Fréttatíminn - 10.03.2017, Blaðsíða 56
Unnið í samstarfi við
Svefn og heilsu
Ein besta fermingar-gjöfin sem hægt er að gefa er gott og vandað heilsurúm sem mun fylgja barninu inn í full-
orðinsárin. Aðspurður segir Sig-
urður að þau hjá Svefni og heilsu
leggi mikla áherslu á að fólk sé
ánægt með dýnurnar sem það
kaupi hjá þeim og þegar komi að
því að endurnýja dýnurnar þá sé
Svefn og heilsa fyrsti kostur.
Það er stór áfangi í lífi hvers
einstaklings og í hönd fer
spennandi tími breytinga hjá
börnum og þau stíga sín fyrstu
skref inn í fullorðinsárin. Sigurð-
ur segir að þau hafi gert óform-
lega könnun í verslun sinni meðal
fermingarbarna og niðurstöðurn-
ar hafi verið býsna afgerandi.
„Langflest sem við spjölluð-
um við langaði í stærra rúm, ný
sængurföt og að losa sig við
barnabraginn á herberginu og
gera það unglingalegra.“
Tími breytinga
„Fermingarárið er yfirleitt ár
mikilla breytinga og það þarf að
huga að mörgu hjá vaxandi fólki.
Þau eru að breytast úr börnum í
ungt fólk og þá nýta foreldrarn-
ir gjarnan tækifærið til þess að
taka barnaherbergið í gegn og
umbreyta því í unglingaherbergi.
Þá er gjarnan málað og oftar en
ekki keypt nýtt rúm. Við leggj-
um mikla áherslu á að geta boðið
fermingabörnunum þannig dýnu
að þau leiti 100% aftur til okkar,“
segir Sigurður.
En hvað þarf fólk að vita áður en
það kaupir rúm fyrir fermingar-
barnið?
„Það marg borgar sig að vanda
valið og í dag er hægt að fá frá-
bæra heilsdýnu hjá okkur á mjög
fínum kjörum.
Að mínu viti þarf dýnan að vera
mjög svæðaskipt og ekki nóg
með það heldur þarf svæðaskipt-
ingin að vera rétt. Hún er oft á
tíðum bara röng hjá fólki og það
getur leitt af sér alls kyns vand-
ræði. Axlasvæðið á að vera mjúkt,
svo á dýnan að vera svona milli-
stíf og veitir stuðning við neðra
bak,“ segir Sigurður.
Hvað skyldi vera vinsælast fyrir
fermingarbörnin?
„Við erum með afskaplega vand-
aðar heilsudýnur á fermingartil-
boði. Við erum einnig með gott
úrval af hlífðardýnum, lökum,
sængum, koddum, sængurvera-
settum og teppum. Fermingar-
gjöfin frá Svefni og heilsu er nýtt
og vandað sængurverasett að
eigin vali frá Vandyck sem fylgir
öllum fermingarrúmum sem keypt
eru hjá okkur“ segir Sigurður.
Hann leggur mikla áherslu á að
fólk skoði vel það sem sé í boði
fyrir fermingarbörnin og fólk geri
verð og gæðasamanburð og þá sé
Svefn og heilsa mjög góður kostur
fyrir þá sem vilja fá góða heilsu-
dýnu á mjög sanngjörnu verði.
„Við tökum vel á móti fólki sem
leitar til okkar og kappkostum að
fólk fái framúrskarandi þjónstu
og leiti aftur til okkar þegar kem-
ur að því að endurnýja næst.“
Hægt er að fylgjast með ferm-
ingartilboðum á facebook síðu
Svefns og heilsu.
facebook.com/svefnogheilsa
Svefn og heilsa er
fjölskyldufyrirtæki í
eigu hjónanna Sig-
urðar og Elísabetar.
Þau eru eru bæði
reynsluboltar í því
að ráðleggja fólki
þegar kemur að því
að velja sér rúm.
Gott að borða bollu
Bolludagurinn er á
mánudaginn en mörg
bakarí byrja að selja
rjómabollur í dag.
Taktu forskot á sæluna
og nældu þér í eina
alveg ómótstæðilega í
hádeginu, með miklum rjóma.
Gott að skíða
Nú þegar snjórinn
er loksins kominn
á höfuðborgar-
svæðinu er ekki úr
vegi að taka fram
gömlu gönguskíðin
og ferðast þannig um götur bæjarins. Nýttu
kvöldið í að græja þetta mál.
Gott að sofa
Slepptu því að
hanga fyrir framan
sjónvarpið langt
fram á nótt og
ekki fara á barinn.
Farðu snemma að
sofa og njóttu þess
að vakna fersk/ur í fyrramálið.
GOTT
Á
FÖSTUDEGI
Segðu frá ...
bestu bollunni
Baldur Guðmundsson
„Ég er mjög
íhaldssamur
þegar
kemur að
rjómaboll-
um. Ég vil
vatnsdeigs-
bollu fyllta
með Royal-
búðingi með
karamellubragði. Ég fæ brjóstsviða
af miklum rjóma en búðingur
er tóm hamingja. Ef súkkulaði-
glassúrinn vantar er það frágangs-
sök.
Náttúrulegt
Þörungamagnesíum
ENGIN
MAGAÓNOT
Mikil virkni
Bragðlaust duft í kalt vatn
5 mán. skammtur
Nýjar
umbúðir
Fríða Rós
Valdimarsdóttir
„Ég er mikil
bollukona og
finnst þessi
dagur betri
en jólin.
Ég má
ekki borða
glútein
svo ég baka
mínar vatns-
deigsbollur sjálf. Þær eiga bara að
vera með rjóma og súkkulaði. Við
erum nú þegar búin að baka fyrsta
skammtinn og höldum líklega þrjú
bollukaffiboð.“
Daníel Arnór
Snorra-
son
„Bollurnar
í Guðna-
bakaríi á
Selfossi.
Bollurnar
þar eru svona
eins og zen
búddistar, það er allt í fullkomnu
jafnvægi og bollurnar færa þér
innri frið og sálarró.“
Langflest sem
við spjölluðum
við langaði í stærra
rúm, ný sængurföt
og að losa sig við
barnabraginn á her-
berginu og gera það
unglingalegra.
Sv is ipt heilsudýnur
Mynd | Hari
20 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2017FERMINGAR