Fréttatíminn - 10.03.2017, Síða 6
6 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 10. MARS 2017
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
T E M P U R ® O R I G I N A L | T E M P U R ® C L O U D | T E M P U R ® S E N S A T I O N
V I Ð R Ý M U M F Y R I R N Ý J U M G E R Ð U M
A F T E M P U R D Ý N U M O G S E L J U M
E L D R I G E R Ð I R Þ V Í M E Ð
30–50%
A F S L Æ T T I
R ÝM I N G A R
S A L A
Umhverfismál Orri Vigfússon
framkvæmdastjóri NASF, Verndar-
sjóðs villtra laxastofna undrast
að Úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála skuli ekki taka
afstöðu til kæru samtakanna á úr-
skurði Skipulagsstofnunar um að
ekki þurfi að gera nýtt umhverfis-
mat vegna áhrifa Hvammsvirkj-
unar í Þjórsá á vatnalíf og vatnafar
í ánni. „Við gerðum mjög ítarlega
grein fyrir röksemdum að baki
kærunni og það eru liðnir 13 til 14
mánuðir án þess að ég sé virtur
svars,“ segir hann.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Nanna Magnadóttir formaður úr-
skurðarnefndarinnar segir að mörg
mál þurfi að bíða og biðin geti orðið
allt að átján mánuðir. „Hann fékk
ekki tilkynningu um að málið tefð-
ist vegna anna hjá nefndinni. Það
eru bara mannleg mistök. Ég veit
að þetta er erfitt en hér eru mörg
mál sem þarf að leysa og fátt fólk
að vinna. Þetta er stórt og viða-
mikið mál og gæti tekið nokkura
mánuði í viðbót. Hvammsvirkjun
er þó að hluta í matsferli eftir úr-
skurð Skipulagsstofnunar og það er
því ekki verið að gefa leyfi til fram-
kvæmda á meðan.“
Enn er deilt um þrjár virkjanir í
neðrihluta Þjórsár, Hvammsvirkjun
við mynni Þjórsárdals, Holtavirkj-
un og Urriðafossvirkjun. Orri seg-
ir að raunverulegt umhverfismat á
áhrifum virkjananna hafi aldrei far-
ið fram Samantektin frá 2001-2003
sé löngu úrelt. „Hvammsvirkjun er
komin lengst á veg, hún er komin
í nýtingarflokk og það hefur verið
gefið grænt ljós á framkvæmdir þar
Orri Vigfússon
er ósáttur við
málshraðann
hjá umhverf-
is- og auð-
lindanefnd.
Orri segist ekki virtur svars
Nanna Magnadótt
ir segir að vegna
mannlegra mistaka
hafi Verndarsjóði
villtra laxastofna ekki
verið greint frá því að
málið myndi tefjast.
Ásta Pétursdóttir
fjölskyldumeðferðar
fræðingnur treysti
sér ekki til að starfa
lengur þar sem ekki
fengust svör um
framtíð fjölskyldu
ráðgjafarinnar.
þótt ljóst sé að laxastofnar í ánni
verði fyrir óbætanlegum skaða,“
segir Orri.
Orri bendir á að á loftslagsráð-
stefnunni í París í desember hafi
mjög verið haldið á lofti nýlegum
upplýsingum um þann mikla skaða
sem vatnsaflsstíflur valdi lífríkinu.
Skipulagsstofnun hafi í úrskurði
sínum látið blekkjast af málatilbún-
aði og rangfærslum þeirra sem hafi
hagsmuni af því að reisa virkjanir
á svæðinu en ekki haldið sig við þá
ótvíræðu niðurstöðu sem sérstak-
ur faghópur verkefnastjórnar um
rammaáætlun komst að um að engri
óvissu um afdrif laxa í Þjórsá hafi
verið eytt. Sú niðurstaða sem hefði
með réttu átt að liggja til grundvall-
ar úrskurði Skipulagsstofnunar.
Heilbrigðismál „Ég hef mikið verið
spurð um framtíð fjölskylduráðgjaf-
arinnar eftir að það fór að fréttast að
ég væri að láta af störfum en hef ekki
getað svarað því þar sem engin svör
er að fá frá yfirmönnum. Ég skrif-
aði bréf til framkvæmdastjórnar og
bað um svör um hvort það stæði til
að leggja fjölskylduráðgjöfina niður,
ég fékk eitt svar, þar sem stóð, „takk
fyrir bréfið.“ Ég leyfi mér samt að
vona að það þessi þjónusta haldi
áfram,“ segir Ásta Pétursdóttir
fjölskyldumeðferðarfræðingur.
Hún segir að fjölskylduráðgjöf-
inni sé smám saman skipt út fyrir
sálfræðiþjónustu, það hafi verið ráð-
inn yfirsálfræðingur sem hafi verið
settur yfir fjölskylduráðgjöfina. „Það
var afar sérstakt því nálgunin er ger-
ólík. Þetta lítur út eins og bæta eigi
þjónustu við einn hóp en draga úr
þjónustu við annan. „Það var mikið
tilhlökkunarefni að fá sálfræðiþjón-
ustu á stöðina en það kemur ekki í
staðinn fyrir þessa þjónustu.“
Karólína Stefánsdóttir félagsráð-
gjafi var í forsvari fyrir þjónustuna
sem yfirfjölskylduráðgjafi frá upp-
hafi, ásamt Hjálmari Freysteinssyni
yfirlækni. Hún segir að ljósmæður,
hjúkrunarfræðingar, læknar, sál-
fræðingar og félagsráðgjafar hafi
komið að því að móta starfsemina
frá upphafi og áherslan hafi verið á
gagnkvæma virðingu milli ólíkra fag-
stétta. Áherslan hafi verið á tengsla-
myndun í frumbernsku og gripið
hafði verið inn í fyrr en ella ef bera
fór á fæðingarþunglyndi. Starfið hafi
þó verið á breiðum grunni og í raun
tekið til vandamála sem koma upp
í fjölskyldum grunn- og leikskóla-
barna. Einstæðir foreldrar hafi samt
verið í forgrunni.
Karólína lét hinsvegar af störfum
fyrir tæpu ári vegna veikinda. Ásta
Pétursdóttir tók þá við sem staðgeng-
ill hennar en hún starfaði áður við
tengslamyndun hjá fjölskylduráð-
gjöfinni. Auglýsa átti stöðuna fyrir
áramót en það var ekki gert. „Þetta
byrjaði allt með nýjum yfirlækni sem
kom árið 2013, þá fór að anda köldu
gagnvart þessari þjónustu,“ seg-
ir Karólína. „Það er í raun og veru
verið að leggja þetta niður hægt og
hljóðlega.“
„Ekkert forvarnarstarf getur
komið í staðinn fyrir tengsl í frum-
bernsku. Það er hræðilegt að horfa á
þetta starf lagt í rúst vegna hroka og
yfirgangs nokkurra karla sem vilja
spara peninga með því að innleiða
hugræna atferlismeðferð sem trúar-
brögð og ætla nú að útrýma öllum
öðrum aðferðum þótt þær hafi gef-
ist vel..“
Í þjónustukönnun sem Háskólinn
á Akureyri birti árið 2013 kom fram
að 78 prósent skjólstæðinga Fjöl-
skylduráðgjafarinnar og Nýja barns-
ins, höfðu haft gagn af þjónustunni.
75 prósent voru ánægðir. Óánægjan
var helst með langa bið eftir viðtölum
við ráðgjafa.
Fjölskylduráðgjöfin hefur haft
tveimur stöðugildum á að skipa en
skömmu fyrir hrun var ákveðið að
fjölga þeim í þrjár. Það dróst hins-
vegar vegna efnahagsástandsins.
Karólína bendir á að fjölskylduráð-
gjöfin hafi misst mikilvægan bakhjarl
þegar heilsugæslan fór alfarið und-
ir ríkið haustið 2014. Hún sé núna
hluti af stórri stofnun sem heyri beint
undir ráðherra. „Ég sendi ákall fyr-
ir hönd samráðshóps um starfsem-
ina til bæjarstjórans, landlæknis og
ráðherra heilbrigðismála árið 2013
þegar það var farið að fjara undan
okkur. Við fengum engin svör þá en
bæjarstjórinn bað mig síðar afsökun-
ar haustið 2014 á að ekki hefði verið
brugðist við. Hann sagðist þá vilja fá
að vita strax ef það væri ekki hlúð
að fjölskylduráðgjöfinni. Ég hef því
beðið hann um aðstoð núna.“
30 ára uppbyggingarstarf
á Akureyri í uppnámi
Heilbrigðismál Starfsemi fjölskylduráðgjafar Heilsugæslunnar á Akureyri
er í mikilli óvissu eftir að yfirmaður hennar hætti störfum. Ástæðan er
deilur um framtíð starfseminnar sem er 30 ára gamalt þjónustverkefni
sem gengur út á þverfaglega aðstoð við fjölskyldur í vanda og hjálp
við tengslamyndun í fjölskyldum kornabarna. Verkefnið hefur vakið
athygli langt út fyrir landsteinana og fékk sérstaka viðurkenningu frá
Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni árið 1997.
„Ekkert forvarnarstarf
getur komið í staðinn
fyrir tengsl í frumbernsku.
Það er hræðilegt að horfa
á þetta starf lagt í rúst
vegna hroka og yfirgangs
nokkurra karla sem vilja
spara peninga með því að
innleiða hugræna atferl-
ismeðferð sem trúarbrögð
og ætla nú að útrýma öll-
um öðrum aðferðum þótt
þær hafi gefist vel..“
Karólína Stefánsdóttir félagsráðgjafi
sem er lengst til hægri á myndinni seg-
ir hræðilegt ef hroki nokkurra karla
leggi starfsemina í rúst. Á myndinni
er Sigurbjörg Haraldsdóttir ritari og
fulltrúi Fjölskylduráðgjafarinnar
og Jiri Berger, fjölskylduráðgjafi og
sálfræðingur.