Fréttatíminn - 10.03.2017, Page 12
12 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 10. MARS 2017
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
Kosningar VR
eru hafnar
Nú er komið að því að félagsmenn VR velji formann og stjórn
fyrir kjörtímabilið 2017 til 2019.
Hægt er að kjósa til hádegis þriðjudaginn 14. mars á vr.is.
Nýttu rétt þinn og hafðu áhrif!
Aldrei séð
það svartara
Oktavía Guðmundsdóttir hjá
Félagi einstæðra foreldra segir
ástandið á húsnæðismarkaði
sérlega erfitt fyrir þá sem eru
einir með börn.
„Þetta er gífurlegur vandi og
ég hef aldrei séð það svartara.
Það er skelfilegt að geta ekki
boðið þeim sem leita til okkar
upp á neitt húsnæði. Við átt-
um neyðarhúsnæði sem var
alltaf fullt þó það stæðist ekki
nútímakröfur. Við seldum það
því það þarfnaðist gífurlegs
viðhalds. Nú er staðan þannig
að það er svo lítið framboð
af húsnæði á markaðnum
og leiguverðið er svo hátt að
margir einstæðir foreldrar sem
til okkar leita, ráða ekki við
þetta og eru á hrakhólum. Ein-
stæðir foreldrar eru ekki endi-
lega valdir fyrstir úr bunkanum
þegar íbúðir eru auglýstar til
leigu. Ég hef stundum ráðlagt
fólki að finna sér einhverja
fleiri til að leigja með og deila
kostnaði, bara eins og í komm-
únunum í gamla daga. Þó að
það sé ekki óskastaða neins, þá
er betra að deila kostnaði með
öðrum. Samkeppnin á mark-
aðnum er sérlega erfið fyrir
einstæða foreldra.“
Þorsteinn Víglundsson félags-
málaráðherra segir ábyrgð
sveitarfélaganna langmesta.
Hvað vilt þú segja við fólkið sem
finnur ekki húsnæði í dag?
„Það er alveg ljóst að grund-
vallarvandi húsnæðismarkaðar-
ins í heild, hvort sem horft er til
leigu eða kaupa, er framboðs-
skortur á nýju húsnæði. Það er
sorglegt að sjá því þessi staða var
algjörlega fyrirsjáanleg. Þetta er
einmitt ástæða þess að ríkisstjórn-
in setti sérstakan ráðherrahóp
af stað um þetta neyðarástand.
Hópurinn á að skila hugmyndum
að tíu vel skilgreindum aðgerð-
um til að bæta stöðuna eins hratt
og við mögulega getum. En vandi
húsnæðismarkaðarins er að þegar
framboðsvandi er fyrir hendi þá
tekur alltaf tíma að vinna úr því.“
En hvað vilt þú segja við fólk sem
hefur fengið nóg af því að heyra um
starfshópa og nefndir?
„Númer eitt, tvö og þrjú er að
svara þessum framboðsvanda sem
er á markaðinum, og þar er ábyrgð
sveitarfélaganna langsamlega
mest. Það eru þau sem á endanum
halda á skipulagsvaldinu. Þau eiga
að tryggja nægt framboð lóða inn
á fasteignamarkaðinn á hverjum
tíma. Og því miður þá hefur orðið
verulegur misbrestur þar á. Þetta
er ástand sem við erum að reyna
að ná utan um, í góðu samstarfi
við sveitarfélögin. Við miðum að
því að vera komin með aðgerð-
aráætlun innan fjögurra vikna og
hrinda svo aðgerðum beint í fram-
kvæmd til að létta á þessu krísuá-
standi eins hratt og kostur er.“
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri í Reykjavík skorar á önnur
sveitarfélög að ráðast á húsnæð-
isvandann af sama krafti og
Reykjavík. Hann segist átta sig á
alvarleika vandans.
Hvað vilt þú segja við fólkið sem
finnur ekki húsnæði í dag?
„Ég átta mig á alvarleika hús-
næðisvandans og þess vegna er
það og verður forgangsmál. Þetta
verður ekki leyst nema með því
að fjölga íbúðum. Við vitum að
það eru margir í brýnni þörf.
Við forgangsröðum í þágu þeirra
sem standa verst og það eru mjög
margir. Mér finnst mikilvægt að
önnur sveitarfélög geri það líka
því Reykjavík virðist vera eina
sveitarfélagið sem er að fjölga
félagslegu húsnæði fyrir þá sem
standa verst. Við myndum ráða
niðurlögum húsnæðisvandans ef
önnur sveitarfélög tæki á hon-
um af sama krafti og við erum að
gera. Við erum að fjölga félagsleg-
um íbúðum, búsetaúrræðum fyrir
fatlaða, fjölga leiguíbúðum í sam-
vinnu við verkalýðshreyfinguna
fyrir þá sem eru með lægri og
milliháar tekjur, stúdentaíbúðum
og búseturéttaríbúðum í sam-
vinnu við Búseta. Svo erum við í
átaki við að skipuleggja ný svæði
í Reykjavík, þannig að nægilega
mikið byggist upp. Það er þörf
Neyðarástand
hjá þeim sem
verst standa
vegna þess að það er þörf fyrir
húsnæði af öllu.”
Eru fleiri aðgerðir væntanlegar?
„Já, ég á von á því og hef rætt við
nýjan húsnæðisráðherra um það.
Ríkið á töluvert af lóðum í borg-
arlandinu sem við höfum falast
eftir í nokkur ár, svo sem Land-
helgisgæslureitinn við Ánanaust,
reitinn við Stýrimannaskólann,
við Borgarspítalann, á Veður-
stofuhæð og svæði í kringum
listaháskólann í Lauganesi sem
myndu vera mjög góðir til að þróa
litlar stúdentaíbúðir og íbúðir fyr-
ir ungt fólk.“
„Við myndum ráða niðurlögum húsnæðisvandans ef önnur sveitarfélög
tækju á honum af sama krafti og við erum að gera.“ Mynd | Hari
RÁÐAMENN SVARA:
Aðgerðaráætlun
innan fjögurra vikna
„Þessi staða var algjörlega fyrirsjáanleg.“