Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.03.2017, Qupperneq 47

Læknablaðið - 01.03.2017, Qupperneq 47
LÆKNAblaðið 2017/103 155 Yfirlæknir kvennadeildar Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, Akranesi Laus er til umsóknar staða yfirlæknis kvennadeildar Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi. Sérfræðiréttindi í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp er áskilin svo og staðgóð reynsla af stjórnunarstörfum. Þátttaka í bakvöktum er hluti af starfi yfirlæknis. Staðan er laus frá 1. maí næstkomandi eða eftir nánara samkomulagi. Á kvennadeild Heilbrigðisstofnunarinnar á Akranesi eru framkvæmdar allar helstu aðgerðir á sviði kvensjúkdóma. Um 300 konur fæða árlega börn sín á deildinni. Lögð er áhersla á aukið og formlegt samstarf við Landspítala. Umsóknarfrestur er til 15. mars 2017. Upplýsingar gefa: Konráð Lúðvíksson yfirlæknir, s. 4321000, netfang konrad.ludviksson@hve.is og Þórir Bergmundsson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 4321000, netfang thorir.bergmundsson@hve.is Umsókn skal senda Þóri Bergmundssyni framkvæmdastjóra lækninga á eyðublaði sem aðgengilegt er á vef Embætti landlæknis. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Öllum umsóknum ver ður svarað. Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi er ein af 8 starfsstöðvum stofnunarinnar á Vestur- og Norðvesturlandi og skiptist í sjúkrasvið og heilsugæslusvið. Á sjúkrasviði er starfrækt fjölgreinasjúkrahús með vaktþjónustu allan sólarhringinn árið um kring. Sjúkrahúsið veitir almenna og á vissum sviðum sérhæfða sjúkrahúsþjónustu á lyflækningadeild, handlækninga- deild, kvennadeild, öldrunarlækningadeild og á vel búnum stoðdeildum þar sem höfuðáhersla er lögð á þjónustu við íbúa Vestur- og Norðvesturlands. Á heilsugæslusviði er veitt almenn heilsugæsluþjónusta fyrir íbúa í heilsugæsluumdæmi Akraness með forystuhlutverk varðandi almenna heilsuvernd og forvarnarstarf. HVE tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla Íslands og aðrar menntastofnanir. Starfsmenn stofnunarinnar á Akranesi eru um 240 talsins. Sjá nánar heimasíðu www.hve.is SÉRFRÆÐILÆKNIR Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis við Sjúkrahúsið Vog. Starfshlutfall er 100% en hlutastarf kemur til greina. Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Helstu verkefni og ábyrgð Þátttaka í daglegri læknisþjónustu á Sjúkrahúsinu Vogi og öðrum starfsstöðvum SÁÁ. Þetta felur m.a. í sér vaktskyldu, samskipti og þjónustu við sjúklinga, kennslu og þverfaglega samvinnu. Hæfniskröfur Fullgild sérfræðiréttindi. Góð færni í mannlegum samskiptum og skipulögð vinnubrögð. Umsóknarfrestur til 20. mars 2017. Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Umsóknum skal skilað á Sjúkrahúsið Vog, Stórhöfða 45, 110 Reykjavík, eða í tölvupósti á saa@saa.is Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Tyrfingsson, forstjóri, s. 824 7600, netfang: thorarinn@saa.is

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.