Fréttatíminn - 10.03.2017, Qupperneq 46
Daniel Wellington
WD
Margeir Gunnar Sigurðsson
margeir@frettatiminn.is
Þessum unga dreng er greinilega margt til lista lagt. Hann var aðeins átta ára gamall þegar hann steig fyrst á svið í
Þjóðleikhúsinu í D ýrunum í Hálsa-
skógi.
Hvað skyldi Gunnari Hrafni finnast
skemmtilegast að gera þegar hann
stendur ekki á sviðinu?
„Mér finnst mjög gaman að
fara út með vinunum í fót-
bolta og þá sérstaklega
á sumrin. Ég hef líka
mjög gaman af því
að hjóla. Svo finnst
mér náttúrlega
svakalega gaman
að leika, syngja
og dansa. Það eru
eiginlega svona
aðaláhugamálin
mín.“
Hvað eru þetta orðnar
margar leiksýningar sem Gunnar
Hrafn hefur komið að?
„Ég byrjaði í Dýrunum í Hálsa-
skógi í Þjóðleikhúsinu árið 2012.
Árið eftir tók ég þátt í uppfærslu
Þjóðleikhússins á Latabæ. Næsta
verkefni var svo uppfærsla á Kuggi
sem var mjög skemmtilegt. Síðan
fór ég í Borgarleikhúsið og tók
þátt í uppfærslunni á Billy Elliot
þar sem ég lék tvö mismunandi
hlutverk. Nú er ég svo að leika í
Borgarleikhúsinu í Bláa hnettinum
Erfitt að gera upp
á milli leiklistarinnar
og söngsins
Gunnar Hrafn Kristjánsson er ungur strákur úr Kópavoginum sem
fermist í Lindakirkju í Kópavogi í vor. Gunnar Hrafn er í Salaskóla í
Kópavoginum. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Gunnar Hrafn komið víða
við í leikhúsinu auk þess sem hann var jólastjarna Björgvins Halldórs-
sonar árið 2014.
Gunnar Hrafn Kristjánsson fermist í Linda-
kirkju í vor. Hann leikur í Bláa hnettinum og
spilar fótbolta í frístundum. Mynd | Hari
þar sem
ég er í
einu af að-
alhlutverkunum. Það hefur verið
alveg ótrúlega skemmtileg og góð
reynsla. Það er líka mjög skemmti-
legt af því að litli bróðir minn,
Gabríel Máni, er einnig að leika í
sýningunni.“
Hvernig var það að taka þátt í upp-
færslunni á Bláa hnettinum?
„Það var alveg svakalega skemmti-
legt, sýningin er eiginlega bara
borin uppi af okkur krökkunum.
Það eru bara þrír fullorðnir í sýn-
ingunni og svo 23 börn, þannig að
það er mjög mikill félagsskapur í
því og við krakkaranir náum mjög
vel saman.“
Er Gunnar Hrafn búinn að gera upp
við sig hvort hann vilji leggja fyrir
sig leiklistina eða sönginn?
„Nei, eiginlega ekki, ég hef ekki
ákveðið mig ennþá. Ég á mjög
erfitt með að gera upp á milli leik-
listarinnar og söngsins. Mér finnst
það eiginlega alveg nákvæmlega
jafn skemmtilegt. Þannig líður
mér allavega núna en svo getur vel
verið að það breytist þegar ég verð
eldri.“
Gunnari Hrafni virðist vera leik-
listin í blóð borinn en hefur hann
einhverja tengingu inn í leikhúsin?
„Nei, ég get ekki sagt það. Mamma
og pabbi voru samt að leika eitt-
hvað þegar þau voru yngri. Pabbi
lék Mikka ref á Sauðárkróki ein-
hvern tímann. Mamma var eitt-
hvað að leika líka, svo léku þau
saman í leikriti sem hét Sumar-
ið fyrir stríð. Þannig að ég hef
örugglega fengið áhuga á þessu
í gegnum þau. Pabbi er líka at-
vinnusöngvari og mamma mín er
í kór. Þannig að leiklist og söngur
hefur verið mikið á heimilinu,“
segir Gunnar en mamma hans
heitir Elín Greta Stefánsdóttir og
pabbi hans er Kristján Gíslason,
Eurovisionfari með meiru.
Talið berst að fermingunni. Af
hverju lætur Gunnar Hrafn ferma
sig?
„Ég læt ferma mig vegna þess að
ég trúi á Guð. Ég trúi því að það
sé einhver æðri máttur, einhvers
staðar, sem að hjálpar manni í
gegnum allt. Það er ástæðan fyrir
því að ég læt ferma mig. Mér finnst
þetta flott hugsun að vera góður
við náungann og svo lærir maður
mikið af þessu. Ef manni líður illa
eða eitthvað þá er hægt að leita í
eitthvað annað og stærra en mað-
ur sjálfur.“
Finnst þér þú hafa lært mikið af
fermingarfræðslunni?
„Já, ekki spurning, ég hef lært heil-
mikið af henni, fullt af hlutum sem
ég vissi ekki áður og mér finnst
þetta hafa hjálpað mér heilmikið.“
Skipta gjafirnar miklu máli?
„Nei ég myndi ekki segja það. Það
er samt alltaf gaman að fá gjafir. Ég
myndi alveg geta verið án þessara
gjafa. Gjafirnar eru ekki ástæðan
fyrir því að ég læt ferma mig.“
Pabbi lék
Mikka ref
á Sauðárkróki
einhvern tímann.
Mamma var eitthvað
að leika líka, svo léku
þau saman í leikriti
sem hét Sumarið
fyrir stríð. Þannig
að ég hef örugglega
fengið áhuga á þessu
í gegnum þau.
10 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2017FERMINGAR