Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.03.2017, Side 45

Læknablaðið - 01.03.2017, Side 45
LÆKNAblaðið 2017/103 153 Ö L D U N G A D E I L D kvennafræði í 1 tíma; í innvortis sjúkdómafræði og almennri heilbrigðisfræði í hverju um sig í 1 1/2 tíma, og loksins var hann í 1 tíma látinn yfir- heyra sjúkling, skýra frá sjúkdómi hans og segja hvern veg hann skyldi meðhöndla. Hið munnlega próf fram fór á alþíngissalnum í heyranda hljóði, og í viðrvist prófdómendanna, en að afloknu prófi komu prófdómendrnir saman og ákváðu einkunnirnar í hverri lærdómsgrein út af fyrir sig, því öll spursmálin og andsvör kandídatsins höfðu samstundis verið uppskrifuð í sérskilinn „Examens-protocol“ löggiltan af stiptamtmannin- um. Einkunnirnar féllu þannig, fyrir öll skriflegu spursmálin fékk kandídatinn einkunnina dável eða laudabilis; í grasafræði og yfirsetukvenna- fræði ágætlega (prae ceteris) í efnafræði, chirur- gie og heilbrigðisfræði dável; en í meðalafræði og sjúkrayfirheyrslu vel til dável. Þannig fékk kandídatinn 1. aðaleinkunn eða laudabilis með 87. tröppum. Eptir afstaðið embættispróf, var kandídatinn í votta viðurvist látinn vinna hið lögboðna heiti um það, að hann af alefli skyldi jafnan verja kunnáttu sinni meðbræðrum sínum til hjálpar, og framvegis láta sér vera ant um, að auka þekkingu sína í öllum greinum læknisfræðinnar samkvæmt framförum vísinda þeirra, er hún er á bygð. Jón Hjaltalín, Dr. Í lok frásagnar sinnar hrósar Jón Þorvaldi mjög og segir hann hafa stundað námið með hinni mestu iðni, hafa opnað 12 lík undir forsjá sinni og æft sig vel að þekkja sjúkleika með hlustpípunni (stethoscopie). Hann væri vel að sér í sullaveikinni og grasafræðinni og hefði séð fjölda sjúklinga í landfarsóttum. Strax að loknu prófi varð Þorvaldur Jónsson héraðslæknir í Norður- héraði vesturamtsins (Barðastrandarsýslu, Ísafjarðarsýslum og Strandasýslu) og sat á Ísafirði. Ekki er vitað annað en hann hafi verið farsæll í störfum sínum í þessu víð- lenda og erfiða héraði. Jón Hjaltalín var merkur maður. Hann hafði menntað sig vel og stundað fjölbreytt læknisstörf erlendis þegar hann varð land- læknir árið 1855. Hann hélt uppi lækna- kennslu 1860-1876. Var skipaður fyrsti forstöðumaður Læknaskólans við stofnun hans 1876. Alþingismaður. Ritaði heilmik- ið um læknisfræðileg efni og heilbrigðis- mál. Hann var heiðraður á margan hátt. Þegar Þorvaldur var prófaður voru íbúar Reykjavíkur aðeins um 1500 talsins þannig að telja má að þetta hafi vakið nokkra athygli í bæjarlífinu. Þjóðólfur var um tíma eina blaðið sem gefið var út á Íslandi en það kom út á árunum 1848-1912. Kom fyrst út hálfsmánaðarlega en síðar vikulega. Þess má geta að örfáir læknar voru starfandi hverju sinni á landinu fram um 1870. Þannig voru einungis 6 lækn- ar hér árið 1800, 40 árum eftir stofnun landlæknisembættisins 1760. Árið 1850 voru hér 8 læknisumdæmi. Hlutskipti hinna fyrri lækna var bágborið: Umkomu- leysi, takmörkuð þekking miðað við það sem síðar varð, ekkert sjúkrahús, engir möguleikar á nákvæmri sjúkdómsgrein- ingu, engin lyf með markvissa verkun, fátækt, léleg og köld húsakynni. Læknis- umdæmi voru víðáttumikil, allar ár óbrúaðar, engir vegir. Þessara lækna ætti að minnast með um- burðarlyndi og virðingu. DAGSKRÁ 13:00 Setning. Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra setur þingið. 13:10 Skattlagning í þágu bættrar lýðheilsu. Ángel López, prófessor í hagfræði við Technical University of Cartagena (UPCT) á Spáni, fjallar um hvernig við getum notað skattlagningu til að bæta heilsu þjóðarinnar. 13:50 Rafsígarettur – undur eða ógn? Charlotte Pisinger, vísindamaður við Research Centre for Prevention and Health í Kaupmannahöfn, fjallar um hvort rafsígarettur leiði til byltingar í samfélaginu og hvort ógn stafi af þeim. 14:40 Fundarhlé. Veitingar í boði fyrir gesti. 15:00 Kostnaður þjóðfélagsins af reykingum. Jónas Atli Gunnarsson kynnir fyrstu niðurstöður úr könnun Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. 15:20 Pallborðsumræður. Guðmundur Þorgeirsson stjórnar umræðum. Ángel López, Charlotte Pisinger, Jónas Atli Gunnarsson og Birgir Jakobsson landlæknir svara spurningum úr sal. 16:00 Dagskrárlok. Fundarstjóri er Guðmundur Þorgeirsson, prófessor, sérfræðingur í hjartalækningum. Þingið fer að mestu fram á ensku. Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis. Tilkynna þarf þátttöku með því að senda póst á krabb@krabb.is í síðasta lagi 13. mars. HÆTTU NÚ ALVEG! Málþing um tóbaksvarnir 14. mars, kl. 13–16 í Kaldalóni, Hörpu

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.