Fréttatíminn - 10.03.2017, Qupperneq 44
8 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2017FERMINGAR
Rúmin fyrir fermingarbörnin fara stækkandi
Rekkjan er sérverslun staðsett á horni Ármúla og Grensásvegar við Ármúla 44.
Verslunin sérhæfir sig í heilsurúmum og öllu sem viðkemur svefni og svefnherberginu.
Unnið í samstarfi við Rekkjuna.
Í Rekkjunni er lögð rík áhersla á frábæra þjónustu á góðu verði. Kristján Þór Jónsson afgreiðslumaður hjá Rekkj-unni er vanur að ráðleggja
fólki um hvaða rúm henti hverj-
um og einum. Þegar hann var
spurður að því hvort hann merkti
einhverjar breytingar á því hvaða
rúm fólk kaupi fyrir fermingar-
börnin segir Kristján.
„Við finnum fyrir því í ár að
fermingarbörnin vilja fara í svo-
lítið stærri rúm. Jafnvel alveg
upp í 150 cm á breidd. Hér áður
fyrr voru það 90 cm eða 120 cm
sem eru þessi klassísku ferm-
ingarrúm. Fólk er að átta sig á
því hvað rúmið er mikilvægt og
hvað krakkarnir eyða miklum
tíma í rúminu.“
Börn eru sem sagt ekki bara að
sofa í rúminu?
„Nei langt því frá. Krakkarnir
eru mikið uppí rúmi með fartölv-
una eða ipadinn eða hvað sem
það er. Skrifborðið er svolítið að
detta út eða á að minnsta kosti
undir högg að sækja, enda eru
þau aðallega notuð til að geyma
föt núorðið og því hefur skrif-
borðið farið út og rúmið fengið
að vera stærra. Krakkarnir hafa
sem sagt aðallega verið að nota
skrifborðið til þess að geyma föt-
in, því eru þau að detta út úr her-
berginu og stærri rúm að koma í
staðinn. Unglingarnir eru því með
stærri rúm og fötin inni í skáp,“
segir Kristján.
Meðalmaður eyðir að jafnaði
þriðjungi ævi sinnar í rúminu
sínu. Þess vegna er svo mikil-
vægt að velja rúmið sitt vel og
vita að hverju maður þarf að
huga?
„Það er rosalega mikilvægt að
rétt rúm sé valið. Þetta eru í
raun engin geimvísindi, þetta
snýst um það að rassinn fái að
fara ofan í dýnuna og að bak-
ið elti ekki og að dýnan veiti
góðan stuðning við mjóbakið. Í
hliðarlegu er mikilvægt að öxl-
in og mjöðmin nái að fara ofan í
dýnuna þannig að það komi ekki
sveigur á hrygginn. Einnig er
mikilvægt að þegar maður liggur
á bakinu að dýnan fylgi upp und-
ir hnésbæturnar ef það gerir það
ekki þá stoppar það blóðrásina
niður í bak,“ segir Kristján.
Þarf maður að hafa eitthvað
sérstakt í huga þegar kemur að
því að velja rúm fyrir fermingar-
barnið?
„Þau þola yfirleitt stífari dýn-
ur heldur en við fullorðna fólkið.
Mín tilfinning er sú að strákar
taki stífari dýn-
ur heldur er
stelpurnar án
þess að ég ætli
að alhæfa um
það mál.“
Eruð þið með
einhverjar aðrar
vörur en rúmin sem
eru vinsælar ferm-
ingagjafir?
Sængurfötin eru alltaf svakalega
vinsæl, fólk er farið að átta sig á
því að gott lak skiptir rosalega
miklu máli. Góð dúnnsæng er líka
frábær fermingargjöf, eins eru
heilsukoddarnir mikið teknir fyrir
fermingarbörnin.“ segir Kristján.
Það þarf vart að taka það fram
að Rekkjan verður með mikið af
frábærum fermingartilboðum.
Kristján hvetur fólk til þess að
kíkja við í versluninni í Ármúlan-
um og kynna sér úrvalið og ferm-
ingartilboðin.
Allar nánari upplýsingar má
nálgast á www.rekkjan.is
„Fólk er
að átta sig á
því hvað rúmið
er
mikilvægt og
hvað
krakkarnir eyð
a
miklum tíma í
rúminu.“
Veislan
Oft er búið að bóka sal fyrir veisluhöld með löngum
fyrirvara. Aðrir kjósa að halda veisluna heima í stofu.
Ef veislan er fjölmenn getur verið kostur að leita til
nákominna um aðstoð eða kaupa tilbúinn mat. Búðu
til tímaáætlun svo allt verði örugglega tilbúið þegar
fyrsta gestinn ber að garði.
Fatnaður
Huga þarf að sparifötum fyrir fermingarbarnið og
myndatökuna.
Hárgreiðsla
Það getur verið gott að tryggja sér tíma með góðum
fyrirvara fyrir fermingardaginn.
Gjafir
Hvers óskar fermingarbarnið sér í gjöf? Gott að út-
búa lista fyrir ættingja og vini. Algengt er að gestir
séu óöruggir um hvað fermingarbarnið vill svo allar
upplýsingar eru gagnlegar.
Skreytingar
Á að skreyta hlaðborðið með blómum eða borðum?
Blómaverslanir og föndurbúðir eru með úrval af hug-
myndum af fylgihlutum fyrir skreytingar.
Skart
Verður fermingarbarnið með sérstakt hálsmen á
fermingardaginn?
Boðskort
Prent- og ljósmyndaverslanir bjóða upp á þægilega
þjónustu þegar að kemur að hönnun boðskorta.
Sálmabók
Margir láta skrautrita nafn fermingarbarnsins ásamt
dagsetningu.
Servíettur
Langar þig að prenta texta á servíetturnar? Prent-
verslanir og blómabúðir bjóða upp á slíka þjónustu.
Fermingartertan
Það er gott að gefa sér tíma til að skoða úrval og
verð á fermingartertum.
Myndataka
Margir pússa upp fjölskylduna og skella sér í mynda-
töku í tilefni fermingarinnar.
Kerti
Fermingarkertið er oft skreytt með skrautskrift.
Hægt er að föndra eigið eða kaupa tilbúið.
Ekki gleyma neinu!
Við undirbúning fermingarveislunnar er gott að vera með allt sitt á
tæru og passa að ekkert gleymist. Hér er einfaldur tékklisti yfir það
sem algengt er að huga að fyrir fermingarveislur.
NÝJAR
SUMAR
VÖRUR
Dæmi um 2x160 auglýsingu
Lógó er helmingurinn af breid in i
miðjusett - tagline ekki minna n 6 pt
Lógó svart með hvítu eða hvítt með svörtu
Litaður flötur (80% transparent) kemur yfir
neðri helming m ndar en hæð æðs af
mynd og magni af texta. Skálína í öfuga átt
miðað við lógó (sami halli)
Fyrirsögn í sama lit og litaflötur (litur dreginn
úr myndinni)
Letur: Cooper Hewitt Light hástafir
(áhersluorð mega vera í Medium)
Ef bakrunnur er hvítur þá á að vera svartur
rammi, 0,5 pt.
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
frettatiminn.is