Fréttatíminn - 03.03.2017, Síða 26

Fréttatíminn - 03.03.2017, Síða 26
Alda Lóa Leifsdóttir aldaloa@frettatiminn.is Lea María Lemarquis er fyrir hönd MFÍK; Menn-ingar- og friðarsamtök íslenskra kvenna, að undirbúa dagskrána á alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir friði og jafnrétti. Fundurinn verður haldinn í Iðnó kl. 17, 8. mars, og á mælendaskrá eru þær Justyna Grosel, pólsk blaðakona, Elín Björg Jónsdóttir frá BSRB og Una Torfa- dóttir menntaskólanemi. „Við ætl- um að skoða hvernig og hvað sé að gerast í heiminum þar sem þjóðern- isfasismi sem fer vaxandi. En hætt- an er sú að minnihlutahópar missi réttindi í þannig umhverfi. Við ætl- um að velta upp spurningunni um það hvernig femínisminn getur brugðist við þessari þróun.“ segir Lea. Skilnaðir og fóstureyðingar Lea bendir á að 8. mars, alþjóðleg- ur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti, eigi rætur sínar í rúss- nesku byltingunni. „Í ár eru 100 ár liðin frá rússnesku byltingunni 1917. Konur áttu mjög stóran og mikilvægan þátt í byltingunni. 1918 voru skilnaðir og fóstureyðingar leyfðar í Rússlandi en þetta voru réttindamál kvenna. Samkyn- hneigð var líka viðurkennd. Þetta var þvílikt stökk í réttindum frá því að vera undir keisaranum.“ segir Lea og útskýrir að mikið hafi ver- ið í gangi í mannréttindabaráttu á þeim tíma. Byltingarkenndar hug- myndir um samfélagsgerð urðu til en iðnbyltingin og þéttbýlið ól af sér kröfur um mannréttindi. Þarna hófust stéttaátök sem fæddu af sér róttækar hugmyndir og kröfur um betra líf. „Ég held að þáttur kvenna í byltingunni 1917 hafi verið stór- merkilegur og áhugavert að varpa ljósi á hann nú 100 árum síðar. Karl- arnir voru sendir í stríðið, og kon- urnar vildu að þessu linnti, sem- sagt stríðinu,“ bætir hún við. „Það voru langar biðraðir eftir brauði og þær vildu fá synina heim. Friður og brauð, um það snérist þetta hjá konunum. Til að byrja með voru þetta sósíalískar konur. Þær ákváðu að velja sunnudag til þess að mót- mæla, og bera upp kröfur sínar um frið og jafnrétti. En sunnudagur- inn var eini frídagur verkakvenna á þeim tíma. Þess vegna var dagur- inn á reiki til þess að byrja með.“ segir Lea. Mæðradagur hjá nasistunum En dagurinn kemur úr febrúar- byltingunni sem er aftur miðuð við rússneska tímatalið en í okkar tímatali ber daginn upp á 8. mars. „Þegar nasistarnir tóku Þýskaland þá brey t tu þeir þessum baráttu- degi kvenna í mæðradag,“ seg- ir Lea og hristir hausinn. Lea segir að þrátt fyrir að það megi deila um Sovétrikin og hvernig þetta þróaðist hjá þeim þá megi hinsvegar ekki að horfa framhjá því að konur fengu svo mikið af sínum réttindum í gegn í byltingunni. En afþví að sagan er skrifuð af körlum um karla þá fer minna fyrir þessum hlut kvenna. Maður man bara karlana í byltingunni, en kvennasagan er jaðarsaga sem vill gleymast, og Lea tekur fram að þess vegna sé alltaf gaman að rifja upp kvennasöguna. Konur gegn afturför „Það er að vissu leyti sorglegt að 100 árum síðar séum við enn að berjast fyrir þessum grunnréttind- um og að fóstureyðingar til dæm- is skuli enn vera ástæða fyrir mót- mælum eins og til dæmis í Póllandi um daginn,“ tekur Lea fram. „Við erum með þema, Konur gegn afturför.“ Lea segir þau í undirbúningnefndinni vera að bregðast við því sem er að gerast í Bandaríkjunum. „Konur eru þær fyrstu til þess að finna fyrir aftur- för. Þær finna fyrst fyrir fátæktinni, af því að þær geta ekki gefið börn- unum að borða. Þegar ofbeldi eykst þá eru það þær sem verða fyrir því. Í stríði eru það konurnar sem finna fyrst fyrir ofbeldinu.“ Lea telur réttindi kvenna standa höllum fæti. „Hlustaðu á Trump og sjáðu það sem gerðist í Póllandi um daginn. Þetta eru skelfilegir tímar. Hægriöflin hér á Íslandi eru líka hættuleg réttindum kvenna. Það er kannski ekki eins augljóst ennþá, en um leið og það verður farið 26 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 3. MARS 2017 Ótrúlegt hvað við erum lítið vakandi yfir óréttlætinu Hún er með hrokkið hár og frekjuskarð, hún er ekki í dragt heldur heimaprjón- uðu vesti. Hún er aktífisti en ekki karrí- eristi. Hún heitir Lea, 22 ára gömul og nemi í jarðeðlisfræði. Hún er eins og sunnudags- útgáfan af Línu Lang- sokk að undirbúa 8. mars, alþjóðlegan baráttudag kvenna. „Aðalmálið er ekki hvort það sé kona eða karl sem stjórnar heldur það hvort við höfum samkennd með þeim sem þurfa á okkur að halda,“ segir Lea María Lemarquis. Í ár eru 100 ár liðin frá rússnesku byltingunni 1917. Alþjóðlegur baráttu- dagur kvenna fyrir friði og jafnrétti á rætur sínar í rússnesku byltingunni. Við ætlum að skoða hvernig og hvað sé að gerast í heiminum þar sem þjóðernisfasismi sem fer vaxandi. En hættan er sú að minnihlutahópar missi réttindi í þannig umhverfi.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.