Fréttatíminn - 04.03.2017, Síða 4
Kvikmyndir Leikstjórinn Pål Refs-
dal kemur til landsins á Norræna
kvikmyndahátíð til að kynna
mynd sína Dugma: the Button.
Dugma: the Button er 57 mínútna
löng heimildarmynd um unga
menn sem hafa ákveðið að fórna
lífi sínu fyrir Al Qaeda í Sýrlandi.
Pål Refsdal er umdeildur,
áhugaverður leikstjóri og fyrrum
blaðamaður fyrir norska herinn.
Árið 2009 var hann tekin sem
fangi af Talibönum þar sem hann
tók upp íslamstrú til að bjarga lífi
sínu. Pål hefur unnið með og fjall-
að um fjölda uppreisnarhópa um
allan heim en hann valdi að vera
múslimi áfram eftir að hann slapp
úr fangavistinni.
Kvikmyndahátíðin hefst 8. mars
kl. 19 en þá er boðið til opnunar-
myndar hátíðarinnar, A Thousand
Times Good Night eftir danska
leikstjórann Erik Poppe. Myndin
sem skartar Juliette Binoche og
Nikolaj Coster-Waldau í aðalhlut-
verkum byggir á eigin reynslu
leikstjórans sem starfaði sem
stríðsljósmyndari á sjöunda áratug
síðustu aldar. Kvikmyndahátíðin
fer fram í Norræna húsinu 8.-15.
mars og er aðgangur ókeypis.
Dagskrá hátíðarinnar er að finna
í heild sinni á vef Norræna hússins
en allar myndirnar eru sýndar
með enskum texta. | þká
4 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 4. MARS 2017
Pål Refsdal tók
íslamstrú þegar hann
var fangi talibana.
Margrét Vilborg
Bjarnadóttir hefur
ásamt samstarfs-
manni sínum hjá Pay
Analytics þróað tól
sem aðstoðar stjórn-
endur við að ráðast á
kynbundin launamun
með sanngjörnum og
hagkvæmum hætti.
ÍMARK-
dagurinn
10. mars 2017
í Hörpu
Sköpun
og árangur
Nánari upplýsingar og
skráning á imark.is Heimildamynd um píslarvotta í Al Qaeda
Kjaramál Margrét Vilborg Bjarna-
dóttir hefur hannað verkfæri
sem gerir fyrirtækjum kleift að
brúa launabil kynjanna með
hagkvæmum og sanngjörnum
hætti. Uppgefinn stjórnandi í
leit að lausnum, varð kveikjan
að vinnunni. Orkuveita Reykja-
víkur vill útrýma kynbundnum
launamun starfsmannanna sinna
og vinnur með Margréti að því að
þróa tæknina áfram.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Margrét er lektor við RH Smith
School of Business við háskólann í
Maryland. Hún stofnaði fyrirtæk-
ið Pay Analytics ásamt David And-
ersson, fyrir örfáum árum en þau
eru bæði með doktorsgráðu í að-
gerðagreiningu. Í sameiningu hafa
þau þróað lausn sem gerir stjórn-
endum kleift að loka launabili kynj-
anna meðal starfsmanna sinna fyr-
irtækja. Fyrir lausnina unnu þau
Gulleggið í fyrra.
Tæknin sýnir áhrif hverrar ein-
ustu launaákvörðunar sem tekin er,
á heildarlaunabil kynjanna hjá fyr-
irtækinu. Greiningin er frábrugðin
hefðbundnum mælingum því hún
er ekki stikkprufa eða greining gam-
alla gagna, heldur lifandi líkan sem
sýnir núverandi stöðu og nota má
til að máta mögulegar launaákvarð-
anir. Þannig má sjá framvirkt hver
áhrif launahækkanna gætu orðið.
„Pay Analytics fór þannig af stað
6,
9%
8,
4%
6,
9%
4,
6%
3,
7%
2,
3%
2,
1%
10%
8%
6%
4%
2%
0%
2006 2008 2010 2013 2014 2015 2016
Óútskýrður kynbundinn
launamunur hjá OR
Frá því mælingar hófust var kynbundinn
launamunur starfsmanna Orkuveitu Reykja-
víkur mestur árið 2008 og hann hefur aldrei
verið lægri en nú. Stjórnendur fyrirtækisins
vilja vera sem næst núllinu.
Lausn sem útrýmir
kynbundnum
launamun
að yfirmaður í stóru fyrirtæki mældi
hjá sér launamuninn sem reyndist
meiri en 5%. Hann fann engar lausn-
ir á markaðnum til að loka bilinu
með skilvirkum hætti. Við útbjugg-
um því algrím til að ráðast á vand-
ann og þróuðum stærðfræði svo
hægt væri að loka bilinu á sem hag-
kvæmastan hátt. Svo fannst okkur
líka þurfa að taka tillit til sanngirnis-
þátta svo við þróuðum þetta áfram
í samstarfi við Orkuveitu Reykja-
víkur og fleiri. Nú getum við fundið
jafnvægi milli hagkvæmni og sann-
girni,“ segir Margrét.
Hún er á öndverðum meiði við
Sigríði Andersen dómsmálaráð-
herra sem telur kynbundinn launa-
mun innan skekkjumarka. „Ég er
ekki sammála því. Rannsóknir sem
við fylgjumst með, bæði hér á landi
og í Bandaríkjunum, staðfesta að
það er launamunur. Fjöldi kæru-
mála í dómskerfinu sýnir ótrúlega
mismunum í Bandaríkjunum. Við
stöndum miklu framar á Íslandi og
þar er vilji til að loka bilinu.“
Sólrún Kristjánsdóttir starfs-
mannastjóri OR tekur undir með
Margréti og segir undarlegt að full-
yrða að launamunurinn í landinu
sé ómælanlegur þegar bestu mögu-
legu greiningartæki sýni skekkju í
aðra átt.
Sólrún segir OR hafi látið fram-
kvæma fjölmargar launagreiningar
síðan 2006 sem allar hafi sýnt kyn-
bundinn launamun. Hjá stjórnend-
um sé ríkur vilji til að útrýma hon-
um en erfitt hafi reynst að greina til
hvaða aðgerða þyrfti að grípa.
„Við vorum alltaf að horfa í bak-
sýnisspegilinn með því að rýna í
gömul gögn og þegar niðurstöð-
urnar lágu fyrir hafði margt breyst
innan fyrirtækisins. Því var óljóst
hvernig við ættum að laga þetta.
Þess vegna leituðum við að lausn
sem sýndi stöðuna í rauntíma og
gerði okkur kleift að máta fram-
virkt mögulegar launaákvarðanir.
Vandinn er flóknari en svo að stjórn-
endur séu vondir karlar sem vilji
borga konum lægri laun. Hann er
lúmskari og skýrist meðal annars af
því hvað við erum öll félagsmótuð og
hvernig verðmætamatið í atvinnu-
lífinu hefur verið í gegnum tíðina.“
Alþingi Jón Gunnarsson ráðherra
samgöngumála samþykkti metn-
aðarfulla samgönguáætlun, 12.
október í fyrra eða örfáum vikum
fyrir kosningar. Hann samþykkti
síðan fjárlög þar sem gert var ráð
fyrir tíu milljarða niðurskurði í
málaflokknum, þann 22. desem-
ber, en ellefu stjórnarþingmenn
urðu svo frægir að gera hvort
tveggja. Jón er nú orðinn ráð-
herra og tekur einn ákvörðun um
hvar eigi að skera niður.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Þurft hefði 14 milljarða á fjárlögum
til að fjármagna samgönguáætlun
en gert var ráð fyrir 4,5 milljörð-
um á fjárlögum. Kolbeinn Óttarsson
Proppé þingmaður VG segir greini-
legt að samgönguáætlun hafi verið
innantómt kosningaplagg eða spyr
hvað annað valdi þessum viðsnún-
ingi á 71 degi. Hann segir að Jón
Gunnarsson ætli sér nú það vald að
ákveða einhliða hvar eigi að skera
niður. „Hann leitar allavega ekki
til þingsins eða umhverfis- og sam-
göngunefndar um nýja forgangs-
röðun. Hann segir síðan að þing-
ið hafi ákveðið að skera niður en
minnist ekki orði á það að hann hafi
sjálfur greitt
atkvæði með því,“
segir Kolbeinn.
Kolbeinn segir að þegar fjárlög-
in hafi verið samþykkt áður en ný
ríkisstjórn tók við hafi legið fyrir
að einungis fengjust 4,5 milljarð-
ar í nýja samgönguáætlun. Þá hafi
verið gert samkomulag um að setja
Dettifossveg og Berufjarðarbotna í
forgang. Tveir milljarðar hafi síð-
an átt að fara í viðhald. Þá hafi það
verið sameiginlegur skilningur að
ný ríkisstjórn þyrfti að koma fram
með fjáraukalög um þá liði sem
ekki rúmuðust innan fjárlaga, þar
á meðal samgöngumál. „Þetta eru
því hrein og klár svik og við ætl-
um ekki að taka því þegjandi og
hljóðalaust. Þetta samkomulag var
forsenda fyrir þverpólitískri sátt
um að hleypa fjárlögunum í gegn.
Það var starfsstjórn í landinu og
enginn vissi hver yrði í ríkisstjórn
en skilningurinn var sá að sam-
göngumálin yrðu bætt í fjárauka-
lögum nýrrar ríkisstjórnar.“
Jón Gunnarsson vill fjármagna
samgöngubætur með vegtollum
við takmarkaða hrifningu. Gunnar
Bragi Sveinsson þingmaður Fram-
sóknarflokksins segir ráðherrann
hafa svikið kjósendur og Sjálfstæð-
isf lokkurinn skuldi skýringar á
þessu framferði ráðherrans. Kall-
að hefur verið eftir því að ráðherr-
ann komi á fund umhverfis- og sam-
göngunefndar til að skýra málin.
Viðsnúningur á 71 degi
Kolbeinn Óttarsson
Proppé birti á Face-
book-síðu sinni nöfn
þeirra ellefu þing-
manna sem greiddu
bæði atkvæði með sam-
gönguáætlun þar sem
verja átti fjórtán millj-
örðum til vegamála og
líka fjárlögunum sem
gerðu einungis ráð
fyrir 4,5 milljörðum.
Viðskipti Allir stóru viðskipta-
bankarnir tengjast sams konar
viðskiptum og þeim sem FME
hefur vísað til héraðssaksóknara
út af Borgun. Valitor þurfti að
greiða sektir vegna viðskipta
sinna erlendis. Aðgerðir Fjár-
málaeftirlitsins gegn Borgun eru
vatnaskil í áralangri sögu þar sem
íslensk kredikortafyrirtæki hagn-
ast á umdeilanlegum viðskiptum
erlendis.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Greiðslumiðlunarfyrirtækið Va-
litor, sem er að stærstu leyti í eigu
Arion banka, gjaldfærði 450 millj-
ónir króna í ársreikning sinn árið
2014 vegna „sekta og tengdra mála“
sem vörðuðu reksturinn á árun-
um 2002 til 2009. 220 milljónir af
þessari upphæð voru sektir vegna
samkeppnislagabrota á Íslandi
sem áttu sér stað við uppbyggingu
greiðslukortakerfis fyrirtækisins,
samkvæmt ársreikningi félagsins, en
ekki er skilgreint hver ástæðan er
fyrir 230 milljónum króna af þessari
upphæð.
Valitor stundaði umdeilanleg
viðskipti erlendis í færsluhirðingu
á þessum tíma og var gert að
greiða sektir vegna þessa sam-
kvæmt heimildum Fréttatímans.
VISA International fetti fingur út
í starfsemi fyrirtækisins sem varð
til þess að árið 2011 hætti Valitor
þeim viðskiptum sem um ræðir,
meðal annars færsluhirðingu fyr-
ir fyrirtæki Jónasar Reynissonar
eMerchantPay sem til dæmis veitir
greiðsluþjónustu fyrir fjárhættuspil
á internetinu. Samkvæmt heimild-
um Fréttatímans er greiðslumiðl-
un vegna fjárhættuspila á netinu
langstærsti hluti þjónustu fyrirtæk-
is Jónasar.
Um þessa stefnubreytingu í starf-
semi Valitor erlendis sagði Við-
ar Þorkelsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, í ársreikningi fyr-
irtækisins árið 2012 að ný stefna
myndi leiða til minni tekna erlend-
is. „Meginverkefni stjórnenda fé-
lagsins á árinu 2012 hefur verið að
marka nýja stefnu í færsluhirðingu
erlendis og komu erlendir sér-
fræðingar meðal annars að þeirri
vinnu. Ný stefna mun tímabundið
leiða til lækkunar á veltu félagsins
en skapar á móti traustari grunn
fyrir frekari uppbyggingu á erlend-
um mörkuðum í framtíðinni.“
Samkvæmt heimildum Fréttatím-
ans gengu samningar eMerchant-
Pay og íslensku greiðslumiðlunar-
fyrirtækjanna þannig fyrir sig að
þau skipti með sér ákveðinni pró-
sentu af veltu fyrirtækjanna sem
þau sáu um greiðslumiðlun fyrir.
Þeim mun áhættusamari sem við-
skiptin eru þeim mun hærri eru
tekjurnar af þeim.
Valitor þurfti að borga
450 milljónir í sektir
Höskuldur Ólafsson, núverandi
bankastjóri Arion banka, var fram-
kvæmdastjóri Valitor lungann úr þeim
tíma sem félagið byggði upp erlend
viðskipti sín. Arion er í dag stærsti
hluthafi Valitor.