Fréttatíminn - 25.02.2017, Qupperneq 22

Fréttatíminn - 25.02.2017, Qupperneq 22
seinnipartinn, segir Gestur, þegar búðin fylltist af vinum og kunningj- um í spjall og kaffi. Ungur tónlist- armaður, Haraldur Guðmundsson bassaleikari, var að gefa út plötu. Hann kom í gær með bunka, heitar úr pressunni. Platan heitir Freaks of Funk sem Sigurður Guðmundsson mixaði. Hún var tekin í umboðssölu í búðinni eins og margar aðrar plötur eftir íslenska tónlistarmenn. Því fer fjölgandi tónlistarfólkinu sem gefur út efni sitt á föstu formi, segir Gestur, og á þá við vínyl, kasettur og geisladiska þegar hann talar um fast form. „Í dag er kasett- an handhægasta, þægilegasta og ódýrasta formið til þess að geyma músík. Á síðasta ári komu út 40 ís- lenskir titlar á kasettum og að jafn- aði komu út 300 nýir íslenskir titlar á föstu formi,“ segir Gestur. „Það er hátt í plata á dag og þetta hefur bara aukist á síðustu árum.“ Gestur segir söluna góða enda væru þeir ekki að reka búðina ef það væri ekki mark- aður fyrir vörurnar þeirra. „Hljómsveitirnar fá lítið inn af sín- um tekjum í dag þegar allir eru að hala niður,“ segir Gestur. „Þú sýnir ekkert „support“ með því að mæta ekki á tónleika en hanga heima og hala niður. Ég vil halda á hlutunum Gestur er bæði með geislaspilara og kasettutæki í bílnum sínum (óhjá- kvæmilega veltir maður fyrir sér hvernig bíl hann keyrir) og þrjá plötuspilara heima hjá sér. „Ég les mikið og les þá bækur af því að ég vil fá að halda á hlutunum. Og ég nota takkasíma, segir hann og tekur upp lítinn svartan síma. „Kannski er þetta einhver andspyrna. „Call me old fashion“. Ég vil sitja með fólkinu sem ég tala við og halda á bókinni sem ég les. Ég er kominn yfir fer- tugt en hef aldrei notað kreditkort, hvorki tekið bílalán né námslán. Fólk er komið í eigu bankanna og Visa og með sífelldar áhyggjur um hver mánaðamót.“ „Viðskiptavinir okkar eru að koma hingað af sömu ástæðum og ég. Þeir vilja tengja græjurnar, standa upp og snúa við. Kannski er þetta nostalgía en þetta er líka athöfn gagnstætt þessu hérna sem er ekki nein athöfn,“ segir Gestur og mundar puttann eins og hann sé að fletta á skjá. „Það er athöfn að fara í bíó, fara á staðinn sitja með fólki og borða popp. Og það er himinn og haf á milli þessara athafna en það er til fólk sem lifir í hliðarveruleika og fer ekki úr húsi. Það halar nið- 22 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017 Brahms Ein deutsches Requiem Söngsveitin Fílharmónía 28. febrúar kl. 20:00 í Norðurljósasal Hörpu Miðar á www.harpa.is Einsöngvarar: Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Ágúst Ólafsson baritón Alda Lóa Leifsdóttir aldaloa@frettatiminn.is Hlemmur er áningar-staður notenda al-menningsvagna og á milli vagna er hægt að skreppa í Rauða kross búðina og næla sér í bol með áletr- uninni „I am not a morning per- son.“ Það er líka hægt að panta Pad Thai í austurlensku matarbúðinni Mai Thai og fórna næstu strætóferð. Hinsvegar er enginn svikinn af því að ganga fyrir hornið út á Rauðar- árstíg. En skáhallt á móti utanríkis- ráðuneytinu er búðin Lucky Records með vínylplötur, diska og hljóð- snældur og ókeypis kaffi. Lucky records við Hlemm Gestur Baldursson, starfsmaður Lucky Records til margra ára, opn- ar búðina klukkan 10 á hverjum morgni. Í þessum febrúar morgun- gráma býður fyrsti kúnni dagsins eftir inngöngu í musterið. „Hann kemur hingað reglulega,“ upplýsir Gestur. Fastakúnninn veit hvað og hvar í búðinni hann finnur sínar vör- ur og gengur rakleitt að sínum rekka og velur fimm notaða geisladiska sem reynast vera að megninu til þýsk dægurlagamúsík. Maðurinn borgar fyrir diskana og keyrir burt tíu mínútum síðar. Gestur hefur aldrei halað niður af netinu. Hvorki músík né myndum. Hann segir líkt komið fyrir mörg- um sem koma í Lucky Records og sér sjálfum að þau nota hvorki Net- flix né Vod. „Fólk sem kemur hingað í myndaleit, er oft í leit að íslensk- um myndum eða myndum með ís- lenskum textum. Eða jafnvel diskum með aukaefni sem fylgir myndun- um. Aukaefni sem þú finnur ekki á netinu þegar þú halar niður mynd.“ Gefa út á föstu formi Mesta fjörið í Lucky Records er Raunheimar í föstu formi fást í plötubúð á Hlemmi Vínylaðdáendur í Reykjavík leggja gjarnan leið sína í plötubúðina Lucky Records við Rauðarárstíg. Flestir þeirra eru hvorki haldnir fortíðarþrá né ganga þeir fyrir rómantík. En vínylaðdáendurnir hafna drasli og hraða nútímans sem rænir þá peningum og tíma og kjósa þess í stað traustan lífsstíl sem byggist á raunverulegu efni. Gestur vill sitja með fólkinu sem hann talar við og halda á bókinni sem hann les. Það er hryllingur að sitja uppi með rispaðan geisladisk, það þekkja allir. En ef þú ert með rispaða plötu þá stendur þú bara upp og lyftir nálinni yfir rispuna, segir Ýmir, eigandi Vínyl á Hverfisgötu. Qing Zhou kom til Íslands að skoða norð- urljósin og kynna sér skandinavíska músík. Myndir | Alda Lóa

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.