Fréttatíminn - 04.03.2017, Blaðsíða 36
36 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 4. MARS 2017
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Fyrst ætluðum við vinkon-urnar bara að hittast og gera það sem Beyoncé finnst gaman að gera, eins og að drekka
rauðvín og borða pizzu. Svo
ætluðum við auðvitað að tala
um Beyoncé, horfa á Lemona-
de og fara í karókí,“ segir
Guðný Helga Grímsdóttir
sem stendur að viðburðinum
Beyoncé Appreciation Day
á Loft Hostel í kvöld, ásamt
vinkonu sinni Sigríði Gyðu
Héðinsdóttur. Þar verður
söngdívan heiðruð með
viðeigandi hætti. En það er
líklega óhætt að fullyrða
að þær séu heitustu aðdáendur
Beyoncé á Íslandi.
Það sem átti að vera vinkonu-
samkoma vatt því upp á sig og
er nú orðið að viðburði sem allir
aðdáandur Beyoncé á Íslandi geta
sótt. Enda er það í anda QueenB
að taka hlutina alla leið.
Hugmyndin er algjörlega Guð-
nýjar og Sigríðar og þær höfðu
því enga fyrirmynd að við-
burðinum. „Þrítugar konur
verða bara að fagna ýmsu og
Beyoncé er hluti af því,“ segir
Guðný en hugmyndin spratt
einmitt út frá fleygri setn-
ingu sem Sigríður lét falla.
„Sigga sagði að hún væri
svo þakklát fyrir að vera
uppi á sama tíma og
Beyoncé.“
Guðný hafði svo
samband við Loft
Hostel og spurði
hvort þau vildu
sýna Lemona-
de á tjaldi á
barnum. Það
var vel tekið í
hugmyndina
og nú er líka
búið að redda
karókígræjum
þannig gest-
ir geta brostið í
söng til heiðurs
söngkonunni að
myndinni lok-
inni. En fyrir
þá örfáu sem
ekki þekkja
Lemonade
þá er um
að ræða
vídjólista-
verk Beyoncé
sem hún gerði
samhliða
samnefndri
plötu sem kom út á síðasta ári,
en lögin á plötunni hljóma undir
myndinni. „Við hitum okkur upp
fyrir karókíið með myndinni.
Bjóðum upp á Beyoncé köku og
svo verður hægt að fá lemonade
kokteila. Ég hvet alla sem hafa
ekki séð myndina til að koma og
berja þessa fegurð augum. Þetta
gerist ekki betra.“
Fjölmargir hafa
boðað komu sína
á viðburðinn í
gegnum Face-
book og Guðný
er orðin mjög
spennt. „Það eru
svo margir sem
dýrka hana og
það eru allir mjög
jákvæðir gagn-
vart þessu.“
Þær stöllur
hafa báðar haldið
mikið upp á
Beyoncé síðan
hún kom fyrst
fram á sjón-
arsviðið með
hljómsveitinni Destiny’s Child.
„Við erum búnar að vera með
henni frá byrjun. Hún er lífsföru-
nautur okkar.“ Þær hafa sjálf-
sögðu fylgt henni á nokkra tón-
leika, en
þó ekki eins
marga og þær
hefðu viljað.
Þetta er þó í fyrsta skipti sem
Guðný og Sigríður skipuleggja við-
burð til að fagna Beyoncé en hún
er þeim alltaf ofarlega í huga. „Það
er mikið talað um hana í vina-
hópnum. Lemonade
hefur verið spiluð
ansi oft, sem og allar
plöturnar hennar.
Hún er stór partur
af lífi okkar. Þegar
Lemonade kom út,
þá var ég mjög fegin
að vera ekki í skóla,
því hún kom út á
próftíma. Ég hefði
fallið á önninni því
ég hefði ekki get-
að einbeitt mér að
náminu.“
Dagsetning
heiðurssamkomunn-
ar er að sjálfsögðu
engin tilviljun, en
Guðný fullyrðir að
4 sé uppáhalds tala Beyoncé og
því hafi legið beinast við að halda
viðburðinn 4. mars. Gleðin hefst
klukkan 20.
Beyoncé er lífsförunautur okkar
Tvær vinkonur halda
veislu til heiðurs
söngdívunni, bjóða
upp á Beyoncé köku og
Lemonade kokteila
Guðný hefur fylgst með Beyoncé
síðan hún kom fyrst fram með
Destiny’s Child.
Þrif ehf. | Lækjasmári 86 | 201 Kópavogur | Sími: 8989 566 | www.thrif.net
Fyrirtæki og húsfélög, gerum
tilboð ykkur að kostnaðarlausu
Bjóðum sérhæfða þjónustu fyrir
íbúðir sem eru í túristaleigu
Hefur þú þörf fyrir
þrif
Meðal þeirra sem skemmta eru
Baggalútur, Gunnar Þórðarson,
Magga Stína, Bubbi Morthens og
Ellen Kristjánsdóttir. Einnig kemur
fram hundrað kvenna kór und-
ir stjórn Margréti Pálmadóttur og
syngur Brennið þið vitar svo húsið
hristist.
Á tónleikunum leikur hljómsveit
Eyþórs Gunnarssonar undir.
Ásamt Eyþóri spilar Guðmund-
ur Pétursson á gítar, Andri
Ólafsson á bassa og Einar
Scheving á trommur. Ragn-
heiður Gröndal og Egill
Olafsson munu syngja
með hljómsveitinni
og líka Arnljótur Sigurðsson úr Ojba
Rasta og Þorsteinn Einarsson úr
Hjálmum, Svavar Knútur og Pétur
Ben og kvennahljómsveitin Tripola.
Auk þessara munu skáldin Einar
Már Guðmundsson og Linda Vil-
hjálmsdóttir lesa ljóð undir trylltum
djassi.
Húsið opnar klukkan 15 og verð-
ur boðið upp á léttar veitingar í
anddyrinu. Tónleikarnir hefjast
klukkan 16. Allir eru velkomnir,
stofnfélagar Frjálsrar fjölmiðlun-
ar og þau sem vilja styðja frjálsa
og óháða blaðamennsku á
Íslandi.
Frjáls fjölmiðlun stofnuð 11. mars
Frjáls fjölmiðlun,
samtök til stuðnings
óháðri og frjálsri fjöl-
miðlun verða stofnuð
laugardaginn 11. mars í
Háskólabíói. Við stofn-
unin verður slegið upp
tónleikum og skemmti-
dagskrá þar sem fjöldi
listamanna kemur
fram til stuðnings mál-
efninu.
Gunnar Þórðarson og Magga Stína
syngja saman dúett, Bubbi Morthens
frumflytur lög af óútkominni plötu
og Kvennakór Reykjavíkur syngur
Brennið þið vitar ásamt þremur
kvennakórum öðrum.
Viltu að vinir og
kunningjar geti tekið
sjálfu með þér eftir að
þú deyrð?
Margir kannast eflaust hina geysi-
vinsælu seríu Black Mirror sem
framleiddir eru af Netflix. Í einum
slíkum þætti kynnist syrgjandi
ekkja appi sem gerir henni kleift
að tala við látinn eiginmann sinn.
Áhorfanda finnst þetta eflaust
heldur fjarstæðukennt en nú eru
vísindamenn í Suður Kóreu að þróa
forrit sem mun gera fólki kleift
að eiga samskipti við eftirlíkingu
látinna ástvina. Forritið virkar á
þann veg að þú skannar þig inn í
það meðan þú lifir enn.
Eftir dauða þinn getur eftirmynd
þín lifað áfram á bakvið skjáinn og
huggað syrgjandi sálir. Ástvinirn-
ir geta líka tekið sjálfsmyndir með
eftirmynd þinni og talað við hana.
Eun Jin Lim, ein af frumkvöðlun-
um á bakvið forritið segir það vera
hugsað fyrir fjölskyldur sem hafa
misst ástvini enda saknar hún sjálf
látinnar ömmu sinnar og væri til
í að geta tekið myndir af sér með
henni. | bsp
Forrit fyrir
syrgjandi
ástvini