Fréttatíminn - 10.02.2017, Blaðsíða 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 10. febrúar 2017
Lýsa eftir pólitíkusum
með réttlætiskennd
Hjónin Ásthildur Lóa Þórsdóttir
og Hafþór Ólafsson, eða Ásta og
Haffi eins og þau eru kölluð, hafa
staðið í miklu stappi í kerfinu
undanfarin níu ár vegna geng-
istryggðs láns sem þau tóku á
sínum tíma. Húsið þeirra hefur
þrisvar sinnum verið sett í upp-
boðsferli og krafa bankans vaxið
og vaxið. Þau telja aðgerðir stjórn-
valda, dóms- og fjármálakerfis er
varðar gengistryggð lán í engu
hafa snúist um hag neytenda.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
„Eftir allt þetta stapp verður að
segjast að við höfum misst alla trú
á því að Ísland sé réttarríki,“ segir
Ásta. „Það er alveg sama hvar mað-
ur reynir að benda á óréttinn sem
við teljum okkur hafa verið beitt,
alls staðar rekst maður á sama við-
mótið og sér brátt það mynstur að
stjórnkerfið, löggjafinn og réttar-
kerfið verja bara hagsmuni fjár-
málakerfisins.“
Vandræði þeirra hjóna eru til
komin vegna hrunsins og geng-
istryggðs láns sem þau tóku árið
2007 fyrir 55 prósentum af kaup-
verði heimilis síns. Lánið var tekið
hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum
en er nú í kröfusafni Arionbanka.
Umdeild lög
Segja má að fá lög sem sett hafi ver-
ið á Íslandi á undanförnum árum
hafi verið eins umdeild og svokölluð
„Árna Páls lög“ frá árinu 2010 sem
snéru að breytingum á lögum um
vexti og verðtryggingu eða það sem
kallað var í titli laganna: „aðgerðir
í þágu einstaklinga, heimila og fyr-
irtækja vegna banka- og gjaldeyris-
hrunsins.“ Ásta og Hafþór telja laga-
heitið hin mestu öfugmæli og álíta,
eins og fleiri, að lögin hafi algjör-
lega verið sett fram eftir forskrift
fjármálakerfisins og til að vernda
hagsmuni bankanna.
„Framsetning frumvarpsins fyr-
ir þinginu var blekkjandi og engan
veginn í takt við þann veruleika
sem blasti við þeim sem sátu þá
fastir með þessi lán. Dæmi í greinar-
gerð frumvarpsins litu til dæm-
is mjög sakleysislega út. Tekið var
dæmi af milljón króna láni sem átti
að hafa verið tekið fyrir þremur
mánuðum og niðurstaðan var ekki
svo slæm. Hins vegar velti enginn
fyrir sér hvaða áhrif lögin höfðu í
raun og veru á eldri lán og stærri,
sem langflest lánin voru vitanlega,“
segir Hafþór.
Þau hjónin eru á því að með lög-
unum hafi „mulningsvélar bank-
anna“ verið ræstar gegn þeim
sem sátu uppi með gengistryggð
lán. Fjöldinn allur af neikvæð-
um athugasemdum kom fram við
vinnslu frumvarpsins þar sem bent
var á að þau stæðust ekki skoðun,
meðal annars ítarlegt álit frá um-
boðsmanni skuldara.
„Lögin segja í grunninn að frá
stofndegi þessara samninga eigi að
breyta vöxtunum á þeim yfir í seðla-
bankavexti. Þannig ákveður ríkið,
þvert á eignaréttarákvæði stjórn-
arskrárinnar og neytendarétt, að
grípa inn í samninga, bakreikna
vexti og breyta í rauninni hlutn-
um sem við eigum í húsinu okkar
og hirða þannig af okkur peninga.
Þýðir þetta þá að hægt sé að breyta
hvaða ákvæðum sem er í hvaða
lánasamningi sem er? Er þetta for-
dæmi ef hér dynur yfir annað hrun
í framtíðinni? Eru lánasamningar
pappírsins virði?“ spyr Hafþór.
„Ríkið gefur þarna út veiðileyfi á
ákveðinn hóp skuldara. Í kjölfarið
hafa margir misst eignir sínar en
við berjumst enn.“
Ákvæðum breytt einhliða
Eftir hrun var lán þeirra hjóna upp-
reiknað af bankanum. Greiðslurnar
hækkuðu upp úr öllu valdi og árið
2009 var svo komið að þau sáu ekki
fram á ráða við greiðslubyrðina. Allt
stefndi í gjaldþrot en þá voru jafn-
framt komnar fram í samfélaginu
efasemdir um að gengistyggðu lán-
in stæðust lög sem síðan reyndist
rétt vera, lánin voru dæmd ólögleg
um mitt ár 2010.
Í kjölfarið, þá um haustið, fylgdi
síðan annar dómur Hæstaréttar
sem hlotið hefur mikla gagnrýni
en hann snérist um gengistryggð
bílalán og þar voru samningvext-
ir sagðir ógildir og mun óhag-
stæðari vaxtakjör látin koma í stað-
inn í skjóli vaxtalaga. Þannig var
varnarsigri þeirra sem höfðu tekið
gengislán snúið upp í martröð en
dómurinn var grundvöllur laga-
setningarinnar sem á eftir fylgdi
fyrir jólin 2010, „Árna Páls lögun-
um“ áðurnefndu þar sem stjórn-
völd gerðu bönkunum kleift að nota
seðlabankavexti á lánunum.
„Þetta teljum við vera ólöglegan
gjörning því að neytendaréttur
gerir ráð fyrir að ekki megi breyta
neinu í samningi við neytanda, eft-
ir að búið er að skrifa undir, hon-
um í óhag,“ segir Hafþór og bendir
á að neytendaréttur hafi í öllu ver-
ið hundsaður við meðferð þessara
mála í dómskerfinu. „Þú átt aldrei
séns. Réttur þinn er enginn og
neytendalögin aftengd fyrir dómi.
Hæstiréttur lét þarna eins og hann
væri ekki læs.“
Ásta og Hafþór eru á því að
dómskerfið hafi algjörlega stjórnast
af hagsmunum fjármagnseigenda
og kröfuhafa á síðustu árum. Þar
líta þau til dæmis til eignarrétt-
arákvæðis stjórnarskrárinnar og
laga um samningsgerð, umboð og
ólögmæta löggerninga. Þar segir
til dæmis að ef komi upp vafi um
merkingu samnings skuli túlka
samninginn neytanda í hag og jafn-
framt að ef ákvæði samnings séu
felld út megi ekkert annað koma
Ásthildur Lóa Þórsdóttir og Hafþór Ólafsson gera kröfu um réttlæti til handa þeim sem voru með gengistryggð lán sem tek-
in voru fram að hruni 2008. Þau telja stjórnmálalífið, stjórnkerfið og dómskerfið fyrst og fremst þjóna fjármagnseigendum
á meðan lántakar sem brotið er á megi sín lítils. Myndir | Hari
„Þegar maður ber upp
umkvörtunarefni sín við
lögfróða einstaklinga og
embættismenn er okkur
oft sagt að það sé ekkert
hægt að gera í þessu því
það brjóti gegn jafnræðis-
reglunni. Jafnræðið sem
okkur er þá sagt standa til
boða er að fara í mál gegn
bankanum og það sjá nú
allir jöfnuðinn í því.“
FORDRYKKUR – Glas af Codorníu Cava
Surf‘n turf – 4 bitar
Avókadó, humar tempura, nauta-carpaccio,
teriyaki, spicy mayo, chili crumble
Nigiri – 3 bitar
Laxa nigiri – Jalapeno mayo, wakame
Túnfisk nigiri – Jalapeno mayo, kimchee
Gullsporða nigiri
Nautalund
Lauksulta, sellerýrótarmayo, kardimommugljái
EFTIRRÉTTIR
Súkkulaði fudge
með blönduðum ávöxtum, karamellusósu
og mjólkursorbet
Eftirréttur ársins 2016
Kirsuberja og súkkulaði mús
með súkkulaði og hnetubotni, súkkulaði
makkarónu, súkkulaði og hindberja ís, kirsu-
berja sykurpúðum og ferskum hindberjum
FORDRYKKUR
OG 5 RÉTTIR
FYRIR ÁSTINA
Sushi Social
Þingholtsstræti 5 • 101 Reykjavík
Sími 568 6600 • sushisocial.is
VALENTÍNUSAR
DAGURINN
Aðeins framreitt
fyrir allt borðið.
6.900 kr.