Fréttatíminn - 10.03.2017, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 10.03.2017, Blaðsíða 28
28 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 10. MARS 2017 my style Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 Netverslun á tiskuhus.is My Style - Tískuhús Stærðir 38-52 Flott föt, fyrir flottar konur kr. 4.990 kr 7.990 Það er mikill metnaður í liðinu og þær eru byrjaðar að æfa klappstýrupíramýda. Mynd | Hari Ósk Tryggvadóttir safnaði saman stelpum í íslenskt klappstýrulið sem hefur fengið nafnið Valkyrjur. Þær hafa verið í stífum æfingum síðustu vikur en fyrsta sýningin er á laugardag. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@frettatiminn.is Á Íslandi hefur verið starf-rækt amerískt fótboltalið um nokkurt skeið, sem kallast Einherjar. Og þar sem ekkert almennilegt fótboltalið getur verið án klapp- stýra, þá tók Ósk Tryggvadóttir sig til í byrjun árs og stofnaði klapp- stýruliðið Valkyrjur. Fyrsta giggið er á laugardaginn og spenningurinn er orðinn mikill. Nokkrir strákar úr vinahóp Óskar eru í Einherjum og hún stakk einu sinni upp á því við þá að hún myndi hóa saman í klappstýrulið eins og í Ameríku. Það varð hins vegar ekk- ert úr því fyrr en hún fór að hitta strák úr liðinu sem hvatti hana til að hrinda hugmyndinni í framkvæmd. „Ég lét vaða í byrjun janúar og byrjaði að safna saman stelpum. Það gekk miklu betur en ég bjóst við. Við ákváðum að nefna okkur Valkyrjur og erum búnar að æfa saman dans frá því í byrjun febrúar til að sýna í hálfleik 11. mars á leik Einherja og þýska liðsins Starnberg Argonauts,“ segir Ósk sem er stolt af væntanlegri sýningu, enda hafa æf- ingar gengið framar vonum. „Þetta eru allt fyrrverandi dansarar eða fimleikaskvísur svo við höfum allar góðan bakgrunn. Ég var til dæmis í fimleikum í átta ár.“ Stelpurnar í Valkyrjum eru á aldr- inum 18 til 20 ára og æfa saman þrjá til fjóra daga í viku, stundum tvisvar á dag, svo þetta er nokkuð mikil vinna, en algjörlega þess virði, að sögn Óskar. Ráðgert er að þær dansi við fjögur lög meðan á leikhléi stendur. Ósk samdi einn dansinn sjálf, en hinir dansarnir fæddust í samvinnu. Og auðvitað verða þær í viðeig- andi klappstýrubúningum, sem eru að detta í hús. „Við fengum sér- hannaða búninga frá Henson, en fyrirmyndin er búningar hjá NFL klappstýrunum. Pils sem sveiflast og síðerma magabolir. Við erum með númerin hjá strákunum aftan á bolunum. Svo bjuggum við sjálfar til pompoms sem kom mjög vel út.“ Aðspurð hvort stelpurnar séu að slá sér upp með strákunum í liðinu, eins og við þekkjum úr bandarísk- um bíómyndum, segir Ósk það ekki enn farið að gerast. En hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér. „Það gæti vel gerst,“ segir hún sposk, enda góð stemning í hópnum og vinskapur á milli klappstýra og liðs- manna. En það er ekki auðvelt að vera klappstýra og stelpurnar leggja hart að sér. „Þetta er rosa erfitt en góð hreyfing. Á laugardaginn var feng- um við fimleikadansþjálfara til að fínpússa dansinn hjá okkur og það var alveg fjögurra tíma danskeyrsla. Við vorum allar dauðar eftir það, en stelpurnar eru mjög metnaðarfullar og ég er ótrúlega ánægð með þær.“ Á sýningunni á laugardag munu Valkyrjur sýna allskonar listir, en hinn klassíski klappstýrupíramýdi þar sem þær fara upp á axlirnar hver á annarri, bíður betri tíma. „Við erum byrjaðar að æfa hann, en erum ekki komnar alveg nógu langt. Okkur gengur samt mjög vel með það.“ Ósk segir áhugann á klappstýru- liðinu vera töluverðan og liðið verð- ur með prufur fyrir nýja meðlimi eftir leikinn á laugardaginn. „Við fengum sér- hannaða búninga frá Henson, en fyrirmyndin er búningar hjá NFL klappstýrunum.“ Frítt er inn á allar sýningarnar og eru þær með enskum texta fyrir þá sem eru ekki nægilega sleipir í Norð- urlandatungumálunum. Dagskrána má finna á vefsíðu Norræna hússins og þar er líka hægt að bóka miða. Hér eru fimm forvitnilegar myndir sem sýndar eru á hátíðinni. Underdog „Við hugsum um Noreg sem þroskahamlaða frænda okkar sem vann lottó- ið.“ Segir hin sænska Dino í kvikmyndinni Underdog. Kvik- myndin fjallar um sænska innflytj- endur í Noregi en eftir efnahag- skreppuna í Svíþjóð á 10. áratug síðustu aldar, hafa ótal Svíar farið yfir landamærin til Noregs og unnið þar við ýmis þjónustustörf og þrif. The Perfect Selfie Þekkjum við raunverulega fólk- ið hinumegin við skjáinn? Hin fullkomna sjálfa er góð sunnudagsmynd enda er hún sýnd kl. 5 á sunnu- daginn. Kvikmyndin sem er finnsk er nútímaleg uppvaxtarsaga finnsku instagram stjörnunnar Olivia Oras. Áhorfandi fylgist með lífi Oli- viu í eitt ár og sýnir augnablikin sem hún deilir ekki með aðdá- endum sínum á ver- aldarvefnum. Góð ádeila á öld ljósvaka. The Human Scale Hér er um að ræða heimildarmynd eftir leikstjórann Andr- eas Møl Dalsgaard. Kvikmyndin er ádeila á líf manns- ins í borgarsam- félaginu. Danski arkitektinn Jan Gehl hefur nefni- lega rannsakað líf mannsins í borgum í 40 ár og skjalfest hvernig nú- tíma borgin hindrar mannleg samskipti. Raunveruleikinn ber á dyr. Pétur og úlfurinn Hér er þessi sígilda saga sögð í teiknimynd eftir leik- stjórann Suzie Templeton. Ljúfir tónar sem allir þekkja fá áhorfandann til þess að lifa sig enn frekar inn í teiknimyndina. Myndin er sýnd kl. 2 á sunnudaginn og því er til- valið að mæta með yngri kynslóðina. Hinsvegar er 7 ára aldurstakmark þar sem úlfurinn getur verið örlítið ógnandi. Dugma: The Button Hér er um að ræða norska heimildarmynd sem frum- sýnd var á síðasta ári. Kvikmyndin er nokkuð umdeild en margverð- launuð en hún byggir á viðtölum við ólíkan hóp einstaklinga sem eiga það sameiginlegt að vinna fyrir Al Qaeda í Sýrlandi. | bsp Frítt í bíó Norræn kvikmynda­ hátíð stendur í Norræna húsinu til 15. mars og því tilvalið að skella sér á eina kvikmynd um helgina. The Human Scale. Underdog. Pétur og úlfurinn. Þvottadagar Tekur 7 kg af þvotti. 1200 sn. Öll hugsanleg þvottakerfi. Íslensk notendahandbók. Verð áður: 89.900,- Verð nú: 71.920,- 914913404 Topplaus gerð undir borðplötu. Áður: 109.900,- Nú: 87.920,- 911444363 Tekur 7 kg af þvotti. Áður: 99.900,- Nú: 79.920,- 916097949 20% þurrkari uppþvottavélþvottavél LÁGMÚLA 8 - SÍMI 530 2800ORMSSON.IS & UMBOÐSMENN UM LAND ALLT 20% 20% Íslenskar klappstýrur með metnað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.