Fréttatíminn - 10.02.2017, Qupperneq 32

Fréttatíminn - 10.02.2017, Qupperneq 32
Gott að hjálpa öðrum Farðu inn á heimasíðu Rauða krossins, raudikross- inn.is, og skráðu þig sem sjálfboða- liða. Auktu þannig þekkingu þína og víkkaðu sjóndeildar- hringinn með því að hjálpa öðrum. Gott að lesa bók Slepptu því að kveikja á sjónvarpinu í kvöld og hafðu snjallsíma og spjaldtölvur utan seilingar. Komdu þér svo vel fyrir uppi í sófa með góða bók, hlýtt teppi og kannski eitt- hvað til að narta í. Sýndu jafnvel fyrir- hyggjusemi og komdu við á bókasafninu. Gott að borða Bjóddu fjölskyldu eða vinum upp á matarmikla og bragðsterka súpu. Ef þú átt stóran pott þá er lítið mál að elda súpu fyrir fjölda manns. Hráefnið þarf alls ekki að vera dýrt eða eldamennskan flókin. Tómatsúpa með góðu brauði klikkar aldrei. GOTT Á FÖSTUDEGI Með eða á móti… Sölu áfengis í búðum Díana Sjöfn Jóhannsdóttir „Að mínu mati er fáránlegt að þetta sé hita- og forgangs- mál hjá ríkisstjórninni miðað við hversu margt situr á hakanum í öðrum mikilvægari málum. Það að Íslendingum sé svo umhugað um aukinn aðgang að áfengi sýnir að við erum alkóhólista-þjóð sem þarf að læra að hugsa um stærra sam- hengi hlutanna. Það að áfengi sé einungis fáanlegt á vissum tímum og vissum stöðum er ekki vandamál í okkar samfélagi.“ Hanna María Alfreðsdóttir „Ég er á móti áfengi í verslun- um, finnst að í nútímasam- félagi þar sem hraðinn er mikill eigi frekar að auka forvarnir gegn áfengi en aðgengi að því.“ Grétar Áss Sigursson „Ég er almennt hlynntur því og sáttur með þá umgjörð sem hefur verið sett utan um þetta, lok- að rými til hliðar og aukið framlag til forvarnarstarfsemi. Ég væri hins- vegar til í að heyra meira um sektir fyrir að selja einstaklingum undir lögaldri.“ Náttúrulegt Þörunga magnesíum ENGIN MAGAÓNOT Mikil virkni Bragðlaust duft í kalt vatn 5 mán. skammtur Nýjar umbúðir sömu gæði

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.