Fréttatíminn - 10.03.2017, Page 34
34 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 10. MARS 2017
hollur kostur á 5 mín.
Plokkfiskur
„Það kemur mér skemmtilega á
óvart hvað fólk er að biðja mig um
að spila japanskt. Fólk hefur ekki
heyrt þetta og vill heyra meira,“
segir plötusnúðurinn Sakana sem
heitir réttu nafni Sunna Axelsdótt-
ir og er með BA gráðu í japönsku.
„Það er svolítið fyndið afhverju
ég fór að dj-a. Í menntaskóla báðu
vinkonur mínar mig alltaf að gera
playlista fyrir partí.“ Sunna þeytti
því fyrst skífum fyrir vinkonu sína
á skemmtistaðnum Harlem og fékk
fyrir ómakið nokkra bjóra.
Sunna fór sem skiptinemi til Jap-
an árið 2015 og bjó þar í ár. Eftir
það segist hún hafa þorað að spila
meira japanskt. Nafnið Sakana
kom til áður en Sunna fór út, rétt
þegar hún var að byrja í japönsku-
deild HÍ. „Sakana þýðir fiskur,
sem er svolítið asnalegt en af því
að það er á japönsku er það frekar
kúl,“ segir Sunna og hlær.
Sunnu finnst best að spila á mið-
vikudögum. Henni finnst líka allt
í fína ef að fólk biður um óskalög
en finnst óþolandi þegar að fólk
er að furða sig yfir því að hún sé
stelpa. „Mér finnst svo leiðinlegt
þegar fólk er að hrósa mér eins og
„Vá þú ert mjög flott, þó að þú sért
stelpa.“ og furðar sig á því að ég sé
dj-inn.“ Sunna segir samt stelpur
vera forvitnar um hvernig mað-
ur verði plötusnúður
og spyrji hana hvort
þetta sé erfitt eða hún
geti kennt þeim. „Ég
segi bara að þetta sé
æfing, enda er þetta
bara æfing eins og
allt annað.“
Sunna spilar undir
nafninu Sakana.
Mynd | Hari
Plötusnúðurinn Sakana Áhersla á japanska tónlist
Sunna Axelsdóttir spilar undir nafninu Sakana, sem þýðir fiskur á japönsku.
Lagalisti sem Sakana myndi spila á ljúfu
miðvikudagskvöldi
細野晴臣 - レゲ・エーゲ・ウーマン (Haruomi Hosono - Rege
Aege Woman)
(1979)
Yellow Magic Orchestra - Tong Poo (1978)
Chiemi Manabe - 不思議・少女 (Fushiki shojo / Myster
ious Girl) (1982)
エボニー・ウェッブ – ディスコお富さん = Disco Otomisan (1978)
Tom Tom Club - Genius of Love (1981)
Kraftwerk - Computerwelt (1981)
The Knife - Pass This On (2003)
Planningtorock - Let’s Talk About Gender Baby og Hu
man Drama
(2014)
Soft Hair - Lying Has To Stop (2016)
Bryndís Silja Pálmadóttir
bryndis@frettatiminn.is
Systurnar Díana Sjöfn og Sólrún Ösp Jó-hannsdætur fluttu heim á æskuheimilið á síðasta ári eftir að
móðir þeirra, Gunnhildur, lést
eftir skammvinna baráttu við
krabbamein. Æskuheimilið er
snoturt, raðhús í Smáíbúða-
hverfinu þar sem þær systur
búa ásamt föður sínum og eigin-
manni Sólrúnar, hinum danska
Jeppe.
Díana og Sólrún hafa kynnst
leigumarkaðnum af eigin raun
og búið á ýmsum stöðum. „Við
fjölskyldan höfum talað um það
að okkur finnst gott að búa ná-
lægt hvert öðru en hvernig eig-
um við að finna íbúðir nálægt
hvert öðru?“ segir Sólrún, enda
er ástandið á leigumarkaðn-
um snúið og erfitt að vera með
tilteknar kröfur, sérstaklega ef
maður er háskólanemi, eins og
Díana og Sólrún. Sólrún bjó um
tíma í Danmörku, en að hennar
mati er kerfið í Danmörku mun
betra. Hún fékk greitt fyrir að
vera í skóla og hafði örugga
leiguíbúð á vegum borgarinnar.
Þar hafði eiginmaður hennar
nefnilega verið á biðlista eftir
leiguíbúð frá fæðingu í úthverfi
Kaupmannahafnar. „Foreldr-
ar hans hefðu samt alveg mátt
setja hann á lista í Kaupmanna-
höfn,’’ segir Sólrún og þær
systur flissa kátar.
„Það hefur verið gott að
vera hérna heima árið eftir að
mamma deyr. Nú höfum við
náð að vera meira saman,’’ segir
Díana og Sólrún tekur í sama
streng. „Mamma var kletturinn
í fjölskyldunni þannig það er
svolítið öðruvísi að búa hérna
núna. En þetta er líka hluti af
sorgarferlinu að fara í hluti sem
hún gerði á hverjum degi. Mér
finnst mjög gott að vera hérna
núna.“
Díana flutti að heiman
haustið 2015 og leigði með
vinkonum sínum. Hún er nú á
biðlista eftir íbúð á Stúdenta-
görðunum en einstaklingsíbúðir
kosta frá tæpum 80 þúsundum
upp í rúm 91 þúsund. „Það er
náttúrlega ógeðslega erfitt fyrir
mig að vera á leigumarkaðn-
um, ein og einhleyp. Þannig ég
ákvað að spara og vera heima,
en ég veit samt ekki fyrir hverju
ég er að spara. Ég held alltaf að
ég sé að spara fyrir íbúð, en er
maður að ná að spara fyrir íbúð
einn?“ veltir hún fyrir sér.
Systurnar eru sammála um
að bjóða ætti upp á betri lausnir
fyrir ungt fólk, enda vilji ungt
fólk síður búa í stórum íbúðum
eða einbýlishúsum. Tengda-
foreldrar Sólrúnar í Danmörku
búa t.d. í leigufyrirkomulagi þar
sem þau hafa öruggan búsetu-
rétt og hafa búið í sama hús-
næðinu í 25 ár.
„Ég er mjög hrifin af svona
pælingum. Þau eru svolítið
öðruvísi heldur en foreldrar
mínir sem vildu eignast hús og
bíl og voru í staðin ekkert mikið
að ferðast. Foreldrar Jeppe vildu
ferðast og fóru með fjölskylduna
út um allt,“ segir Sólrún. „Mað-
ur vill samt hafa þetta öryggi að
maður sé ekki að fara að missa
leiguíbúðirnar,’’ segir Díana.
Þær ætla þó að vera um tíma
áfram á æskuheimilinu, enda
finnst þeim gott að búa saman,
deila bíl og eru búnar að skipu-
leggja frí í Belgíu í maí.
Fullorðin í Foreldrahúsum
Með hækkandi leiguverði og minnkandi
framboði á húsnæði sem hentar ungu fólki,
fjölgar þeim sem dvelja í hreiðrinu fram eftir
aldri. Talið er að nærri helmingur ungs fólks
á aldrinum 18-30 ára í Evrópu búi enn í for-
eldrahúsum. Ísland er þar ekki undanskilið.
Eru þetta ósjálstæðir eilífðarunglingar eða er
þetta bara það sem koma skal ef leigumark-
aðurinn breytist ekki?
Sambúðin góð
í sorgarferlinu
Systurnar Díana og Sólrún fluttu aftur í foreldrahús á síðasta ári. Mynd | Hari
Klæddu þig í korselett
Leiðbeiningar
fyrir þá sem ætla á
búningasýningu á
Rocky Horror.
Nú er heldur betur tækifæri fyr-
ir aðdáendur kvikmyndarinnar
Rocky Horror Picture Show til að
bregða undir sig betri fætinum og
dressa sig upp í gervi söguhetj-
anna. Í kvöld klukkan 20 verður
nefnilega boðið upp á búningasýn-
ingu á myndinni í Bíó Paradís.
Fyrir þá sem eru ekki alveg með
það á hreinu hvernig best er að
klæða sig, eru hér nokkrar hug-
myndir. | slr
Tim Curry í gervi
Frank-N-Furter.
Ef þú ert feimna
týpan geturðu að
minnsta kosti skellt
á þig rauðum varalit
og farið í hælaskó.
Korselett er eiginlega
alveg nauðsynlegt. Þeir
allra hörðustu ættu ekki
að hika við að draga
það fram.
Svipa er skemmtilegur
fylgihlutur sem flestir
ættu að geta reddað.