Fréttatíminn - 25.02.2017, Page 36
36 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Frábært föndur
fyrir fjölskylduna
Það er
skemmti-
legt að búa
öskudags-
búningana
til heima.
Heimatilbúnir öskudagsbún-
ingar þurfa ekki að taka langan
tíma og gerð þeirra er skemmti-
leg samverustund fyrir fjöl-
skylduna.
Í næstu viku eru hinir vinsælu
bollu-, sprengi-, og öskudagur með
tilheyrandi veisluhöldum sem lífga
upp á og skóla og vinnustaði.
Ýmislegt tilstand getur þó fylgt
því að finna hinn rétta öskudags-
búning fyrir börnin og búðir kepp-
ast við að selja ýmsa búninga og
fígúrur sem geta kostað fúlgur fjár.
Það getur því verið frábær skemmt-
un að búa búningana til heima fyr-
ir með börnunum og leyfa þeim að
ráða förinni. Þá verða búningarnir
margskonar og örva ímyndunarafl
bæði barna og fullorðinna.
Það er heldur alls ekki nauðsyn-
legt að vera flinkur í höndunum eða
eyða miklum peningum í föndrið
heldur getur einfaldur pappakassi
breyst í sjónvarp, tening eða vél-
menni með smá málningu. Stórar
gosflöskur má klæða gömlu efni eða
álpappír og fá þá nýtt hlutverk sem
súrefniskútar fyrir unga geimfara
og kafara. Að lokum er hægt að setja
efni inn í stóra sokka, sauma þá við
gamla peysu og þá ertu kominn
með káta könguló. Börnin geta líka
komið með frumlegar og skemmti-
legar hugmyndir og breytingar á
búningunum, en það er um að gera
að láta ímyndunaraflið leika laust.
Einfalt, skemmtilegt og frábær
skemmtun um helgina. | bsp
Konurnar á bak við
leiðakerfi Strætós
Valgerður og Ragnheiður sitja sveittar allar daginn og grúska í tölum og
gögnum til að auðvelda sem flestum að geta ferðast með strætó.
Það er að mörgu sem þarf að huga þegar leiðakerfi strætó er hannað.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Valgerður Gréta Benediktsdótt-
ir og Ragnheiður Einarsdóttir
eru konurnar á bak við leiðakerfi
Strætós og sjá um að auðvelda þús-
undum farþega að komast leiðar
sinnar. Þær sjá um að skipuleggja
leiðakerfi, tímatöflur og áætlanir
fyrir 27 leiðir á höfuðborgarsvæð-
inu og annað eins á landsbyggð-
inni.
„Þetta er krefjandi og skemmti-
legt verkefni og er allt gert í sam-
ráði við sveitarfélögin. Það flækir
kerfið að vagnarnir þurfi að hittast
á nokkrum stöðum svo fólk geti
auðveldlega skipt um leiðir,“ út-
skýrir Ragnheiður sem unnið hef-
ur hjá Strætó í tæp þrjú ár, en Val-
gerður hóf störf síðasta sumar.
Nota minnst, kvarta mest
Þær segjast vera mjög gott teymi
og eru nú á kafi í að vinna að
næstu leiðakerfisbreytingu sem
tekur gildi í maí. En miðað er við
að gerðar séu breytingar á kerfinu
tvisvar á ári. „Breytingar á leiða-
kerfinu eru síður en svo einfaldar
og því er hagkvæmt að gera sem
flestar breytingar í einu,“ segir
Ragnheiður. En hvernig fá þær
allar þessar tímasetningar til að
passa? „Þetta getur verið mjög
snúið en tíminn sem er á tímatöfl-
unum er áætlaður tími. Oftast er
tíminn nokkuð réttur en umferðin
er breytileg sem gerir það að verk-
um að stundum getur brugðið út
af,“ segir Valgerður. „Við mælum
með að fólk noti appið til að sjá
hvar vaginn er,“ bætir Ragnheiður
við, sposk á svip.
Þær nota ýmsar tölur og gögn
við skipulagningu á leiðakerf-
inu. Einnig fá þær ýmiskonar
ábendingar frá farþegum.
Fólk deilir með þeim bæði já-
kvæðri og neikvæðri upplifun
af þjónustunni, en það er þeirra
reynsla að fólkið sem kvartar
mest, það notar Strætó oft lítið eða
ekkert. „Það átta sig ekki allir á því
að leiðakerfið hefur breyst mikið
undanfarin ár, leiðakerfið er í sí-
felldri þróun.“
Kunna ekki kerfið utan að
Þær nota strætó báðar töluvert. „Við
förum stundum saman á fundi í
strætó. Fórum meira að segja á fund
á Selfossi með strætó um daginn,“
segir Ragnheiður. „Það er mjög gott
að upplifa leiðakerfið í praxís og það
hjálpar til við að betrumbæta það,“
bætir Valgerður við.
Aðspurðar segja þær vini og
vandamenn lítið stóla á þær hvað
tímatöfluna varðar en það vek-
ur þó yfirleitt athygli þegar þær
segja hvað þær starfa við. „Þegar
ég er að spjalla við fólk, til dæm-
is í partíum, þá hefur það alltaf
einhverja skoðun. Fólk getur alltaf
sagt eitthvað um strætó.“ Valgerður
tekur undir þetta. „Þetta skapar oft
skemmtilegar umræður þar sem
maður kemur.“
Happ Höfðatorgi | 105 Reykjavík | happ.is
Við skrifum upp á betri heilsu
með hollum mat úr fersku hráefni