Fréttatíminn - 10.03.2017, Blaðsíða 26
26 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 10. MARS 2017
VÖNDUÐ JEPPADEKK
FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4900
NETFANG: info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.com
VÖNDUÐ OG HLJÓÐLÁT DEKK
UNDIR FLESTAR GERÐIR
JEPPA OG JEPPLINGA.
STÆRÐIR FRÁ 29-44 TOMMU.
ÖLL ALMENN
DEKKJAÞJÓNUSTA
TÍMABÓKANIR
Í SÍMA 540 4900
Sinn eigin herra í seiðandi sveit
Veitingamaðurinn Dóri sem margir
þekkja úr Mjóddinni, nefnir eins og
margir aðrir að börnin hans hafi gefið
honum tilgang í lífinu. Hann segist
lánsamur að hafa eignast tvær dæt-
ur og fjögur barnabörn. „Ég held að
það sem skipti mestu máli sé að sjá
börnin sín komast vel á legg og að
þeim vegni vel. Það hefur gengið vel
og verið mér mjög mikilvægt að koma
mínum vel fyrir til framtíðar. Senni-
lega er það það skásta sem ég hef
gert og mitt mikilvægasta hlutverk,
að hjálpa þeim áfram í lífinu. Auð-
vitað koma upp allskonar vandamál
þegar börnin eru að vaxa úr grasi,
þegar þau þurfa að eignast húsnæði
og verða sjálfstæð. Mér finnst gott að
vita til þess að maður hafi getað verið
„Því er fljótsvarað hvað hefur gefið
lífi mínu tilgang. Ég er svo lánsöm
að hafa eignast fjögur heilbrigð og
greind börn. Þegar uppi er staðið þá
eru það þau og barnabörnin sem ég
hef lifað fyrir. Ég fékk að halda öllum
mínum börnum og hef reynt að gera
allt sem ég gat til að þeim liði vel. Það
er fullnæging í lífinu að sjá börnin
sín komast á legg, vaxa og dafna og
fjarlægjast mann á eðlilegan hátt
þegar þau verða sjálfbjarga. Sá sem á
heilbrigða fjölskyldu getur ekki leyft
sér að kvarta. Þegar börnin eru heil-
brigð kemur hamingjan að sjálfu sér.
Fyrir mér var mikilvægast að styrkja
og styðja börnin í því sem þau vildu
gera. Ég reyndi að gera það þó að ég
hafi nú ekki verið efnuð. Það gaf lífi
mínu tilgang.
Mér fannst þungbært að missa
maka minn til 45 ára, en ég hefði ekki
afborið að missa frá mér barn. Ég hef
getað notið lífsins af því að allir af-
komendur mínir voru heilbrigðir. Svo
finnst mér það ekki lítils virði að sjá
sólina koma upp á daginn, nú þegar
ég er orðin 83 ára gömul. Draga frá
og finna birtuna gægjast inn. Það er
heldur ekki sjálfgefið að maður hafi
þrek í að mæta daglega í vinnuna
og standi hér og þrífi glugga við
Halldór Þórhallsson matreiðslumaður
hjá Dóra
Þegar Bjarnheiður Júlía er spurð að
því hvað hafi gefið lífi hennar tilgang
og merkingu, stendur ekki á svari.
„Mér detta auðvitað fyrst í hug
börnin og barnabörnin. Þau eru það
allra mikilvægasta. En þegar ég
hugsa um það þá er það líka sveitin.
Hún er svo friðsæl og mér hefur
fundist yndislegt að geta verið sjálfs
míns herra í þessu fallega umhverfi,
að hafa getað haft börnin hérna hjá
mér allan daginn og hafa ekki þurft
að senda þau í burtu í leikskóla. Þau
voru bara með manni í einu og öllu.
Uppeldið á börnunum verður allt
öðruvísi í svona aðstæðum. Nú eru
sérfræðingarnir farnir að segja að
börnin séu best geymd hjá manni, ef
þau eru sem mest með manni. Ég á
fimm börn og þó að þau hafi farið í
skóla og svona, þá tengjast þau öll
sveitinni sterkum böndum. Þau hafa
öll spjarað sig vel og mér sýnist þau
bara vera góðir samfélagsþegnar.
Ég hefði ekki viljað annan stað til að
ala mín börn upp. Fólkið í sveitinni
og samheldnin hefur líka skipt mig
miklu máli. Nágranni minn sem býr
við hliðina á mér, hjálpaði manninum
mínum að byrja að ganga og síðar
stíga sín fyrstu skref í búskapnum.
Maðurinn minn fór aldrei í neinn
bændaskóla, hann lærði þetta allt af
nágranna okkar. Svo hefur umhverfið,
náttúran og fjöllin seiðandi áhrif og
mér finnst þau passa okkur og vera
okkar bestu og kærustu vinir.“
Ef börnin eru heilbrigð kemur hamingjan af sjálfu sér
Bjarnheiður Júlía Fossdal bóndi á Melum í Árneshreppi
Fjóla Magnúsdóttir í Antíkhúsinu.
Gott að vera bakhjarl og með ánægt starfsfólk
Hvers vegna
er ég hér?
Skólavörðustíginn, komin á þennan
aldur.”
einhverskonar bakhjarl og að hægt sé
að treysta á mann.
Konan mín, Stefanía Þóra Flosa-
dóttir, hefur verið mín stoð og stytta í
tæp fjörutíu ár. Við höfum átt farsælt
hjónaband og höfum rekið fyrirtæk-
ið saman. Hún hefur líka gefið mér
ákveðinn tilgang. Svo hef ég verið
heppinn að hafa getað unnið við það
sem ég lærði, og það hefur gefið mér
ákveðna fyllingu. Það hefur skipt
mig gríðarlega miklu máli að hafa
fólk í vinnu sem er ánægt og vita að
maður geri vel við það. Ég reyni að
haga mér þannig að öllum líði vel, að
starfsfólk hafi gaman af því að koma í
vinnuna og vera í vinnunni. Þau virð-
ast vera glöð enda er starfsaldur hjá
starfsmönnum okkar mjög langur eða
um 8-13 ár.“