Fréttatíminn - 10.03.2017, Page 8
8 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 10. MARS 2017
Ástandið á leigumarkaðinum er
svakalegt en það er ekkert nýtt,“
segir Jóhann Már Sigurbjörnsson,
formaður Samtaka leigjenda á
Íslandi. Jóhann var í hópi þeirra
sem stofnuðu Samtök leigjenda
árið 2013 til að kalla eftir að-
gerðum fyrir hagsmunahóp sem
stjórnvöld hafa lítið sinnt.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Þegar við stofnuðum samtökin fannst okkur ástandið aldrei hafa ver-ið verra. Þá voru hagnað-ardrifnu leigufélögin að
kaupa upp allar lausar eignir og ef
það var leigjandi fyrir í eigninni þá
var honum boðið að leigja áfram,
en á 30% hærra verði. Við kölluðum
eftir því að komið væri upp leigu-
miðlun og leiguvakt sem gæti fylgst
almennilega með markaðinum. Og
við kölluðum líka eftir breyttum
reglum, einhverskonar aðhaldi á
verðhækkunum eins og gert hefur
verið í nágrannalöndum. En fyrst
og fremst beittum við okkur fyrir
því að stofnun óhagnaðardrifinna
leigufélaga yrði auðvelduð, með
stuðningi stjórnvalda.“
Ekki mikið gerst á fjórum árum
Jóhann Már segir samtökunum
í raun ekkert hafa orðið ágengt á
þeim fjórum árum sem þau hafi ver-
ið starfandi. Fyrst og fremst vegna
þess að þau hafi treyst of mikið á
vinnu fyrrverandi húsnæðismála-
ráðherra, Eyglóar Harðardóttur.
„Hefði einhverju þessara mála
sem við settum á dagskrá verið ýtt
af stað þá hefðum við væntanlega
meira byggingarmagn fyrir þennan
hóp í dag. Við tókum þátt í nefnd
á vegum Eyglóar sem vann ágæt-
is verk og það kom ágætis skýrsla
út úr því en svo þegar frumvörp-
in komu var ekki tekinn nema lítill
hluti úr skýrslunum. Á endanum
gáfumst við upp á sinnuleysinu og
getuleysinu. Það er búið að draga
samtökin okkar á asnaeyrum í mörg
ár. Hegðun stjórnvalda í þessum
málum er forkastanleg. Eygló lof-
aði öllu fögru en það tók hana þrjú
og hálft ár að koma fram með frum-
vörp sem gera því miður ekki mikið
gagn. Eitt þessara frumvarpa henn-
Jóhann Már Sigurbjörnsson hafði hugsað sér að vera áfram á leigumarkaði en eftir að hafa ítrekað misst íbúðir og hrakist
á milli hverfa með fjölskylduna ákváðu þau hjónin að fjárfesta í lítilli íbúð í Árbænum fyrir skömmu. Hann er því að hætta
sem formaður Samtaka leigjenda. Mynd | Hari
Þurfum neyðarlög
um húsnæðismál
Tæki
Ryksugur
Orkuflokkur A. Útblástur B. Parkett
og flísar, flokkur A. Teppi, flokkur D.
Fullt verð: 20.900 kr.
Tækifærisverð (vínrauð): BGL 25MON6
14.900 kr.Blandari
350 W mótor. „ThermoSafe“-hágæða
gler sem þolir heita og kalda drykki.
Flöskur fylgja með („2Go“).
Fullt verð: 19.900 kr.
Tækifærisverð: MMBM 7G3M
15.900 kr.
Hrærivél
Hrærir, hnoðar og þeytir. Fyrir-
ferðarlítil og öflug. 500 W. Fjögur
hraðastig.
Fullt verð: 17.900 kr.
Tækifærisverð: MUM 4405
12.900 kr.
Tækifæri
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
NEYÐARÁSTAND Í
HÚSNÆÐISMÁLUM
Eftirspurn eftir leiguíbúðum er margfalt meiri en framboðið og leiguverð hefur hækkað svo mikið að fólk í fullri vinnu
ræður ekki við það. Enn erfiðari eru aðstæður einstæðra foreldra, þeirra sem eru með skertar tekjur eða í námi.
Fréttatíminn hefur á undanförnum mánuðum rætt við fjölmarga sem fá ekki íbúðir á leigu, eru uppá aðra komnir og
vita ekki hvar þeir eiga að búa. Hér birtast viðtöl við nokkra þeirra og viðbrögð ráðmanna við aðstæðum þeirra.
ar, Bjarg, er nýfarið af stað en það
er hugsað fyrir tekjulága á vinnu-
markaði. Vandamálið er að það búa
fleiri við slæman húsnæðiskost en
tekjulágir. Annað hefur ekki komið
úr allri þessari vinnu. Stóru hagn-
aðardrifnu leigufélögin halda áfram
að kaupa allt upp, á síðasta ári voru
það um 1300 íbúðir á höfuðborgar-
svæðinu.“
Lausnirnar eru til
Jóhann Már segir þá staðreynd að
stór hópur fólks finni sér ekki þak
yfir höfuðið, hvorki til leigu né
kaups, sé staða sem hafi verið auð-
velt að sjá fyrir, líkt og aðrir hafi
bent á.
„Við erum búin að vara við þessu
frá stofnun félagsins. Það er slegist
um allar lausar íbúðir og allir tala
um að það verði að byggja meira.
En stóru leigufélögin kaupa enn
upp allar íbúðir. Það er auðvitað
ekkert sem bannar þeim það, alla-
vega ekki á meðan ekkert er gert í
því. Við hjá Samtökum leigjenda
teljum nauðsynlegt að koma á
neyðarlögum þar sem fjársterkum
félögum er einfaldlega ekki heimilt
að kaupa á markaði á meðan fram-
boðið á honum er í sögulegu lág-
marki.“
„Það er furðulegt að hér geti
stjórnvöld ekki gert neitt því lausn-
irnar eru til. Það er svo langt síðan
að nágrannalöndin lentu í þessu
að þau hafa löngu gert ráðstafan-
ir. Holland er gott dæmi því þar er
mjög heilbrigður leigu-og séreigna-
markaður. Hátt í 50% íbúða eru á
leigumarkaði og um 30% þeirra
eru í óhagnaðardrifnum leigufé-
lögum, og það er einmitt það sem
við höfum verið að kalla eftir síðan
við stofnuðum félagið.“
Sjálfur nýbúinn að kaupa íbúð
Jóhann hafði hugsað sér að vera
áfram á leigumarkaði en eftir að
hafa ítrekað misst íbúðir og hrak-
ist á milli hverfa með fjölskylduna
ákváðu þau hjónin að fjárfesta
í lítilli íbúð í Árbænum fyrir
skömmu. Hann er því að hætta sem
formaður samtakanna.
„Fyrir utan að framboðið er ekk-
ert þá þarf núna í flestum tilfellum
að afhenda leigusala launaseðla
og sakavottorð. Leigusalinn get-
ur verið hver sem er og mér finnst
bara ekkert þægilegt að gefa þessar
upplýsingar upp til hvers sem er.
Og svo velja leigusalarnir þá sem
þeir telja líklegasta til að standa
skil á leigu og ganga vel um íbúðina
og barnafólk er ekkert ofarlega á
lista. Ég man eftir einni auglýsingu
á þriggja herbergja íbúð í Garðabæ
þar sem stóð: Vinsamlegast ekk-
ert barnafólk,“ segir Jóhann Már
en Samtök leigjenda hafa einmitt
bent umboðsmanni barna á er-
lendar rannsóknir sem sýna slæm
áhrif tíðra flutninga á börn. Jóhann
segir hag sinna eigin barna í raun
hafa gert útslagið þegar ákvörðun-
in um kaup voru tekin. Þau hjónin
hafi flutt allt of oft á of fáum árum
en nú séu börnin orðin of stór til
að þola ástandið. „Við byrjuðum á
að búa í Bryggjuhverfinu í Grafar-
vogi, fórum svo í Bólstaðarhlíð, svo
í Ártúnið, svo í Hraunbæ og þaðan
í Mosfellsbæ og nú erum við komin
aftur í Hraunbæinn. Þetta er bara
á sex árum svo yngsta barnið mitt
er búið að vera í skólum í fjórum
hverfum. Yfirleitt hafa leigusalarn-
ir gefið það í skyn að leigan sé til
langtíma og að húsnæðið sé alls
ekki á leið í sölu, en svo hefur það
alltaf verið sett á sölu. Það voru
mikil slagsmál að fá þessa íbúð en
það hófst sem betur fer. En það eru
ekki allir svo heppnir.“
„Við erum búin að vara
við þessu frá stofnun fé-
lagsins. Það er slegist um
allar lausar íbúðir og allir
tala um að það verði að
byggja meira.