Fréttatíminn - 10.02.2017, Side 39
7 FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2017 NETVERSLANIR
Fólk geti notað tímann í
annað en að fara í búðina
Matvörurnar beint heim að dyrum
Unnið í samstarfi við Boxið
Boxið býður upp á heimsendingu á matvöru á höfuðborgarsvæðinu á vefsíðunni boxid.is.
Hægt er að kaupa alla almenna
matvöru; kjöt, fisk, mjólkurvör-
ur, þurrvöru, grænmeti, ávexti og
hreinlætisvörur. „Vörunum er ekið
upp að dyrum og þú velur hvenær
þær koma. Við erum með tveggja
klukkutíma afhendingarglugga
og ef þú pantar klukkan 10 geta
vörurnar verið að koma milli 12
og 2. Þegar við leggjum af stað
sendum við sms með áætluðum
komutíma og það fylgir linkur
sms-inu sem vísar inn á rauntíma-
kort,“ segir Sigurður Pálmi Sigur-
björnsson, annar eigandi Boxins
en félagi hans er Haukur Hrafn
Þorsteinsson. Heimsendingin er
gjaldfrí ef verslað er fyrir meira en
10.000 en að sögn Sigurðar eru
flestir að kaupa inn fyrir vikuna
svo upphæðin fer vanalega upp
fyrir það mark og heimsendingin
því vanalega frí.
158 sinnum í búðina á ári
Mest er það fjölskyldufólk sem
nýtir sér þjónustuna. „Fólk er að
eyða ótrúlega miklum tíma úti
í búð. Tölur frá Meniga í fyrra
sýndu að meðalneytandi er að
fara um 158 sinnum í búðina á ári.
Ef meðalbúðarferð með akstri
fram og til bara er klukkutími er
fólk að eyða sex og hálfum sólar-
hring á ári í búð. Fólk kann mjög
vel að meta að spara þennan tíma
og margir fagna því að losna við
að fara með þreytt börn í búðina,“
segir Sigurður og segir þjón-
ustuna miða að því að fólk geti
notað tímann í eitthvað annað en
að fara í búðina.
Þegar búið er að velja þær
vörur sem fólk vill fá heimsendar
verður til síða sem heitir „mínar
vörur“, þar safnast saman allar
þær vörur sem viðkomandi hef-
ur pantað sem auðveldar næstu
pantanir til muna.
Alltaf ferskar vörur
Vöruúrvalið í Boxinu eykst dag
frá degi, í þessari viku hafa bæst
við um 50 vörunúmer og síðan
vefverslunin opnaði í október
hefur úrvalið þrefaldast. „Við
leggjum áherslu á að vera með
ferska vöru, við fáum til dæmis
ávexti og grænmeti til okkar einu
sinni á dag til þess að tryggja að
slíkt sé alltaf eins ferskt og hægt
er og við látum aldrei neina vöru
með dagsetningu frá okkur nema
það sé meira en tveir dagar eftir
af notkun, yfirleitt meira,“ segir
Sigurður. „Við tökum líka glaðir á
móti ábendingum og gerum það
sem við getum til þess að aðlaga
okkur að viðskiptavinum okkar.
Við höfum notað tímann frá því
við fórum af stað til þess að reka
okkur á enda hefur enginn gert
þetta áður, opnað verslun með
mat sem er eingöngu vefverslun.“
Versla í vinnunni
Nú þegar eru fastakúnnarn-
ir orðnir fjölmargir og á hverjum
degi bætir í. „Flestir vilja fara bara
beint heim eftir vinnu, klára bara
að versla í vinnunni og fá borgað
fyrir það í leiðinni,“ segir Sigurður
og hlær. „Fólk er að nýta hádeg-
ismatinn eða þrjúkaffið til þess að
ljúka þessu af til þess að sleppa
við að þurfa að fara með þreytt
og svöng börn í búð.“
Fyrsta afhendingarhólfið er á
milli 10 og 12 og síðasta milli 20
og 22 á kvöldin. Einnig er opið um
helgar og segir Sigurður sunnu-
daga vanalega vera afar stóra
enda vilji fólk gjarnan vera búið
að versla fyrir vikuna.
Ýmsar nýjungar eru í pípunum
hjá Boxinu, til að mynda er verið
að þróa uppskriftavef þannig að
fólk nálgast uppskriftir og hráefni
í máltíðir annað hvort hluta vik-
unnar eða alla dagana. Með þessu
heyrir höfuðverkurinn yfir því
hvað á að vera í matinn sögunni
til!
Sigurður og Vilhjálmur fyrir
framan bílana sem einfalda
lífið fyrir fjölda viðskipta-
vina á höfuðborgarsvæðinu.
Mynd | Hari
Sænskar netverslanir
fyrir íslenska netverja
Á nýrri vefsíðu á vegum sænska sendiráðsins má tengjast tugum
sænskra verslana sem selja fjölbreyttar vörur á góðu verði.
Unnið í samstarfi við
sænska sendiráðið.
Allir Íslendingar þekkja sænsk vörumerki eins og H&M, IKEA og Polarn & Pyret. Þetta eru þó ekki
einu sænsku verslanirnar sem
selja vandaðar og fallegar vörur
úr fyrsta flokks hráefnum, eins og
Íslendingar í Svíþjóð hafa kynnst.
Sænska sendiráðið á Íslandi hefur
opnað vefgátt sem gerir íslenskum
kaupendum auðveldara að kaupa
vörur gegnum sænskar netversl-
anir.
Vefgáttin www.saenskarnet-
verslanir.is er fyrst og fremst
þjónusta fyrir Íslendinga sem vilja
versla við sænskar netverslan-
ir en einnig er hún mikilvæg fyrir
verslanir og hönnuði í Svíþjóð sem
vilja koma vörum sínum og úrvali
á framfæri við Íslendinga. Vefur-
inn er í boði sænska sendiráðsins
á Íslandi og er frí þjónusta fyrir
kaupendur og seljendur. Liselotte
Widing er sérfræðingur sem
starfar í sendiráðinu og hún hafði
frumkvæðið að þessu verkefni.
„Íslendingar eru afskaplega
óhræddir að gera innkaup gegnum
netið, en því miður er ekki óal-
gengt að erfiðlega gangi að panta
til Íslands. Þar sem okkar markmið
í sendiráðinu er meðal annars að
kynna sænskar vörur og sænska
framleiðslu fannst okkur kjörið að
benda sænskum fyrirtækjum á ís-
lenska markaðinn og gera íslensk-
um neytendum það kleift að kaupa
sænskar vörur gegnum netið,“
segir Liselotte um tilurð vefsins og
bætir við: „Á vefgáttinni getur þú
tengst tugum sænskra verslana
sem selja heimsfræga hönnun, föt
fyrir börn og fullorðna, snyrtivörur,
hestavörur á góðu verði, skartgripi
og margt, margt annað.“
Meðal verslana má nefna
skemmtilegu sokkabúðina Happy
Socks, en einnig sígild fyrirtæki
eins og Klässbols linneväveri sem
býr yfir langri hefð í að vefa lín-
vörur í hæsta gæðaflokki, meðal
annars til sendiráða Svíþjóðar víðs
vegar um heiminn og fyrir hina
glæsilegu Nóbelsverðlaunahátíð,
og Skultuna, eitt elsta fyrirtæki í
heimi sem hefur hannað og fram-
leitt vörur úr látúni í hæsta gæða-
flokki í 400 ár en verksmiðja fyrir-
tækisins í Skultuna er meðal mest
sóttu ferðamannastaða Svíþjóðar.
Á saenskarnetverslanir.is er einnig
að finna tískuhönnuði eins og Ann
Louise Landelius og Gudrun Sjög-
ren og fyrirtæki sem bjóða upp á
þekkt alþjóðleg vörumerki eins og
Armani, Givenchy, Hugo Boss og
Missoni. Flestar selja vörur sínar
án virðisaukaskatts til Íslands.
Athugið þó að sum fyrirtæki birta
ekki verð án virðisaukaskatts fyrr
en í greiðsluferlinu. Önnur fyrir-
tæki veita Íslendingum þess í stað
20% afslátt.
Víst er að margir Íslendingar
munu taka þessari vefgátt opnum
örmum og eyða drjúgum stundum
í að vafra um á saenskarnetversl-
anir.is. Liselotte bendir á að ekki
skemmir fyrir að verðlagið í Sví-
þjóð er það lægsta í Skandinavíu!
Liselotte Widing er sérfræðingur
hjá sænska sendiráðinu og hefur
veg og vanda af vefgáttinni.
Myndir | Hari
Nokkur dæmi um vandaðar
og fallegar vörur sem fást á
saenskarnetverslanir.is
Dalahesturinn og sænska landsliðið eru stolt frænda okkar.