Fréttatíminn - 10.03.2017, Síða 20
Markmið Frjálsrar fjöl-miðlunar, samtaka til stuðnings frjálsrar og óháðrar blaðamennsku,
verður fyrst um sinn að efla rit-
stjórn Fréttatímans. Ef vel til tekst
við uppbyggingu samtakanna
munu þau í framtíðinni styðja við
bakið á fleiri ritstjórnum og veita
öðrum verkefnum brautargengi.
Undanfarið ár hefur komið í
ljós um öll Vesturlönd að fjárhags-
legur styrkur fjölmiðla er ekki sá
sami og áður var. Þeir geta ekki
óstuddir staðið undir sambæri-
legri almannaþjónustu og þeir
gerðu á seinni hluta síðustu aldar.
Ritstjórnir hafa veikst, reynsla
tapast og geta minnkað. Fjölmiðlar
sem ekki ná endum saman hafa í
auknum mælið leitað til fjársterkra
sérhagsmunaaðila sem sjá sér hag
af því að hafa áhrif á umræðuna.
Þeir geta borið tap af fjölmiðlum
ef rekstur þeirra tryggir hagsmuni
þeirra.
Líklega er þetta ástand hvergi
jafn augljóst og á Íslandi. Frá
Hruni hafa sérhagsmunaaðilar
fjárfest þúsundir milljóna í fjöl-
miðlum á sama tíma og rekstur
þeirra hefur sífellt gengið verr og
nánast ómögulegt er orðið að sýna
fram á að fjölmiðlar geti lifað sjálf-
stæðu lifi á markaði.
Að óbreyttu mun þessi þróun
aðeins leiða til þess að svo til
öll umræða í samfélaginu fari í
gegnum fjölmiðla í eigi sérhags-
munaaðila. Það er hættulegt lýð-
ræðinu.
Eitt einkenni samfélagsþróunar
liðinna áratuga er að sífellt fleiri
verkefni hafa verið flutt frá stjórn-
völdum og út á markaðinn. Slíkt
hefur stundum reynst vel, þegar
markaðurinn er þroskaður, og fjöl-
margir jafnstæðir aðilar keppa þar
og jafn jafnstæðir einstaklingar
velja sér vörur og þjónustu. Fáir
markaðir eru hins vegar svona
þroskaðir, og allra síst hér í fá-
menninu.
Tilfærsla ákvarðana frá stjórn-
völdum til markaðar er því í mörg-
um tilfellum tilfærsla frá vett-
vangi þar sem hver maður er eitt
atkvæði á vettvang þar sem hver
króna er eitt atkvæði. Sá fyrri á að
tryggja jafna aðkomu allra manna
en hinn síðari tryggir best hag
þess sem efnaðastur er. Á vett-
vangi stjórnmála geta hinir verr
settu nýtt sér samtakamáttinn en
það er flóknara úti á markaðnum.
Í stað þess að gengi krónunn-
ar sé ákvarðað af stjórnvöldum
er það látist ráðast af markaðs-
aðstæðum þar sem hinn efnaði
spákaupmaður hefur mest vald,
ekki almenningur eða fyrirtæki
sem eiga allt sitt undir gengissveifl-
um. Í stað þess að stjórnvöld taki
ákvörðun um að byggja upp ör-
uggt og ódýrt húsnæði fyrir tekju-
lægsta þriðjunginn, sem aldrei
getur tryggt sér það á óheftum
húsnæðismarkaði, er örfáum leig-
ufélögum falið ægivald á íbúða-
markaði og yfir lífi fólks.
Svo dæmi séu tekin af því hvern-
ig við höfum flutt samfélagslegar
ákvarðanir frá vettvangi stjórn-
málanna, þar sem hver maður er
jafn, og út á markaðinn þar sem
hinn sterkasti ræður mestu.
Þótt þetta væri ekki ástandið væri
sú þróun að fjölmiðlarnir hefðu
færst í hendur sérhagsunaaðila
nógu slæmt; en undir þessari þró-
un er það skelfilegt.
Við getum spurt okkur hversu
mikil umræða hafi verið um það á
liðnum árum hvernig skattar á fyr-
irtæki og fjármagn voru lækkaðir
á fyrstu árum þessarar aldar og
fótunum kippt undan tekjuöflun
ríkissjóðs svo velferðarkerfið hefur
verið í vörn síðan. Við getum spurt
hvort umræðan um húsnæðismál
hafi verið út frá hagsmunum hinna
stærstu á markaðnum eða út frá
hagsmunum þeirra þúsunda fjöl-
skyldna sem eru í húsnæðishrakn-
ingum. Það eru efnahagslegar
hamfarir þegar húsaleiga á lítilli
íbúð tekjulágrar fjölskyldu hækkar
um 30 þúsund krónur á mánuði.
Það getur munað því hvort fjöl-
skyldan eigi fyrir mat seinni hluta
mánaðarins.
Við getum spurt okkur hvers
vegna rætt er um að ríkið selji
banka en enginn getur rökstutt
hvers vegna. Við getum spurt
hvers vegna ríkisstjórnin vill auka
einkarekstur í heilbrigðiskerfinu
án þess að hafa sýnt fram á að það
gagnist almenningi. Við getum
spurt að svona hlutum, og þótt
alltaf megi finna undantekningar,
þá mun renna upp fyrir okkur að
stór hluti samfélagsumræðunn-
ar fer fram á forsendum sérhags-
muna og hinna sterku.
Fréttatíminn er fríblað, sem
borið er út í hvert hús á höfuð-
borgarsvæðinu tvisvar í viku og er
aðgengilegt á Netinu og fjölförn-
um stöðum víða um land. Efling
útgáfu þess mun ekki umturna
samfélaginu en samt hafa sín áhrif
til þess að halda á lofti almanna-
hag gegn sífellt öflugri málflutningi
sérhagsmuna.
Gunnar Smári
FRJÁLS
FJÖLMIÐLUN
STYRKIST
lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir
20 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 10. MARS 2017
551 1200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 12/3 kl. 13:00 Sun 26/3 kl. 13:00 Sun 2/4 kl. 13:00
Sun 12/3 kl. 16:00 Sun 26/3 kl. 16:00 Sun 2/4 kl. 16:00
Sun 19/3 kl. 13:00 Lau 1/4 kl. 13:00 Sun 9/4 kl. 13:00
Sun 19/3 kl. 16:00 Lau 1/4 kl. 16:00
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Húsið (Stóra sviðið)
Fös 10/3 kl. 19:30 Frums Fös 24/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 31/3 kl. 19:30 7.sýn
Fim 16/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 25/3 kl. 19:30 5.sýn
Lau 18/3 kl. 19:30 3.sýn Fim 30/3 kl. 19:30 6.sýn
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Fös 24/3 kl. 19:30 Frums Þri 4/4 kl. 19:30 6.sýn Fös 21/4 kl. 19:30 11.sýn
Lau 25/3 kl. 19:30 2.sýn Fim 6/4 kl. 19:30 7.sýn Lau 22/4 kl. 19:30
Mið 29/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 7/4 kl. 19:30 8.sýn Fim 27/4 kl. 19:30
Fim 30/3 kl. 19:30 4.sýn Sun 9/4 kl. 19:30 9.sýn
Fös 31/3 kl. 19:30 5.sýn Mið 19/4 kl. 19:30 10.sýn
Einstakt verk um ástina um óslökkvandi þrá, höfnun og missi
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Lau 11/3 kl. 19:30 Lau 25/3 kl. 20:00
Varmahlíð
Lau 18/3 kl. 20:00
Egilsstaðir
Lau 1/4 kl. 19:30
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Lau 11/3 kl. 19:30 aukasýn
Allra síðasta sýning!
Óþelló (Stóra sviðið)
Fös 17/3 kl. 19:30
Sýningum lýkur í mars!
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 10/3 kl. 20:00 Fös 17/3 kl. 20:30 Fös 24/3 kl. 20:30
Fös 10/3 kl. 22:30 Fös 17/3 kl. 23:00 Fös 24/3 kl. 23:00
Lau 11/3 kl. 20:00 Lau 18/3 kl. 20:00 Lau 25/3 kl. 20:00
Lau 11/3 kl. 22:30 Lau 18/3 kl. 22:30 Lau 25/3 kl. 22:30
Fim 16/3 kl. 20:00 Fim 23/3 kl. 20:30 Fim 30/3 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 15/3 kl. 20:00 Mið 22/3 kl. 20:00 Mið 29/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Lau 13/5 kl. 17:00 Sun 14/5 kl. 17:00
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Úti að aka (Stóra svið)
Fös 10/3 kl. 20:00 aukas. Fös 24/3 kl. 20:00 aukas. Mið 5/4 kl. 20:00 aukas.
Lau 11/3 kl. 20:00 4. sýn Lau 25/3 kl. 20:00 9. sýn Fim 6/4 kl. 20:00 aukas.
Sun 12/3 kl. 20:00 5. sýn Sun 26/3 kl. 20:00 10. sýn. Fös 7/4 kl. 20:00 aukas.
Fös 17/3 kl. 20:00 6. sýn Þri 28/3 kl. 20:00 aukas. Fim 20/4 kl. 20:00 aukas.
Lau 18/3 kl. 20:00 aukas. Fim 30/3 kl. 20:00 aukas. Fös 21/4 kl. 20:00 aukas.
Sun 19/3 kl. 20:00 7. sýn Fös 31/3 kl. 20:00 aukas. Sun 23/4 kl. 20:00 aukas.
Mið 22/3 kl. 20:00 8. sýn Lau 1/4 kl. 20:00 aukas.
Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir.
Elly (Nýja sviðið)
Mán 13/3 kl. 20:00 Fors. Fim 30/3 kl. 20:00 aukas. Fös 28/4 kl. 20:00 16.sýn
Þri 14/3 kl. 20:00 Fors. Fös 31/3 kl. 20:00 7. sýn Lau 29/4 kl. 20:00 17.sýn
Mið 15/3 kl. 13:00 Fors. Lau 1/4 kl. 20:00 8. sýn Sun 30/4 kl. 20:00 18.sýn
Fim 16/3 kl. 13:00 Fors. Þri 4/4 kl. 20:00 9. sýn Fös 5/5 kl. 20:00 aukas.
Fös 17/3 kl. 20:00 Fors. Mið 5/4 kl. 20:00 10. sýn Lau 6/5 kl. 20:00 19.sýn
Lau 18/3 kl. 20:00 Frums. Fim 6/4 kl. 20:00 11. sýn Sun 7/5 kl. 20:00 20.sýn
Sun 19/3 kl. 20:00 2. sýn Fös 7/4 kl. 20:00 aukas. Mið 10/5 kl. 20:00 21. sýn
Þri 21/3 kl. 20:00 3. sýn Lau 8/4 kl. 20:00 12. sýn Fim 11/5 kl. 20:00 22.sýn
Mið 22/3 kl. 20:00 aukas. Þri 11/4 kl. 20:00 aukas. Fös 12/5 kl. 20:00 23.sýn
Fös 24/3 kl. 20:00 4. sýn Fös 21/4 kl. 20:00 13. sýn Mið 17/5 kl. 20:00 aukas.
Lau 25/3 kl. 20:00 5 sýn Lau 22/4 kl. 20:00 14. sýn Fim 18/5 kl. 20:00 30. sýn
Sun 26/3 kl. 20:00 6. sýn Sun 23/4 kl. 20:00 15 sýn Fös 19/5 kl. 20:00 31. sýn
Þri 28/3 kl. 20:00 aukas. Fim 27/4 kl. 20:00 aukas. Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn
Samstarfsverkefni við Vesturport
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Lau 8/4 kl. 20:00 Lau 6/5 kl. 20:00 Mið 24/5 kl. 20:00 aukas.
Þri 11/4 kl. 20:00 Fös 12/5 kl. 20:00 Fim 25/5 kl. 20:00 167 s.
Mið 19/4 kl. 20:00 Lau 13/5 kl. 13:00 aukas. Fös 26/5 kl. 20:00 176 s.
Lau 22/4 kl. 20:00 Fös 19/5 kl. 20:00 112 s. Lau 27/5 kl. 20:00 157 s.
Fös 28/4 kl. 20:00 Lau 20/5 kl. 13:00 57 s. Sun 28/5 kl. 20:00 aukas.
Glimmerbomban heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 12/3 kl. 13:00 aukas. Lau 1/4 kl. 13:00 aukas. Sun 30/4 kl. 13:00 97 s.
Sun 19/3 kl. 13:00 aukas. Lau 8/4 kl. 13:00 86 s. Sun 7/5 kl. 13:00 85 s.
Sun 26/3 kl. 13:00 aukas. Sun 23/4 kl. 13:00 102 s. Sun 14/5 kl. 13:00 123 s.
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Sun 12/3 kl. 13:00 11. sýn Sun 26/3 kl. 13:00 aukas. Lau 8/4 kl. 13:00 aukas.
Sun 19/3 kl. 13:00
Táknmáls.
Lau 1/4 kl. 13:00 aukas.
Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna.
Illska (Litla sviðið)
Fös 10/3 kl. 20:00 Lau 18/3 kl. 20:00
Lau 11/3 kl. 20:00 Lau 1/4 kl. 20:00
Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar - Aðeins þessar sýningar
Fórn (Allt húsið)
Fim 16/3 kl. 19:00 Frums. Mið 29/3 kl. 19:00 3. sýn Sun 9/4 kl. 19:00 5 sýn
Fim 23/3 kl. 19:00 2. sýn Sun 2/4 kl. 19:00 4. sýn
Sköpunarkrafturinn ræður ríkjum um allt leikhúsið
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Þri 21/3 kl. 10:00 Mið 22/3 kl. 11:30 Fim 23/3 kl. 13:00
Þri 21/3 kl. 11:30 Mið 22/3 kl. 13:00 Fös 24/3 kl. 10:00
Þri 21/3 kl. 13:00 Fim 23/3 kl. 10:00 Fös 24/3 kl. 11:30
Mið 22/3 kl. 10:00 Fim 23/3 kl. 11:30
Uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í.