Fréttablaðið - 13.01.2018, Síða 52
Skrifstofustarf
Óbyggðanefnd auglýsir laust til umsóknar starf skrifstofumanns á
skrifstofu nefndarinnar. Um er að ræða 50% starf.
Óbyggðanefnd er úrskurðarnefnd á stjórnsýslustigi, skipuð af
forsætisráðherra, og hefur það hlutverk að skera úr um eignar-
réttarlega stöðu lands á grundvelli þjóðlendulaga nr. 58/1998. Á
vegum nefndarinnar fer fram viðamikil gagnaöflun vegna þeirra
mála sem eru til meðferðar hverju sinni.
Starfið felst einkum í:
• Umsjón með ýmsum þáttum er varða öflun gagna, skráningu
þeirra, fjölföldun og vistun.
• Umsjón með útgáfu kynningarefnis vegna krafna málsaðila
og útgáfu ársskýrslna.
• Umsjón með vefsíðu nefndarinnar.
• Bókhaldsmerkingu og annarri afgreiðslu reikninga.
• Undirbúningi, öflun aðfanga og frágangi vegna funda nefndar-
innar, sem og vettvangsferða um ágreiningssvæði.
• Samskiptum við ýmsa aðila sem tengjast störfum nefndarinnar.
• Ýmsum öðrum verkefnum á sviði skrifstofuhalds.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
• Sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð.
• Mjög gott vald á rituðu máli.
• Mjög góð samstarfs- og samskiptahæfni.
• Æskilegt er að viðkomandi búi yfir reynslu eða sérhæfingu
á sviði skrifstofuhalds.
• Góð tölvukunnátta og reynsla af notkun rafrænnar málaskrár
er æskileg.
Um launakjör fer eftir kjarasamningi SFR og ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu
sendar óbyggðanefnd, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík, eða á
netfangið: postur@obyggdanefnd.is.
Umsóknarfrestur er til 29. janúar 2018. Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu
þessarar auglýsingar. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Magnússon
framkvæmdastjóri í síma 563 7000.
Fellaskóli auglýsir laust til
umsóknar tímabundið 100% starf
grunnskólakennara
Fellaskóli er heildstæður grunnskóli í Reykjavík þar sem
meira en helmingur nemenda hefur annað móðurmál en
íslensku. Nemendur skólans eru um 350 og starfsmenn um
70. Í Fellaskóla er litið svo á að menningarlegur fjölbreytileiki
auðgi skólastarf og lögð er áhersla á að virðing sé borin fyrir
uppruna og menningu einstaklinga.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur
og foreldra
• Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og
samstarfsfólki
• Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra
og annað fagfólk
• Að vinna í teymi með öðru starfsfólki
Hæfniskröfur
• Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari
• Áhugi á að starfa með börnum
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Faglegur metnaður
• Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
• Íslenskukunnátta
Starfið er laust nú þegar.
Umsóknarfrestur er til 24. janúar 2018.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Sigurlaug Hrund Svavarsdóttir, skólastjóri, í síma 411 7530
eða með því að senda fyrirspurn á netfangið
sigurlaug.hrund.svavarsdottir@rvkskolar.is
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut
kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er.
Háskóli Íslands leitar að öflugum stjórnanda og leiðtoga fyrir Menntavísindasvið
sem er eitt af fimm fræðasviðum skólans.
Frá 1. júlí 2018 skiptist Menntavísindasvið í fjórar deildir. Á sviðinu starfa um 150 starfsmenn og nemendur eru um 2000
talsins. Forseti Menntavísindasviðs starfar í umboði rektors. Hann er æðsti yfirmaður og akademískur leiðtogi fræða-
sviðsins og stjórnar daglegri starfsemi þess. Með forseta fræðasviðs starfar öflugt teymi stjórnenda og sérfræðinga.
Ráðið verður í starfið til fimm ára en í samræmi við reglur nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands er mögulegt að framlengja
ráðningartímann um allt að fimm ár til viðbótar. Forseti fræðasviðs er ráðinn af rektor að fenginni umsögn sérstakrar
nefndar um ráðninguna. Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum
fræðasviðsins. Áætlað er að ráðið verði í starfið frá 1. júlí 2018.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2018.
Umsóknir skulu berast í rafrænu formi á starfsumsóknir@hi.is merkt HI17110170. Umsóknargögn sem ekki eru send
í rafrænu formi skulu berast til starfsmannasviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 6, 101 Reykjavík. Öllum umsækj-
endum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Með umsókn þarf að fylgja greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda og hvernig hann hyggst vinna samkvæmt
stefnu Háskóla Íslands 2016–2021.
Upplýsingar um umsóknargögn, starfið og ráðningarferlið eru á slóðinni: hi.is/haskolinn/forseti_menntavisindasvids.
Frekari upplýsingar um starfið veita Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor kennslu og þróunar, netfang steinuge@hi.is,
sími 5254047 og Ásta Möller, sviðsstjóri starfsmannasviðs, netfang astam@hi.is, sími 5254355.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands er alþjóðlegur rannsóknaháskóli og stærsta kennslu-, rannsókna- og
vísindastofnun landsins. Um 1.500 starfsmenn eru í föstum störfum við skólann
og um 2.200 lausráðnir. Nemendur við skólann eru um 12.500. Háskóli Íslands starfar
á fimm fræðasviðum, býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins
sem býður grunnnám og framhaldsnám í öllum helstu fræðigreinum.
Forseti fræðasviðs ber m.a. ábyrgð á:
• Öflugri liðsheild og faglegu samstarfi innan sviðsins
• Fjármálum og rekstri fræðasviðs og stofnana
sem undir það heyra
• Útfærslu og framkvæmd stefnu Háskóla Íslands
á vettvangi fræðasviðs
• Gæðum kennslu, rannsókna og þjónustu
• Stjórnsýslu og stoðþjónustu fræðasviðsins
• Tengslum við innlenda og erlenda samstarfsaðila
• Mannauðsmálum
• Húsnæðismálum fræðasviðsins, að höfðu
samráði við rektor
Umsækjendur skulu hafa:
• Akademískt hæfi sem og þekkingu og reynslu
af háskóla- og/eða rannsóknastarfi
• Leiðtogahæfileika og frumkvæði í starfi
• Metnaðarfulla og skýra framtíðarsýn fyrir
fræðasviðið
• Afbragðs samstarfshæfni og lipurð
í mannlegum samskiptum
• Reynslu af stjórnun og stefnumótun
• Góð tök á íslensku og ensku í töluðu
og rituðu máli
FORSETI MENNTAVÍSINDASVIÐS
Pi
pa
r\
TB
W
A
\
SÍ
A
Sölufulltrúi
Würth á Íslandi óskar eftir að ráða drífandi og metnaðarfullan sölufulltrúa til starfa
í Reykjavík.Würth samanstendur af rúmlega 400 fyrirtækjum í 84 löndum.Þar starfa
yfir 74.000 manns. Þjónusta okkar byggist á heimsóknum til viðskiptavina sem eru
skipulagðar á viku til mánaðar fresti. Í hverri heimsókn einbeitum við okkur að
heildarlausn fyrir hvern viðskiptavinahóp auk þess að fara yfir helstu söluvörur.
Við vinnum undir merkjum “fagfólk velur Würth”
Starfssvið:
Heimsóknir til viðskiptavina
Sala á rekstrarvörum og verkfærum til viðskiptavina
Frágangur pantana
Við bjóðum:
Árangurstengd laun
Bifreið til afnota,farsíma og
tölvutengingu heima.
Góðan starfsanda
Fjölskylduvænt fyrirtæki
Menntun og hæfniskröfur:
Iðnmenntun kostur
Þekking á vörum Würth kostur
Reynsla af sölustörfum er skilyrði
Vilji og metnaður til að ná árangri
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Hvetjum konur sem karla til að sækja um starfið
Umsjón með starfsumsóknum hefur Róbert H. Hnífsdal Halldórsson sölu og markaðsstjóri,
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að senda umsóknir í tölvupósti á
robert@wurth.is með ferilskrá og mynd - Umsóknarfrestur er til 19.janúar 2018.
1
3
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
B
C
-6
8
6
0
1
E
B
C
-6
7
2
4
1
E
B
C
-6
5
E
8
1
E
B
C
-6
4
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
0
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K