Fréttatíminn - 25.02.2017, Page 8
ersen
sé rökfastasti
og sjálfstæðasti armur
Sjálfstæðisflokksins. Hún sé töffari,
elski að vera umdeild og láti flokks-
valdið ekki aftra sér.
Eykur við breiddina
„Ég er búinn að þekkja hana í 30 ár
og er samstiga henni í ýmsu,“ seg-
ir Birgir Ármannsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, sem kynntist
henni í Menntaskólanum í Reykja-
vík. „Hún var strax með ákveðnar
skoðanir og lifandi áhuga á pólitík.
Hún varð fljótt virk í starfi flokksins
og óhrædd við að fara eigin leið-
ir og tala hug sinn allan. Ég held
að kynferði hafi ekki skipt megin-
máli þegar Bjarni ákvað að velja
hana í embætti heldur eykur hún
við breiddina í ráðherraliðinu sem
er gott.“
Birgir segir að Sigríður hafi alltaf
þótt í hópi róttækustu þingmanna
og þeirra sem eru lengst til hægri
ef frjálshyggja sé mælikvarði á
það. Hann segist þó ekki sammála
samlíkingu við teboðshreyfinguna
því áhersla hennar á trúmál og sið-
ferðisgildi eigi ekki við í íslenskri
pólitík. „Hún hefur tileinkað sér
þann stíl að vera mjög beinskeytt
og róttæk og stundum höfum við
orðið ósammála,“ segir Birgir. „En
það hefur alltaf verið í lagi. Hún
hefur þann hæfileika að taka gagn-
rýni ekki persónulega.“
„Helsti galli hennar er sá að
hún er ekki nema 1.10 á hæð,“ seg-
ir Brynjar Níelsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins. „Svo kemur
hún stundum bratt á fólk þegar
hún segir sínar meiningar afdrátt-
arlaust, en mér finnst það frekar
kostur en galli.“
Róttæk frjálshyggjukona
Alger afneitun Sigríðar Á. And-
ersen á jafnréttisbaráttu kynj-
anna, ótrú á gagnsemi aðgerða
gegn mengun í loftslagsmálum og
ötul barátta fyrir einkabílnum og
lægri sköttum á eldsneyti hefur
vakið athygli. Sigríður flokkar ekki
rusl, að eigin sögn, og þegar hjúkr-
unarfræðingar voru í verkfalli til
að krefjast hærri launa, komst
hún í fréttirnar fyrir ummæli sín
um að í þessu fælust tækifæri til
einkavæðingar.
Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son, prófessor í stjórnmálafræði,
segist þó ekki sammála því að Sig-
ríður sé lengst til hægri af þing-
mönnum flokksins án þess að hann
vilji gefa upp hver standi hægra
megin við hana. „Ég held, að
rangt sé að segja, að hún sé meðal
8 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
– gerir lífið bjartara
Stækkunarglerslampar
Ármúla 19 · Sími 568 1620 · www.gloey.is · gloey@gloey.is
Vandaðir stækkunar
glerslampar í föndur
og fína vinnu.
Góð birta.
kr. 14.990,-
kr. 19.900,-
kr. 39.990,-
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Það kom mörgum á óvart þegar Sigríður Á. And-ersen var gerð að dóms-málaráðherra en Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, virtist í tals-
verðum vandræðum við að koma
saman ríkisstjórn þar sem ekki
hallaði að verulegu leyti á konur.
Sigríður Á. Andersen er 45 ára,
búin að starfa í flokknum alla sína
tíð, bæði í ungliðastarfi flokksins
og ötull boðberi frjálshyggjunnar
sem einn stofnenda þjóðmálafé-
lagsins Andríkis og ritstjórnarmeð-
limur Vefþjóðviljans. Þá hefur hún
verið þingmaður frá árinu 2015 en
hún var varaþingmaður frá ár-
inu 2007 og kom inn á þing þegar
Pétur Blöndal féll frá. Fyrir síðustu
kosningar skipaði hún fjórða sæti í
Reykjavík suður.
Sigríður er lögfræðingur, en
foreldrar hennar eru Brynhildur
Kristinsdóttir skrifstofumaður og
Geir R. Andersen blaðamaður. Hún
er gift Glúmi Jóni Björnssyni efna-
fræðingi en þau eiga tvö börn.
Þeir sem til þekkja segja að
kjarninn í kringum Sigríði Á. And-
Hægrisinnaðasti
ráðherrann
hægrisinnuð-
ustu þingmanna
f lokksins,“ seg-
ir Hannes. „Hún
er hins vegar tví-
mæla laust með-
al frjálslyndustu
þingmannanna.
Hún mun auðvit-
að, eins og aðrir
stjórnmálamenn,
haga seglum eftir
vindi, enda vand-
séð, hvernig ella
á að sigla. Ein sér
breytir hún eflaust
ekki öllu, enda
ráðast breytingar
af tíðaranda og að-
stæðum frekar en
einstökum mönn-
um, en ég geri fast-
lega ráð fyrir, að
hún verði farsæll
ráðherra, gætinn, en
samt ákveðinn. Ég
held, að bestu vinir
hennar séu skattgreið-
endur og neytendur, en
hún er ótrauður talsmaður
þessara tveggja hópa, sem
oft eru vanræktir í stjórn-
málum.“
„Hún er alveg öfgalaus, að
mínu mati, og mjög tryggur
flokksmaður,“ segir Brynjar
Níelsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins. Hann ber
henni vel söguna og segir
hana hafa gott skopskyn og
vera blátt áfram í öllum
samskiptum. Hún komi
ekki í bakið á nein-
um. „Hún er í frjáls-
lyndari armi flokksins
með sterkt gildismat hvað
varðar frelsi einstaklingsins til
orða og athafna. Ég veit ekki
„Hún
var strax
með
ákveðnar
skoðanir
og lifandi
áhuga á
pólitík. Hún
varð fljótt virk
í starfi flokksins
og óhrædd við að
fara eigin leiðir
og tala hug sinn
allan. “
Birgir Ármannsson,
þingflokksformaður
Sjálfstæðisflokksins,
segir að menn séu
ekki dæmdir til
að vera sammála
um allt en það
sé á ábyrgð allrar
ríkisstjórnarinnar að
leiða mál sem hún
leggur fram til lykta.
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, prófess-
or í stjórnmálafræði,
segist ekki sammála
því að Sigríður sé
lengst til hægri
af þingmönnum
flokksins.
Sigríður Á. Andersen er almennt talinn sá
stjórnarliði sem er lengst til hægri. Hún er
róttæk frjálshyggjukona en málflutningur
hennar þykir stundum ekki ósvipaður
teboðshreyfingunni í Bandaríkjunum,
allavega á frumbýlisárum hennar. Hún
espar upp ráðherra samstarfsflokkanna
í ríkisstjórn með því að viðra skoðanir
á jafnréttismálum og umhverfismálum sem
ganga í berhögg við stjórnarsáttmálann eða
yfirlýsingar annarra ráðherra. Hún þykir þó
varla líkleg til að ganga lengra en það enda
kann hún vel við embættið.