sem var inni í stóra salnum fór að fylgjast með okkur og veifa til okkar þar sem það stóð við gluggana. Þetta var bráðmyndarlegt og glaðlegt fólk, mest man ég eftir ungum karlmönnum, líklega um tvítugsaldurinn. Kvenfélagið í Mosfellssveit kom ríkulega að móttöku flóttamannanna og eldaði all- ar máltíðir í Hlégarði í tvær vikur, en sjálf sóttkvíin stóð í eina viku. Einnig var safn- að fötum og leikföngum handa fólkinu og má rétt ímynda sér að fjölskyldurnar í sveitinni hafa gefið það sem þær voru af- lögufærar með. Á þessum tíma var fatnað- ur mest heimasaumaður úr ull og bómull og flestir áttu rétt nóg fyrir sig. Skreytt jólatré beið fólksins í Hlégarði og fannst því þetta vera yndislegar móttökur. Flóttamennirnir voru 52 á aldrinum 3ja til 54 ára. Eins og áður sagði var farið með fólkið í Hlégarð í Mosfellssveit þar sem það var í hálfan mánuð. Eftir mánuð var allt vinnufært fólk komið í vinnu og næstum allir höfðu fengið samastað. Flestir settust að á höfuðborgarsvæðinu en sex fóru til Vestmannaeyja og tveir til Akraness. Af þessum 52 flóttamönnum sem hingað komu settust 25 einstaklingar að hér á landi og fengu íslenskan ríkis- borgararétt og 10 manns sneru aftur til Ungverjalands en hinir fóru vítt og breitt um heiminn.2 En af hverju flúði fólkið frá Ungverja- landi? Jú, árið 1945 fór kommúnista- flokkurinn í landinu að seilast til valda, studdur af Sovétríkjunum. Árið 1949 hafði kommúnistaflokknum tekist að sölsa til sín öll völd. Í október árið 1956 reis þjóðin upp gegn stjórnvöldum, sem voru algerlega undir hælnum á Sovétmönnum. Uppreisnin stóð frá 23. október til 10. nóvember 1956. Hún var barin niður af sovéska hernum. Yfir 2500 Ungverjar og 700 sovéskir hermenn féllu í átökunum og 200.000 Ungverjar flýðu til annarra landa. Árið 1989 fengu Ungverjar frelsið að nýju og 23. október varð opinber hátíðisdagur.3 Frá 1981-1983 var ég í Kanada vegna náms í heimilislækningum. Ég man að þá hitti ég einu sinni Ungverja sem hafði flúið frá landi sínu árið 1956 og flust til Kanada. Hann sagði að eitt það sárasta við byltinguna hafi verið þegar Ungverjar uppgötvuðu að vesturveldin mundu ekki koma þeim til hjálpar. Við komum heim frá Kanada árið 1983 og ég var bæði í heimilislækningum en þó mest í embættisstarfi sem héraðslæknir yfir Norðurlandi eystra. Vegna síðar- nefnda starfsins var ég í miklu samstarfi við bæði landlæknisembættið og heil- brigðisráðuneytið. Í nóvember 1986 bað Ólafur Ólafsson landlæknir mig um að fara fyrir sig á fund um slysavarnir í Búda- pest í Ungverjalandi. Ég sagði auðvitað, já takk, enda höfðu slysavarnir verið hluti af starfi mínu sem héraðslæknir. Fyrirvar- inn var naumur, aðeins ein vika, og þess vegna var ekki tími til að fá vegabréfsá- ritun hjá ungverska sendiráðinu í Svíþjóð. Ég ákvað samt að fara því að ég hafði fengið þær upplýsingar að hægt væri að fá þessa áritun á flugvellinum í Búdapest við komu til landsins. Ég ákvað að fara í þessa ferð en þegar ég sagði Páli Sigurðssyni ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu frá þessu hristi hann höfuðið áhyggjufull- ur. Hann og Guðrún Jónsdóttir, eiginkona hans, höfðu verið á ferð um Tékkóslóvakíu stuttu áður og lent þar í tveggja klukku- stunda yfirheyrslu á flugvellinum í sam- bandi við vegabréf og leist honum ekkert á þessa fyrirætlun mína. Ég fór af stað fullur eftirvæntingar, millilenti í Kaupmannahöfn og fór beint með SAS-vél til Búdapest. Það var orðið dimmt þegar við lentum í Búdapest og ég fór nú að verða verulega áhyggjufullur vegna vegabréfsáritunarinnar. Flugstöðin var gömul og niðurnídd og vitin fylltust af þessari Austur-Evrópulykt sem ég fann í Júgóslavíu árið 1972 og í Eistlandi 1992. Vopnaðir hermenn voru úti um allt og titrandi sagðist ég ekki vera með neina vegabréfsáritun og var þá vísað til konu sem hafði með þau mál að gera. Hún leit á vegabréfið og bað mig um mynd af mér. Hjartslátturinn jókst ennþá meira og ég hugsaði hvernig gat mér yfirsést þetta. Ég sagðist ekki hafa mynd en það var nú ekki vandamálið því það var ljósmyndasjálfsali þarna á staðnum og þar með var málið leyst. Dvölin í Búdapest var mjög eftirminni- leg. Þetta var í nóvember og loftmengunin Uppreisnin í Ungverjalandi árið 1956 Erindi í Rótarýklúbbi Akureyrar 23. nóvember 2016 með nokkrum breytingum.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.