Fréttatíminn - 10.03.2017, Blaðsíða 42
FÖSTUDAGUR 10. MARS 20176 FERMINGAR
Skartgripur með táknræna merkingu, seldur til
styrktar blindum og sjónskertum á Íslandi.
Íslenskt handverk. Fæst um land allt.
Þríkrossinn
Stuðningur til sjálfstæðis
Karrýsúpa
3 msk. grænmetiskraftur
3 msk. kjúklingakraftur
3 msk. tómat puré
3 msk. karrý, ekki sterkt
1 lítri vatn.
Þetta er soðið saman í u.þ.b. 25
mínútur og þá er tveimur pökkum
af maísena sósujafnara skellt út í
og hrært saman þar til það verður
að þykkum graut. Kælt.
Þá er að laga sjálfa súpuna.
Ein msk. af þessum grunni er fyrir
eina manneskju, svo þú tekur eins
mikið af grunni og þú þarft, en
allur þessi grunnur dugar fyrir 30
manns.
Síðan setur þú grunn, ananaskurl
og rjóma saman í pott og hitar,
setur síðan allt það grænmeti sem
þú vilt og skelfisk eða kjúkling
líka.
Hitar allt upp að suðu nema ef þú
ert með hráan kjúkling þá læturðu
sjóða í u.þ.b. 10 mínútur.
Súpan tilbúin.
Mælt er með að setja frosna
brokkolí blöndu, frosinn maís,
frosna sveppi, ferskan púrrulauk
og kjúklingabringur í þessa súpu
sem gerir hana að lostæti með
góðu brauði.
Magn miðað við 30 manns
6 dósir af ananaskurli 425 gramma
6 lítrar af rjóma
4 kg kjúklingabringur í smábitum
2 pokar af brokkolí blöndu
2 pokar af maís
4 pokar af sveppum
3 púrrulaukar smátt saxaðir.
Matarmikil
súpa á
veisluborðið
Það eru engar reglur til um hvernig fermingarveisl-
um eða veitingum í þeim skal háttað. Sumir halda
kaffiboð en aðrir bjóða til dögurðar. Verði síðar-
nefndi kosturinn fyrir valinu er ekki galið að bjóða
upp á matarmikla súpu.
Heimild: Kirkjan.is.
Ungversk gúllassúpa
Magn miðað við
6-8 manns
600 g nautagúllas
3 msk. ólífuolía
400 g hráar kartöflur
3 stk. laukar
6 stk. hvítlauksrif
2 stk. rauðar paprikur
2 dósir tómat puré
6 dl vatn
4 dl mjólk
1 tsk. oregano
1 tsk. kúmen (fræ)
3 tsk. paprikuduft
salt og svartur pipar
1 dós sýrður rjómi 18%
Aðferð:
Takið stóran pott og
brúnið kjötið í honum
í olíunni smá stund og
bætið þá við söxuðum
lauk og hvítlauk, svissið í
smá stund í viðbót.
Látið kartöflur í tening-
um, papriku í teningum,
tómat puré og kryddið
út í og vatnið. Hrærið vel
saman og látið sjóða í
u.þ.b. 40 mínútur, eða þar
til kjötið er orðið meyrt.
Bætið mjólkinni saman
við og látið malla í u.þ.b.
10 mínútur í viðbót.
Berið fram með sýrðum
rjóma og steinselju ef vill.
Frábær gjöf fyrir
dömur á öllum aldri
Fáanleg í 12 litum
í fullorðins- og barnastærð.
Nánar um sölustaði á facebook
Helstu útsölustaðir í Reykjavík
Allar sundlaugar, Apótekarinn Mjódd,
Borgarapótek, Lyf og heilsa; JL húsi,
Kringlu og Austurveri, Snyrtivöru-
búðin Glæsibæ, Mistý, Lyfjaver,
Reykjavíkur Apótek, Árbæjarapótek,
Urðarapótek, Balletbúðin Arena.
Netverslanir Aha.is, Heimkaup,
Krabbameinsfélagið og Netsöfnun.