Fréttatíminn - 10.03.2017, Blaðsíða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 10. MARS 2017
ÞINN AÐGANGUR AÐ
MENNINGARLÍFI BORGARINNAR
UPPLIFUN,
INNBLÁSTUR
OG NÝ ÞEKKING
ALLA DAGA ÁRSINS
facebook.com/menningarkort #menningarkort
@menningarkort menningarkort.is
Á hrakhólum
með tvö börn
Silja Pálsdóttir er einstæð tveggja
barna móðir sem missir leiguhús-
næði sitt í Grafarvogi 1. júní. Þrátt
fyrir að 150 manns séu búnir að
deila húsnæðisauglýsingu hennar
á Facebook, hefur henni ekki
borist ein ábending um íbúð.
„Leitin hefur engan árangur bor-
ið,“ segir Silja sem biðlar til vina
sinna á Facebook um að aðstoða
sig við leit að þriggja herbergja
íbúð fyrir sig og börnin sín tvö.
Hún hefur verið á almennum
leigumarkaði frá árinu 2012 þegar
hún flutti út úr námsmannaíbúð.
„Þá var ég einstæð með eitt barn
og annað á leiðinni. Stöðu minn-
ar vegna gat ég ekki annað gert
en að þiggja það sem bauðst. Ég
fékk á endaum íbúð í Grafarvogi,
langt frá fjölskyldu og vinum sem
bjuggu ýmist á Álftanesi, Kópavogi
eða Hafnarfirði. En ég var heppin
og fékk íbúð á leigu sem hentaði
okkur vel. Hér hafa börnin mín því
alist upp og þekkja ekkert annað.
Sonur minn á að byrja í Rimaskóla
í haust ásamt öllum vinum hans úr
hverfinu. Svo kom skellurinn um
helgina, íbúðin fer á sölu og við
þurfum að flytja út.“
Silja er í hönnunarnámi og hef-
ur ávallt unnið með skólanum.
„Auðvitað hefur þetta stundum
verið erfitt en ég hef alltaf látið
þetta ganga. Ég veit hinsvegar ekki
hvernig ég á að fara að því að láta
hlutina ganga miðað við leigu-
verðið í dag. Ódýrasta íbúðin sem
ég hef fundið var 200 þúsund.“
Einstæð móðir er ráðþrota eftir
að henni var sagt upp í núver-
andi leiguhúsnæði. Hún datt
út úr háskólanámi eftir að hún
veiktist af krabbameini fyrir
nokkru og í kjölfarið missti hún
íbúðina. Konan á unglingsdóttur
og hafa mæðgurnar búið í
tveggja herbergja íbúð og deilt
rúmi undanfarin ár.
Konan er á miðjum aldri og á tvö
börn. Annað er farið að heiman
en yngra barnið sem er á ung-
lingsaldri, býr hjá móður sinni.
Móðirin vill ekki koma fram und-
ir nafni, segist vera of vængbrotin
og viðkvæm í svona erfiðri stöðu.
Hún er heilbrigðismenntuð og
var í háskólanámi þegar hún
greindist með krabbamein. Því
fylgdi kostnaðarsöm læknismeð-
ferð, skurðaðgerðir og endurhæf-
ing. Allt tók þetta sinn toll og gat
konan því ekki lokið áföngunum
í náminu sem hún var skráð í.
Auk þess sagði leigusalinn henni
upp og af því að hún hefur ekki
fundið nýja íbúð er hún á þriðju
undanþágu frá því að rýma
íbúðina. Eftir örfáar vikur verða
mæðgurnar húsnæðislausar. „Ég
hef verið á biðlista hjá Félagsbú-
stöðum í þrjú ár, frá því áður en
ég byrjaði að kljást við veikindin.
Enn eru um þúsund manns á
undan mér í röðinni. Ég veit ekki
hvað ég á að gera. Ég er byrjuð að
pakka niður dótinu mínu en ég
veit ekkert hvert ég á að fara með
það.“
Konan hefur búið í tveggja
herbergja íbúð með dóttur sinni
undanfarin ár. „Það hefur auð-
vitað verið erfitt að búa svona
þröngt í veikindunum og deila
rúmi með unglingsdóttur minni.
Við höfum búið á sjö stöðum
undanfarin fjögur ár. Barnið mitt
þarf að fara að eignast heimili, fá
að hengja upp myndir og skjóta
rótum. Ég finn að eftir veikindin
er ég að því komin að gefast upp.
Mér líður ekki eins og ég búi í
velferðarríki. Mér líður eins og ég
sé ósjúkratryggð og bjargarlaus í
Bandaríkjunum. Hvernig á ég að
geta fundið mér íbúð og ráðið við
afborganir á venjulegum leigu-
markaði? Ég hef ekki nægilegt
þrek til að vinna fulla vinnu og
lifi því að örorkubótum sem duga
skammt.”
Líður eins og ósjúkratryggðri í Bandaríkjunum
SKÓDAGAR
Shiver GV
Kr. 19.990.-
Nú kr. 14.993.-
Mikið úrval af vönduðum
ítölskum gönguskóm.
Komdu og gerðu
góð kaup.
Asolo Skódagar 99x150 Fréttabl.pdf 1 9.3.2017 09:36
Íslensk
menning
Þann 7. apríl
Gauti Skúlason | gauti@frettatiminn.is
Guðbjarni Traustason | gt@frettatiminn.is
Tíu fermetrar á 96 þúsund
Tómas Magnússon er einstæður
faðir í fastri vinnu sem hefur leit-
að að leiguíbúð miðsvæðis frá því
fyrir jól. Eftir talsverða leit freist-
ar hann þess nú að finna íbúð
með bróður sínum. Það reynist
enn erfiðara því margir leigusalar
banna meðleigjendur.
Tómas þarf brátt að flytja úr íbúð-
inni sem hann hefur leigt undan-
farið ár. Hann ákvað snemma að
byrja að leita að nýrri íbúð en
leitin hefur reynst honum þraut-
inni þyngri. „Það er allt fáranlega
dýrt og ég fæ engin svör þegar ég
hef samband við þá sem auglýsa
íbúðir. Fyrst var ég að leita að
íbúð fyrir mig og son minn en svo
ákváðum við bræðurnir að leigja
saman. Þá kom í ljós að margir
íbúðareigendur banna fólki að
hafa meðleigjendur. Sumstaðar er
tekið fram að aðeins kvenmenn
komi til greina, og hvergi má vera
með gæludýr. Ég er með kött og
þarf þá að finna honum nýtt heim-
ili.“
Tómas hefur keypt sér aðgang
að leigulistanum og fylgist vel með
framboðinu. Hann segist vera
kominn með verulegar áhyggj-
ur því hvar hann eigi að búa. „Ég
er í fastri vinnu, með góð laun og
meðmæli frá bæði leigusala og
vinnuveitanda. En það er eins og
íbúðareigendur ætli að halda sig
við Airbnb leiguverð og halda að
venjulegir leigjendur sætti sig við
það. Ég fann eina þriggja herbergja
íbúð og eigandinn sagðist tilbúinn
að leigja mér hana á 350 þúsund. Í
hverfinu sem sonur minn gengur
í skóla er til dæmis tíu fermetra
herbergi til leigu á 96 þúsund og 40
fermetra stúdíóíbúð á 145 þúsund.
Verðið er svo fáránlega hátt. Maður
er alveg farinn að svitna.“
Silja Pálsdóttir er örvæntingafull að
leita að íbúð fyrir sig og börn sín tvö.
Tómas Magnússon vill leigja íbúð með bróður sínum en það er ekki vel séð af
leigusölum. Mynd | Hari
Erlendir verkamenn, fá-
tækt fólk og þeir sem ekki
eru efstir á óskalista leigu-
sala, búa í iðnaðarhúsnæði
víða um höfuðborgina.
Hér má sjá híbýli austur-
-evrópskra verkamanna í
byggingariðnaði. Þeir búa
fjölmargir saman við hrör-
legar aðstæður í atvinnu-
húsnæði við Höfðahverfi.