Fréttatíminn - 04.03.2017, Qupperneq 24

Fréttatíminn - 04.03.2017, Qupperneq 24
24 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 4. MARS 2017 Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Kuldinn er ekkert nema tæki til að örva innri kerfi líkamans,“ segir Þór Guðnason en hann hefur undanfarið ár ein- beitt sér að því að styrkja sig and- lega og líkamlega með hjálp kulda og hinnar svokölluðu Wim Hof að- ferðar. Í rúmt ár hefur Þór byrjað hvern einasta dag á ískaldri sturtu auk þess að baða sig upp úr jökulköld- um vötnum og ganga á fjöll í frosti á stuttbuxunum einum. „Ég hef alltaf haft áhuga á því að efla líkam- lega getu mína og opna á hæfileika sem við höfum innra með okkur en kunnum ekki að nýta. Nútímamað- urinn er orðinn svo mikill þæginda- fíkill. Við gerum ekki annað en að pakka okkur inn í bómull, fara á milli staða í bílunum okkar og sitja í stól allar okkar vökustundir. Fólk hefur ekki lengur trú á því að við getum læknað okkur sjálf. Flestir vilja fá skyndilausn í töfluformi í stað þess að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera hluti sem styrkja okkur og efla. Wim Hof aðferðin snýst um að hafa áhrif á líðan okkar sjálf og nota kulda til að efla heilsuna.“ Allir geta lært að stjórna líðan sinni Wim Hof aðferðin er nefnd eft- ir Hollendinginum Wim Hof, bet- ur þekktur sem Ísmaðurinn. Hof á fjölda ótrúlegra heimsmeta sem öll tengjast því að geta þolað kulda í langan tíma, oftast við mjög öfga- kenndar aðstæður. Þrátt fyrir að líta ekki út eins og fitness stjarna hefur Hof klifið hæstu fjöll jarðar á skóm og stuttbuxum einum fata, klárað fimm klukkutíma maraþon við heimskautsbaug í tuttugu gráðu frosti berfættur á stuttbuxum, ann- að maraþon í eyðimörk án þess að drekka dropa af vatni og svo á hann met í að kafa undir ís á Norðurpóln- um, í sundskýlu einum fata. Hof hefur stundað kuldaböð til að efla heilsuna í mörg ár en í fyrsta skipti sem hann vakti athygli vís- indamanna var þegar hann fór á bólakaf í risastórt klakabox í hol- lenskum sjónvarpsþætti. Þar sat hann í klukkustund og 53 mínútur án þess að hitastig líkamans lækk- aði. Kuldinn herðir mann andlega og líkamlega Þór Guðnason stundar kuldaböð og gengur á fjöll í frosti á stuttbuxunum einum, eins og lærifaðir hans, hinn svokallaði Ísmaður, Wim Hof. Til hvers? Til þess að læra að hafa stjórn á eigin líðan. Ísmaðurinn Lærimeistari Þórs, hinn hollenski Wim Hof, betur þekktur sem Ísmaðurinn, á fjölda ótrúlegra heimsmeta sem öll tengjast því að geta þolað kulda í langan tíma, oftast við mjög öfgakenndar aðstæður. Í tilrauna- stofum hafa vísindamenn komist að því að Hof getur stjórnað taugakerfi sínu með viljastyrknum. Hof segist eiga allt sitt undir réttri öndun, hug- leiðslu og kulda. Hann og þeir sem stunda aðferðir hans segja aðferðir hans styrkja líkamann, ónæmiskerfið, blóðflæðið, einbeitinguna, svefninn og sjálfstraustið. Einnig á Wim Hof aðferðin að vera bólgueyðandi og streitu- losandi. Vísindarannsóknir á líkama Hof hafa staðfest þessa vissu hans og nú ferðast hann um heiminn og breiðir út boðskapinn. Íslenski ísmaðurinn „Wim Hof aðferðin snýst um að hafa áhrif á líðan okkar sjálf og nota kulda til að efla heilsuna,“ segir Þór en hann er hættur á ADHD lyfjum og steralyfjum við astma eftir að hann fór að stunda ísköld böð með aðferð hollenska ísmannsins Wim Hof. Sjálfur er Þór alin upp í líkamsræktarstöð og er lærður jógakennari og einkaþjálfari. Hann stundaði flest áhættusport sem til eru áður en hann ákvað að einbeita sér að því að rækta líkama og sál með kulda. Mynd | Hari Þvottadagar Þvottavél L6FBE720I Tekur 7 kg af þvotti. 1200 snúningar. Öll hugsanleg þvottakerfi. Íslensk notendahandbók. Verð áður: 89.900,- Verð nú : 71.920,- 914913404 20% 3 ára ábyrgðÍslenskt stjórnborð 3 ára ábyrgðÍslenskt stjórnborð Þvottavél L6FBE840I Tekur 8 kg af þvotti. 1400 sn. Öll hugsanleg þvottakerfi. Kolalaus mótor. Íslensk notendahandbók. Verð áður: 99.900,- Verð nú: 79.920,- 914913410 20% lágmúla 8 · sÍmi 530 2800 umboðsmenn um allt land ÞVOTTAVÉLAR - ÞURRKARAR UPPÞVOTTAVÉLAR NÝ MÓDElÁRGERÐ 2017

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.