Fréttatíminn - 10.03.2017, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 10.03.2017, Blaðsíða 16
16 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 10. MARS 2017 Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Arðgreiðslur einkarekna lækningafyrirtækisins Stoðkerfa ehf. í Orku-húsinu á Suðurlands-braut nema samtals 327 milljónum króna á árunum 2008 til 2015. Fyrirtækið er í eigu tuttugu lækna, aðallega bæklunar- lækna, og sérhæfir sig í bæklunar- skurðaðgerðum sem ekki krefjast innlagnar á legudeild yfir nótt eða lengri tíma. Arðgreiðsla til hvers læknis - allir eiga 5 prósent í fyr- Klíníkurmálið snýst um það grundvallaratriði hvort einkafyrirtæki eigi að reka sjúkrahús á Íslandi og hvort einkaaðilar eigi að geta hagnast á slíkri sjúkrahúsþjónustu sem fjármögnuð er með skattfé. Óttarr Proppé hefur ekki enn gert upp hug sinn um hvort hann heimili opnun fyrsta einkarekna sjúkrahússins. Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands gefur hins vegar sterklega í skyn að Óttarr hafi í hyggju að samþykkja beiðnina. irtækinu - yfir umrætt tímabil er því rúmlega sextán milljónir króna eða um tvær milljónir á ári. Á sama tímabili hefur hagnaður Stoðkerfa ehf. numið 348 milljónum. Stór hluti hagnaðarins er því tekinn út sem arður. Þjónusta Stoðkerfa ehf. er því arðsöm og skilar hagnaði og dálitlum arði til hvers hluthafa ár eftir ár. Arðgreiðslur af ríkisfjármagnaðri þjónustu Þjónusta Stoðkerfa ehf. er að stærstu leyti kostuð af samning- um sem læknar stofunnar eru með við Sjúkratryggingar Íslands og þar með íslenska ríkið. Þess konar að- gerðir sem Stoðkerfi ehf. gera voru áður gerðar á Landspítalanum og tekur fyrirtækið, sem er stærsta einkarekna bæklunarskurðað- gerðafyrirtæki landsins, því við fólki sem ellegar hefði á sínum tíma þurft að leita til Landspítal- ans. Fyrirtækið hefur verið starf- andi í 20 ár og gerir um 4500 aðgerðir á ári, mest krossbanda- aðgerðir og handa- og fótaaðgerðir ýmis konar. Engar reglur gilda um það á Ís- landi hversu mikinn arð einkarek- in heilbrigðisfyrirtæki, sem fjár- mögnuð eru með skattfé, mega greiða út sem arð og sýnir rekstr- arsaga Stoðkerfa ehf. að rekstur slíkra fyrirtækja getur verið góð- ur og arðbær. Arðgreiðslur út úr einkareknum heilsugæslustöðv- um á höfuðborgarsvæðinu eru hins vegar bannaðar samkvæmt ákvörðun sem Kristján Þór Júlíus- son heilbrigðisráðherra tók á síð- asta kjörtímabili. Í Svíþjóð hefur síðastliðin ár farið fram mikil umræða um það hvort setja eigi reglur á arðgreiðsl- ur út úr einkareknum heilbrigðis- fyrirtækjum og skólum sem fjár- magnaðir eru með skattfél. Engin niðurstaða er komin um það og er alls ekki víst að slíkt þak verði sett á þessa starfsemi. Sambæri- leg umræða hefur ekki farið fram á Íslandi nema um einkareknu heilsugæslustöðvarnar. Ólíkt starfsemi Klíníkurinnar Fyrirtækið Stoðkerfi ehf. gerir ekki þess konar bæklunarskurð- aðgerðir sem einkafyrirtækið Klíníkin vill nú fá samninga við Sjúkratryggingar Íslands, og þar með ríkið, til að gera. Þar er meðal annars um að ræða aðgerðir eins og mjaðmaskiptaaðgerðir sem krefjast innlagnar á legudeild og þar með veitingu sjúkrahússþjón- ustu sem fyrirtæki eins og Stoð- kerfi ehf. veita ekki. Því má segja að um eðlisólíka starfsemi sé að ræða þar sem þjónusta Stoðkerfa er ekki sjúkrahússþjónusta. Óttarr Proppé heilbrigðisráð- herra þarf að taka ákvörðun um hvort hann telji að Sjúkra- tryggingar Íslands eigi að gera samning við Klíníkina um að rík- ið greiði fyrir aðgerðir á sjúkra- tryggðum einstaklingum hjá Klíníkinni. Óttarr liggur enn undir feldi og ræður ráðum sínum í mál- inu. Birgir Jakobsson landlæknir segir aðspurður að embætti hans vinni að því að taka saman upp- lýsingar um hver biðtíminn er nú eftir einstaka aðgerðum í heil- brigðiskerfinu og hver árangur af biðlistaátakinu í heilbrigðiskerf- inu er. Ráðist var í slíkt átak til að reyna að stytta biðtíma eftir að- gerðum en forsvarsmenn Klíník- urinnar hafa meðal annars sagt að með opnun legudeildar muni bið- tími eftir bæklunarskurðaðgerð- um sem krefjast innlagnar minnka. Birgir segir að þar til niðurstaða úr þeirri skoðun liggi fyrir, og þar til hann hefur rætt málið við ráðherra heilbrigðismála, vilji hann ekki tjá sig um Klíníkurmálið. Hagnaður og arðgreiðslur Stoðkerfa ehf. frá 2008 til 2015 Hagnaður Arður 2015 46 60 2014 46 40 2013 42 40 2012 40 43 2011 32 43 2010 54 35 2009 46 42 2008 42 24 Samtals 348 327 *Hluthafar fyrirtækisins eru 20 talsins, aðallega bæklunarlæknar Engar reglur gilda um það á Íslandi hversu mikinn arð einkarekin heilbrigð- isfyrirtæki, sem fjármögn- uð eru með skattfé, mega greiða út sem arð og sýnir rekstrarsaga Stoðkerfa ehf. að rekstur slíkra fyr- irtækja getur verið góður og arðbær. 327 milljóna arður frá 2008 út úr einkareknu bæklunarlæknafyrirtæki Forstjóri Sjúkra- trygginga Íslands, Steingrímur Ari Ara- son, gefur sterklega í skyn að hann telji að Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra samþykki að stofn- unin geri samning við Sjúkratryggingar Íslands um opnun þess sem Klíníkin, Landspítalinn og Embætti Landlæknis telja fyrsta einka- rekna sjúkrahúsið á Íslandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.