Fréttatíminn - 10.02.2017, Síða 1
Snæfellsbær á ekki fyrir launum
um næstu mánaðamót og þarf á
fyrirgreiðslu að halda til þess að
standa við skuldbindingar sínar
sökum sjómannaverkfallsins.
Búist er við 40% minni tekjum til
bæjarins sökum verkfallsins. Bæj-
arstjórinn segist ekki búast við
því að bærinn hljóti fjárhagslegan
skaða af til lengdar og segir stöðu
Snæfellsbæjar ekkert einsdæmi.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
„Við erum að búa okkur undir að
það verði 40% tekjutap, það þýðir
þá að við eigum ekki fyrir launum,“
segir Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Snæfellsbæjar, en bæjarfélagið,
sem samanstendur meðal annars af
Ólafsvík, Hellisandi og Rifi, treyst-
ir að stórum hluta á sjávarútveginn
þegar kemur að tekjum.
Kristinn segist búast við 40% af-
föllum varðandi tekjur vegna verk-
fallsins. Þannig nefnir hann að í jan-
úar í fyrra hafi verði landað 4200
tonnum af fiski. „Núna var landað
1400 tonnum,“ bætir hann við
Kristinn, sem hefur verið bæj-
arstjóri frá árinu 1998, segist ekki
hafa séð það svona svart áður, í það
minnsta síðan hann hóf störf sem
bæjarstjóri.
„Við höfum ekki staðið frammi
fyrir svona vanda áður, allavega
ekki síðan ég tók við árið 1998,“ seg-
ir Kristinn sem er þó vongóður um
að tekjurnar jafnist út þegar verk-
fallinu lýkur. Hann býst því ekki við
að málið muni draga dilk á eftir sér
varðandi fjárhag sveitarfélagsins.
Hann segir hinsvegar áhrifin víð-
tækari, og jafnvel alvarlegri, bæði
fyrir fjölskyldufólk sem verður af
tekjum, og eins minni fyrirtæki sem
treysta á sjávarútveginn.
„Svo má ekki vanmeta andlega
þáttinn og áhrifin á einstaklingana,“
segir Kristinn og segir verkfallið
hafa slæm áhrif á fjárhag heimila.
„Fólk er að koma út úr jólamánuðin-
um, sem er sá dýrasti, og það get-
ur verði þungt,“ segir Kristinn sem
segist vita til þess að bankastofnan-
ir séu hjálpfúsar og hafi komið til
móts við fólk sem eigi í tímabundn-
um vanda vegna verkfallsins.
Kristinn segist ekki telja að verk-
fallið muni hafa alvarleg áhrif á
fjárhag bæjarins, enda tímabundið
ástand.
frettatiminn.is
ritstjorn@frettatiminn.is
auglysingar@frettatiminn.is
11. tölublað
8. árgangur
Föstudagur 10.02.2017
Hörður Erlingsson segir verktakafyrirtækið Prima ehf. brjóta deiliskipulag með framkvæmdum við Laugaveg 4-6.
M
yn
d
| H
ar
i
Sjómannaverkfall
Snæfellsbær á ekki fyrir
launum vegna verkfallsins
8
ÞJÓNUSTA Í ALMANNAÞÁGU
KRINGLUNNI ISTORE.IS
iStore Kringlunni er
viðurkenndur sölu- og
dreingaraðili DJI á Íslandi
Sérverslun með Apple vörur
Phantom 4
Lækkað verð
149.990 kr. Phantom 4 Pro
Frá 229.990 kr.
Inspire 2
Frá 449.990 kr.
Aftur hafa skapast deilur um
framkvæmdir sem mennirn-
ir á bakvið verktakafyrirtækið
Prima ehf standa að í miðbæn-
um, nú vegna Laugavegar 4-6.
Þeir tengdust áður Brotafli ehf.
hvers starfsemi var stöðvuð af
yfirvöldum í fyrra.
Reykjavíkurborg hefur nýlega
hafnað tilboðum frá Prima ehf.
í risaframkvæmd í Úlfarsárdal,
þrátt fyrir að tilboðin hafi verið
þau langlægstu í útboðunum.
Boðin þóttu grunsamlega lág og
fyrirtækið veitti, að mati borg-
arstarfsmanna, ekki fullnægj-
andi upplýsingar um stöðu sína.
Samkeppnisaðilar saka menn-
ina um óeðlileg undirboð.
Prima ehf. er undir smásjá
skattayfirvalda, samkvæmt
heimildum Fréttatímans.
Menn því tengdir voru hneppt-
ir í gæsluvarðhald í fyrra og
sæta enn rannsókn Héraðssak-
sóknara.
VERKTAKAR LIFA
ÍSLENSKA DRAUMINN
Umdeildar
framkvæmdir 10
„Við höfum ekki
staðið frammi
fyrir svona vanda
áður, allavega ekki
síðan ég tók við árið
1998.“
Fyrirgaf sjálfri sér Elma
Karen gerir upp andleg
veikindi og kynferðis
ofbeldi í ljósmyndum
Okkur vantar
pólitíkusa með
réttlætiskennd
Ásthildur Lóa og
Hafþór hafa barist
í dómskerfinu
árum saman22 1830
Engiferöl
loksins
komið í
tísku
4
Vill opinbera
afsökunarbeiðni
Bryndís Snæbjörnsdóttir
formaður Þroskahjálpar
vill að miklu fleiri fái
sanngirnisbætur
6
HIV breiðist út
meðal fíkla
Már Kristjánsson
vill sérstaka deild
fyrir sprautfíkla
Foreldrar syngja bak-
raddir og róta fyrir bjór
Stelpnahljómsveitin
RuGL slær í gegn 28