Fréttablaðið - 13.01.2018, Blaðsíða 104
VELFERÐARSVIÐ
REYKJAVÍKURBORGAR
Ert þú háskólanemi sem vantar íbúð og vilt vinna við
að auka vellíðan og lífsánægju aldraðra?
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar vill bjóða þér að taka þátt í tilraunaverkefni sem snýst um
að leigja íbúð í þjónustukjarna fyrir aldraða, sem staðsettur er miðsvæðis í Reykjavík.
Íbúðinni fylgir starf sem gengur út á að stuðla að vellíðan og lífsánægju íbúa. Þú getur t.d:
Kennt íbúum að nota samfélagsmiðla.
Haldið námskeið út frá þínu áhugasviði, svo sem á sviði fræða, menningar, hreyfingar
og listsköpunar.
Veitt íbúum einstaklingsmiðaðan félagslegan stuðning.
Tilraunaverkefnið er að erlendri fyrirmynd og hefur reynst vel t.d. í Hollandi. Leiga verður á
svipuðum kjörum og hjá Félagsstofnun stúdenta. Miðað er við að verkefnið standi yfir frá
1. febrúar 2018 til 1. júlí 2019.
Umsóknir skal senda á Þórhildi Egilsdóttur með tölvupósti thorhildur.egilsdottir@reykjavik.is,
en hún veitir einnig nánari upplýsingar um verkefnið með tölvupósti eða í síma 411 9042.
Í umsókninni skal koma fram; nafn, kennitala, heimilisfang, háskóli, nám, áætluð námslok,
starfsreynsla, áhugasvið, ástæða umsóknar og hugmyndir um hvers konar félagslegri virkni þú
gætir staðið fyrir í þjónustuíbúðakjarnanum.
Umsóknarfrestur er til 27.01.2018
Upplýsingar um þjónustuíbúðir er að finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is
Háskólanemi í
húsnæðisleit
Ég hef aldrei spilað með þ e ss a r i h l j ó m sve i t sjálfur. Bara fylgst með henni og farið á tónleika þegar ég hef haft tæki-færi til, meðal annars í
New York þegar ég var í námi þar,“
segir Víkingur Heiðar píanisti þegar
hann er beðinn um álit sitt á Buda-
pest Festival Orchestra. „Ungverjar
eru mjög skemmtileg þjóð, mér
finnst einhver svona nett geggjun
í þeim, kannski segja einhverjar
gamlar sígaunarætur til sín. Einn
vinur minn og samstarfsmaður,
Istvan Vardai sellóleikari, einn sá
besti í heimi, er ungverskur og eftir
að ég fór að vinna með honum skil
ég af hverju þessi sveit er svona góð
og hressandi, Ungverjar elska að
koma á óvart, það er einhver leikur
í þeim sem er erfitt að lýsa.“
Víkingur Heiðar telur hina ung-
versku sinfóníuhljómsveit eins og
sveitir eigi að vera. Hvað á hann við
með því? „Hún er rosalega mikil
heild en á sama tíma eru margir ein-
staklingar þar sem geta tekið per-
sónulega afstöðu til verkanna. Með
öðrum orðum – það er mjög gaman
að heyra einleiksstrófurnar innan úr
sveitinni. Svo er stjórnandinn, Iván
Fischer, sá sem stofnaði sveitina
1983 og er búinn að vera aðalstjórn-
andi hennar allan tímann. Hann
hefur ákveðinn snillingsbjarma yfir
sér, getur spilað á vel flest hljóðfæri
sveitarinnar og þau eru ansi mörg.
Hann getur líka stjórnað hverju sem
honum sýnist út frá minni, man allt
– hann er næstum því ógnvekjandi
snjall – en líka ógeðslega skemmti-
legur og mikill töffari. Svo er hann
tónskáld og næstum andar músík.“
Ekki kveðst Víkingur Heiðar hafa
haft hönd í bagga með að fá hljóm-
sveitina hingað. „Það kom mér mjög
ánægjulega á óvart að hún væri að
koma,“ segir hann og kveðst líka
hrifinn af verkunum sem hún ætli
að flytja, nefnir sem dæmi Sinfóníu
númer 2 eftir Rachmaninov sem
hann segir stórkostlega tónsmíð og
höfundinn vanmetið tónskáld og
Píanókonsert númer 3 í c-moll eftir
Beethoven. „Með þessum konsert
opnaði Beethoven nýja heima
inn í konsertformið, hlutverk ein-
leikarans er viðameira en áður,
risastór, geggjuð kadensa, svo er
annar þátturinn hálfgert himnaríki
þegar hann hefst, einhvers konar
eintal píanistans við almættið, ef
við getum orðað það svo,“ segir
Víkingur Heiðar sem telur komu
þessarar sveitar geta verið viðburð
ársins í Eldborg. „Svona gerist ekki
á hverjum degi, ekki einu sinni á
hverju ári.“
Töff bassadeild
„Við höfum reynt að bjóða eina
stóra og fræga sinfóníuhljómsveit
velkomna í Hörpu árlega frá því
húsið var opnað,“ segir Melkorka
Ólafsdóttir, dagskrárstjóri tónlistar í
Hljómsveit eins og hljómsveitir eiga að vera
Ein af tíu bestu sinfóníuhljómsveitum heims, Budapest Festival Orchestra, spilar í Eldborgarsal Hörpu næsta miðvikudag, 17. janúar,
undir stjórn Iván Fischer. Einleikari er píanóleikarinn Dénes Várjon. Víkingur Heiðar og Melkorka Ólafsdóttir vita allt um sveitina.
Budapest Festival Orchestra er tíður gestur í helstu tónleikasölum heims en er líka vikulega með ókeypis tónleika á hjúkrunarheimilum, í kirkjum og fleiri stofnunum og reglulega „kakótónleika“ fyrir yngstu áheyrendurna.
„Skil af hverju þess sveit er svona góð og hressandi, Ungverjar elska að koma á óvart. Það
er einhver leikur í þeim sem erfitt er að lýsa,“ segir Víkingur Heiðar. FréTTaBlaðið/EyÞór
„Það verður fróðlegt að heyra í
hljómsveit af þessari stærðargráðu í
Eldborg,“ segir Melkorka.
Mynd/rUT SigUrðardóTTir
1 3 . j a n ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r44 m e n n i n G ∙ F r É T T a B L a ð i ð
1
3
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
B
B
-E
C
F
0
1
E
B
B
-E
B
B
4
1
E
B
B
-E
A
7
8
1
E
B
B
-E
9
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
0
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K