Fréttatíminn - 25.02.2017, Síða 10

Fréttatíminn - 25.02.2017, Síða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017 Kjóll Verð: 8.990 kr PÓSTSENDUM FRÍTT HVERT Á LAND SEM ER Opið alla virka daga frá kl. 11-18 & Laugardaga frá kl. 11-16 Fákafeni 9 | Sími 581-1552 | www.curvy.is KJÓLAR FYRIR FERMINGUNA Skoðaðu úrvalið á curvy.is eða kíktu til okkar í Fákafen 9 Stærðir 14-26 eða 42-54 hvort hún er lengst til hægri en þetta er stelpa með skýra pólitíska sýn.“ Önnur nálgun á jafnrétti Flokkskonur Sjálfstæðisflokksins riðu ekki feitum hesti frá prófkjör- um flokksins í síðustu kosningum og Ólöf Nordal, vinsælasta stjórn- málakonan, var ekki tiltæk vegna veikinda en hún er nú látin. Unn- ur Brá Konráðsdóttir kom ekki til greina sem ráðherra en hún hafði fallið í ónáð innan flokksins eftir að hafa ein flokksmanna greitt at- kvæði með þingrofi og kosningum eftir að aflandseyjamál fyrri rík- isstjórnar komust í hámæli. Hún hafði þó unnið sig hratt í álit aft- ur og var gerð að forseta þingsins, mikil virðingarstaða, en fremur eyrnamerkt þeim sem eru á útleið úr pólitík. Sigríður hefur talað gegn kynja- kvóta líkt og mörgum öðrum jafn- réttismálum. Hún var einnig eini stjórnarþingmaðurinn sem greiddi atkvæði gegn því að settur yrði á fót sérstakur jafnréttissjóður í til- efni af hundrað ára afmæli kosn- ingaréttar kvenna og því má segja að það sé kaldhæðnislegt að and- stæð sjónarmið yrðu óbeint til að gera hana að dómsmálaráðherra. Útnefning hennar í ráð- herraembætti vakti mikla athygli og einnig hrifningu þeirra sem eru lengst til hægri í flokknum. Og Sig- ríður hefur ekki valdið aðdáendum sínum vonbrigðum. Eftir einungis sex vikur í embætti hefur hún náð að marka sér afgerandi sér- stöðu innan stjórnarinnar. Öfgalaus að mínu mati „Ég myndi ekki segja að hún væri ekki hlynnt jafnrétti, en hún hefur vissulega aðra nálgun á jafnréttisbaráttuna en ýmsir aðrir, til að mynda ég,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis. „Hún gengur út frá því að allir hafi jöfn tækifæri og eigi jafna möguleika á því að láta að sér kveða.“ Hún segir að það hafi ekki bein- línis komið á óvart að Sigríður yrði ráðherra. „Svarið er bæði já og nei. Aðferðafræðin kom mest á óvart. Síðast skipaði Bjarni einung- is oddvita á lista, við áttum aldrei séns sem lentum neðar á lista. Það var nýtt að manneskja í fjórða sæti á lista kæmi til greina. En sem einstaklingur er hún vel að emb- ættinu komin.“ Brynjar Níelsson var ofar en Sigríður á lista flokksins og lög- fræðingur, eins og hún. Hann var enda oftar en einu sinni orð- aður við dómsmálin í ríkisstjórn. Hann segir að formaður flokksins hafi staðið frammi fyrir því að rík- isstjórnin þyrfti að endurspegla bæði kynin og hann hafi verið heppinn að hafa Sigríði enda hafi hún dýrmæta reynslu og þekkingu í embættið. Kunnugir segja að ráðherraemb- ætti hafi hinsvegar komið Sigríði sjálfri mest á óvart og hún sé enn að fagna ásamt félögum sínum í Andríki. Hún komi til með að halda reglulegar flugeldasýningar til að halda fólki á tánum og friða stuðn- ingsmenn sína í harðlínuliðinu en hún muni ekki ganga lengra og ekki gera neitt sem geti raunveru- lega ógnað stöðu hennar innan ríkisstjórnar- innar. Þannig haf i hún komið með sínum hætti í umræður um launamun kynj- anna. Hún hafi náð að stuða marga, ekki síst úr samstarfsflokkunum í ríkisstjórn. Hún gæti þess hinsvegar vandlega að bjóða ekki upp á umræður um málið eða svara gagnrýni frá félög- um sínum í stjórnarliðinu. Ótrú á jafnlaunavottun Ríkisstjórn Sjálfstæðisf lokks, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar hefur nú verið við völd í 6 vikur og þegar slegið met í óvinsældum en aldrei hefur nein ríkisstjórn átt jafn litlu fylgi að fagna í upphafi ferils síns. Stjórnarandstæðingar hafa slegið upp ágreiningi innan stjórnarinnar og af nógu er að taka og þar hefur Sigríður Á. Andersen ekki látið sitt eftir liggja. Hún hef- ur meðal annars lýst yfir vantrú á því að kynbundinn launamunur sé til staðar og ótrú á jafnlauna- vottun ríkisstjórnarinnar sem þó er í stjórnarsáttmála og í raun eina málið þar sem samstarfsflokkurinn Viðreisn hafði náð að merja í gegn. Birgir Ármannsson segist þó halda að Sigríður greiði atkvæði með þessu máli í þinginu líkt og öðrum málum sem ríkisstjórnin hefur komið sér saman um. „Það er heilbrigt að takast á um mis- munandi sjónarmið, menn eru ekki dæmdir til að vera sammála um allt en það er á ábyrgð allrar ríkisstjórnarinnar að leiða mál sem hún leggur fram til lykta,“ segir Birgir. Unnur Brá Konráðsdóttir segist ekki telja að sýn Sigríðar á jafn- réttismál komi til með að skapa vandamál í stjórnarsamstarfinu en það verði sjálfsagt margir ósáttir. Brynjar Níelsson segist hafa svipaða skoðun á jafnréttismálum og Sig- ríður. „Hún er í eðli sínu mikill jafnréttissinni en hefur sínar skoðanir á því hvaða leiðir eru bestar til að uppræta mismunun. Hún lítur á jafnlaunavott- un og kynjakvóta sem mis- munun.“ Fleiri þingmenn í stjórnarliðinu eru ósammála jafnlaunavottun og vegna þess hve meirihluti stjórnar- innar er naumur myndi frumvarp um slíkt vart hafa brautargengi nema með stuðningi stjórnarand- stöðunnar. Það er því viðkvæmt að ráðherra blandi sér í hóp gagn- rýnenda. „Það er nú ekkert frumvarp komið fram enn um jafnlaunavott- un,“ segir Unnur Brá. „Það er dá- lítið snemmt að fara að velta því fyrir sér hvernig atkvæði falli um mál sem er ekki búið að koma fram. Það er vissulega fjallað um það í stjórnarsáttmálanum en það skiptir máli hvernig það lítur út í endanlegri mynd. En ég á ekki von á öðru en að allir ráðherrar ríkis- stjórnarinnar muni bakka það upp.“ Mikil útivistarkona Björt framtíð fer með umhverfis- málin. Björt Ólafsdóttir um- hverfisráðherra lýsti því yfir strax í upphafi að stóriðjustefnunni væri lokið. Ekki yrðu gerðir fleiri íviln- andi samningar við stóriðju. En umhverfismálin hafa ekki farið varhluta af fréttaflutningi um sérstæðar skoðanir nýja dóms- málaráðherrans. „Hún er einfald- lega að velta upp nýjum fleti á umhverfismálunum, hvar mesti vandinn í losun gróðurhúsaloft- tegunda liggur. Hún virkar mjög sannfærandi á mig,“ segir Brynjar Níelsson. Sigríður hefur verið ötul við að benda á að framræst land sé stærsta uppspretta losunar gróð- urhúsalofttegunda hér á landi en gert minna úr áhrifum stóriðju og mengunar frá umferð enda geti fyrirtæki og einstaklingar kolefn- isjafnað starfsemi sína með endur- heimt votlendis. Þá hefur hún haldið því á lofti að mikil vernd sé fólgin í skýrum nýtingar- og eignar- rétti einstaklinga á landi og auð- lindum. „Eitt af því sem kom mér á óvart við Sigríði, þegar við fórum að vinna saman, er hvað hún er mik- il útivistarkona,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir. „Ég hafði einhvern- veginn aldrei tengt hana við neitt áhugamál utan stjórnmálanna. En hún er mikill náttúruunnandi og gengur á fjöll í öllum sínum frí- stundum,“ segir Unnur Brá. „Hún hefur líka gríðarlega mikinn áhuga á umhverfismálum og hefur talað mikið um það frá því ég hitti hana fyrst. En hún hefur aðra nálgun en þeir sem hafa hæst í þessum mál- um, það er alveg rétt.“ Engin bylting Mikill styrr hefur staðið um mál- efni hælisleitenda og hafa á undan- förnum árum sett ráðuneytið í nei- kvætt ljós. Brynjar Níelsson segist telja að einnig þar sé breytinga að vænta. „Ég hugsa að hún reyni að bæta vinnubrögðin í kringum af- greiðslu hælisumsókna og stuðla að því að vinnubrögð Útlendinga- stofnunar verði hraðari, gagnsærri og betri.“ Hörðustu stuðningsmenn Sig- ríðar Á. Andersen eru almennt stuðningsmenn þess að herða frekar reglur um hælisleitendur og útlendinga en hitt. Hún er meira óskrifað blað í þeim efnum. Það má þó ganga að því nokkuð vísu að hún styðji ekki aukin opinber framlög til málaflokksins. „Ríkisstjórnin ætlar ekki að láta það átölulaust að menn misnoti velvild Íslendinga gagnvart stríðs- hrjáðu fólki, með tilhæfulausum hælisumsóknum.“ Þetta sagði hún í viðtali við RÚV og átti þá við hælisleitendur frá Makedóníu og Albaníu. Hún sagði þó að Íslendingar hefðu svigrúm til að taka á móti fleiri flóttamönnum frá stríðshrjáðum löndum en gert hefur verið til þessa en nauðsyn- legt væri að hraða málsmeðferð, til að stemma stigu við tilhæfulausum hælisumsóknum. Birgir Ármannsson segir að stærsta málið framundan hjá dómsmálaráðuneytinu sé að koma á fót sérstöku millidómstigi en undirbúningur þess hafi tek- ið mörg ár, Hann segist halda að það sé ærið verkefni. „Ég held ekki að það verði neinar grundvallar- breytingar í málaflokknum. Það er hvorki stefna hennar né ríkis- stjórnarinnar að snúa ráðuneytinu á hvolf. Hún mun ekki standa að neinni byltingu þar.“ Í sama streng tekur Unnur Brá Konráðsdóttir. „Ég held að þessi mál þurfi mikla athygli og alúð. Dómsmálin snúast ekki um byltingar en millidómstigið verður grundvallarbreyting á dómskerfi landsins.“ Mikil áhersla hefur verið lögð á að ná þverpólitískri samstöðu um frumvarp um millidómstig. Áhersla Sigríðar í jafnréttismálum varð hinsvegar til þess að frum- varpið var afgreitt úr nefndinni í ágreiningi. Meirihlutinn neitaði að fallast á kröfu minnihlutans um að áréttingu um að gætt yrði jafnræð- is við skipan dómara. Ástæðan er ummæli ráðherrans um að hún telji að aukin áhersla á kynjasjónar- mið við skipan dómara leiði ekki til velfarnaðar. Unnur Brá segist telja að Sigríður Á. Andersen geti náð lengra innan flokksins ef hún gegni þessu emb- ætti vel og hafi trú á því sem hún er að gera. „Já, ég held að henni gætu orðið allir vegir færir innan flokksins.“ Í sama strengt tekur Birgir Ár- mannsson sem segir hana að öllum líkindum eiga framundan langt líf í pólitík. Hversu langur ráðherrafer- illinn verður innan þessarar rík- isstjórnar sem haltrar áfram með eins manns meirihluta við tak- markaðan fögnuð landsmanna, verður tíminn að leiða í ljós, Það er allavega ljóst að það verður engin lognmolla í kringum Sigríði Á. Andersen. Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, segist ekki telja að skoðanir Sigríðar á jafnréttismálum muni skapa vandamál en vafalaust verði ein- hverjir ósáttir. Kunnugir segja að ráðherraembætti hafi hinsvegar komið Sigríði sjálfri mest á óvart og hún sé enn að fagna ásamt félögum sínum í Andríki. Hún komi til með að halda reglulegar flugeldasýningar til að halda fólki á tán- um og friða stuðningsmenn sína í harðlínuliðinu en hún muni ekki ganga lengra og ekki gera neitt sem geti raun- verulega ógnað stöðu hennar innan ríkisstjórnarinnar. Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, segir að Sigríður sé öfgalaus manneskja.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.