Fréttatíminn - 25.02.2017, Síða 34
GOTT
UM
HELGINA
34 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Kammermúsík-
klúbburinn 60 ára
Á stórafmæli sínu býður Kammer
músíkklúbburinn upp á tvenna
tónleika þar sem Ásdís Valdimars
dóttir píanóleikari og þýski Auryn
kvartettinn flytja alla strengjak
vintetta Mozarts.
Hvar? Í Hörpu.
Hvenær? Í dag og á morgun kl. 17.
Hvað kostar? 6900 kr. fyrir báða
tónleika.
Afmæli Stórsveitarinnar
Stórsveit Reykjavíkur fagnar 25 ára afmæli um þessar mundir. Gestur sveitarinnar, þýski básúnuleikar
inn Ansgar Striepens, er höfundur tónlistar og einleikari á tónleikum í Hörpu, en Andreas er einn af helstu
stórsveitafrömuðum Þýskalands.
Hvar? Kaldalón í Hörpu.
Hvenær? Í dag kl. 16.
Hvað kostar? 3500 kr.
Aron Can í Hvíta húsinu
Tónlistarmaðurinn Aron Can
heimsækir Selfoss til að trylla lýð
inn þar. Vinsældir Arons eru tals
verðar. Lagið „Enginn mórall“ var
til dæmis vinsælasta lag ársins á
Spotify á Íslandi, en því hefur ver
ið streymt tæplega 900.000 sinn
um þegar þetta er skrifað.
Hvar? Hvíta húsið á Selfossi.
Hvenær? Í kvöld kl. 23.
Hvað kostar? 2000 kr.
Bolluvendir og
öskupokar
Undirbúningur er mikilvægur og rétt að rifja upp hvort maður kunni að
útbúa bolluvendi og öskupoka fyrir næstu viku. Ef ekki þá býður Borgar
bókasafnið, í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands, upp á öskupoka
og bolluvandagerð. Krakkar á öllum aldri geta tekið þátt í föndursmiðj
unni og það má taka mömmu og pabba eða afa og ömmu með.
Hvar? Borgarbókasafnið Grófarhúsi.
Hvenær? Á morgun, sunnudag, kl. 15.
Hvað kostar? Ókeypis.
Nautn í myndlistinni
Í Hveragerði hefur sýningin Nautn / Conspiracy of Pleasure staðið yfir
að undanförnu. Nú á að ræða hvernig nautnin birtist í listsköpun. Spurt
verður: Má sýna hvað sem er og hvaða munur er á opinberu rými og
einkarými? Þátttakendur í umræðunni verða Auður Ava Ólafsdóttir,
listfræðingur og rithöfundur, Ágústa Ragnarsdóttir myndlistarkennari,
Markús Þór Andrésson sem skrifar texta í sýningarskrá og Salvör Nordal,
forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands.
Hvar? Listasafn Árnesinga Hveragerði.
Hvenær? Í dag kl. 14.
Hvað kostar? Ókeypis.
Fjölbreytt efnisskrá fyr-
ir fiðluna
Ari Vilhjálmsson er einn allra
færasti fiðluleikari þjóðarinnar.
Hann býr í Finnlandi og starfar
við Fílharmóníusveitina í Helsinki.
Ari kemur nú til Íslands ásamt og
píanóleikaranum Roope Grön
dahl sem er einn frambærilegasti
píanisti Finnlands og saman flytja
þeir verk úr ýmsum áttum. Tón
listin er eftir tónskáldin Debussy,
Pärt, Szymanowski og Prokofieff.
Hvar? Í Salnum í Kópavogi.
Hvenær? Í kvöld kl. 20.
Hvað kostar? 3900 kr.
LAGERSALA
LÍN DESIGN
LAUGAVEGI 176
LAUGAR- O
G SUNNUD
AG
KL. 10
-17
KL.1
1-17
Tryggvagötu 15 · 101 Reykjavík · Opið 10-18 mán–fim · 11-18 fös og 13-17 um helgar · borgarsogusafn.is
Jóhanna Ólafsdóttir
Ljósmyndir / Photographs
28.1. – 14.5.2017
©
Jó
ha
nn
a
Ó
la
fs
dó
tti
r ·
R
au
nv
er
ul
eg
ís
le
ns
k
gl
eð
i ·
(B
ja
rn
i Þ
ór
ar
in
ss
on
o
g
Bi
rg
ir
An
dr
és
so
n)
·
H
ön
nu
n:
H
G
M
Munndreifitöflur
250 mg
Pinex®
Smelt
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
ct
av
is
5
1
1
0
7
2