Fréttatíminn - 10.03.2017, Blaðsíða 54
Unnið í samstarfi við Curvy.
Það er algengur misskiln-ingur að svart grenni og klæði af aukakíló,“ segir Fríða Guðmundsdóttir, eigandi verslunarinn-
ar Curvy. „Þetta snýst allt um að
finna snið sem hæfa vaxtarlaginu
og klæðast litum eða munstrum
sem að vinna vel með okkar lín-
um.“
Curvy dásamar mjúkar línur og
er með puttann á púlsinum þegar
kemur að því hvað er að gerast í
tískuheiminum.
„Á Íslandi hefur lengi gerst að
stelpur með mjúkar línur gleym-
ist þegar kemur að tískufatn-
aði í stærri stærðum. Því rætt-
ist ósk þeirra þegar Curvy fann
frábær vörumerki sem framleiða
tískufatnað í stærri númerum
svo allar konur geti notið þess
að klæða sig fallega, óháð aldri,“
segir Fríða sem einnig á glæsilega
kjóla á mæður fermingarstúlkna
sem hún segir oft vilja líka „skvísa
sig upp“ fyrir fermingardaginn.
„Það sem hefur verið áberandi
vinsælast fyrir fermingardaginn
eru blúndur, hvíti liturinn er mjög
vinsæll í ár og
aðrir mjúkir
pasteltón-
ar. Ég
hvet
stelpurn-
ar til að vera
óhræddar við
að máta því
útkoman kem-
ur oft ánægju-
lega á óvart.
Litir geta til
dæmis gjör-
breytt út-
litinu, frískað
upp litaraftið,
gert augun bjartari
og um leið fer fólk að taka
eftir öðru en holdafarinu,“
segir Fríða. „Okkur finnst ekkert
eins skemmtilegt og að aðstoða
stelpurnar við að finna á sig réttu
sniðin og fötin sem henta þeim
best.“
Fríða segir fermingarkjóllinn
ekki eiga að vera
málamiðlun
og að stelpur
eigi ekki að
sætta sig við
að klæðast því
skásta sem
þær finna.
„Sjálf átti ég
í miklum erfið-
leikum með að
finna ferm-
ingarkjól á sín-
um tíma því
lítið var í boði
fyrir stelpur
í stærð-
um 14
og yfir.
Því var
farið búð úr búð en ekkert fannst
í hefðbundnum tískuverslunum og
það hjálpaði ekki sjálfstraustinu.“
Fríðu finnst miklu skipta að
stelpum sem koma í Curvy líði vel
í fötum sínum, séu ánægðar með
sig og fari sáttar út.
„Það er einstaklega gefandi að
sjá stelpurnar ljóma þegar þær
loks finna föt á sig. Jafnvel þótt
maður sé með einhver aukakíló
þýðir það ekki að maður geti ekki
verið flottur. Ég finn það bara sjálf
þegar ég hef tekið mig aðeins til
og er komin í föt sem klæða mig
vel. Þá líður manni svo miklu betur
með sjálfan sig. Það er öfundsvert
að líða vel í eigin skinni, burtséð
frá holdafari, og slíkt sjálfstraust
er aðlaðandi og skín í gegn.“
Verslun Curvy er staðsett í
Fákafeni 9 og einnig er hægt að
skoða og panta í gegnum net-
verslun www.curvy.is
Fríða Guðmundsdóttir, eigandi Curvy, segir að fermingarkjóllinn eigi ekki að vera
málamiðlun. Fríða, til vinstri, er hér með Völu starfsmanni verslunarinnar. Mynd | Hari
Mikilvægt að líða vel
í fermingarkjólnum
Í Curvy fást föt fyrir fermingarstúlkur af öllum stærðum.
FERMINGARDAGURINN MINN
Veiktist af kransakökunni
Jón Atli Jónasson beið þess að fermingadagurinn liði
svo hann kæmist út á vídeóleigu.
Jón Atli Jón-
asson átti eft-
irminnilegan
fermingardag
árið 1984.
Hvar og hvenær fermdist þú?
„Ég fermdist árið 1984 í Dómkirkjunni.“
Hvað fékkstu í fermingargjöf?
„Ég fékk Ajungilak svefnpoka í fermingargjöf sem ég
ældi svo yfir seinna um kvöldið.“
Í hverju varstu á fermingardaginn?
„Ég var með appelsínugult bindi og hálsklút í ferm-
ingarfötum úr Karnabæ.“
Er eitthvað sérstaklega eftirminnilegt við ferminguna
þína?
„Ég man að dagurinn snerist meira og minna um að
bíða eftir því að komast út á vídeóleigu. Ég hafði pant-
að Eraserhead og endaði fermingardaginn stútfullur af
kransaköku fyrir framan sjónvarpið og kastaði upp yfir
nýja svefnpokann.“
18 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2017FERMINGAR