Fréttatíminn - 25.02.2017, Blaðsíða 47
7 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017 FJÁRMÁLALÆSI
Persónuleg
bókhalds þjónusta
Réttskil er bókhaldsþjónusta sem veitir einstaklingum
aðstoð og ráðgjöf við skattskil. Það getur margborgað
sig að láta fagaðila sjá um bókhaldið,
bæði sparar maður tíma og fyrirhöfn.
Unnið í samstarfi við Réttskil
Bryndís Björk Karlsdótt-ir, bókari hjá Réttskilum, segir að aukin umsvif í samfélaginu kalli á
aukna eftirspurn eftir bókhalds-
þjónustu.
„Við erum mikið með einstak-
linga og lítil fyrirtæki sem eru
að dafna og vaxa hratt,“ segir
Bryndís en uppgangur í ferða-
þjónustu og byggingariðnaði
hefur ekki farið framhjá henni.
„Leiðsögumenn, fólk með
heimagistingu og fleiri tengdir
ferðamannabransanum leita til
okkar og sjáum við um öll skil til
ríkisskattstjóra og lífeyrissjóða
auk skattframtala þeirra.“
Rafræna byltingin
Skattskil einstaklinga hafa stór-
batnað á undanförnum árum og
er það mikið til að þakka raf-
rænum skilum sem hafa einfald-
að margt varðandi skattskil.
„Það eru ítarlegar upplýsingar
inni á skattur.is og þar geta
einstaklingar fylgst með skulda-
stöðu sinni og inneign. Þá er allt
Fræðsla um
lífeyrisréttindi
þegar líður að
starfslokum
Brú lífeyrissjóður hefur boðið upp á fróðleg
námskeið fyrir sjóðfélaga sína sem nálgast
starfslok og vilja kynna sér lífeyrisréttindi sín.
Unnið í samstarfi við
Brú lífeyrissjóð
Það er að mörgu að hyggja þegar hilla fer undir lok starfsferils-ins. Fólk þarf að huga
að sinni fjárhagslegu afkomu
en það að eiga áhyggjulaust
ævikvöld er eitthvað sem flesta
dreymir um.
Brú lífeyrissjóður er sjóð-
ur fyrir fólk sem starfar hjá
sveitarfélögunum. Sjóðurinn
fékk nýtt nafn árið 2016 en
hét áður Lífeyrissjóður starfs-
manna sveitarfélaga. Sjóðurinn
rekur þrjár samtryggingardeild-
ir, A, V og B deild en auk þess
eru Lífeyrissjóður starfsmanna
Reykjavíkurborgar og Lífeyris-
sjóður starfsmanna Kópavogs-
bæjar í rekstrarumsjón hans.
Þórdís Yngvadóttir er verk-
efnastjóri hjá Brú lífeyrissjóði
og hefur umsjón með starfs-
lokanámskeiðum fyrir sjóðfé-
laga ofangreindra sjóða.
Þórdís segir að því miður
hugsi fólk oftar en ekki lítið
um lífeyrisréttindi sín fyrr en
að líða fer að starfslokum. „Þá
vakna upp spurningar sem
snerta afkomu eftir starfslok
en margir vita ekki hvar hægt
er að finna upplýsingar um
lífeyrisréttindi sín. Það er nú
sem betur fer hægt að finna
á einum stað, Lífeyrisgáttinni
www.lifeyrisgattin.is, en þar eru
upplýsingar um áunnin réttindi
sem hafa verið samkeyrðar frá
lífeyrissjóðum landsins,” segir
Þórdís. „Á námskeiðunum er
farið yfir helstu réttindi sjóðfé-
laga, t.d. hvenær sjóðfélaginn
geti byrjað á lífeyri, makalíf-
eyri en mismunandi reglur gilda
á milli sjóða. Þá er líka sýnt
hvernig á að sækja um lífeyri
hjá sjóðnum á umsóknargátt.“
Námskeiðin eru haldin að
jafnaði einu sinni í mánuði yfir
vetrartímann en þau eru kynnt
á heimasíðu sjóðsins. Þá hafa
sveitarfélög og stéttarfélög
haldið starfslokanámskeið fyrir
sitt fólk og boðið sjóðnum að
flytja fræðsluerindi um lífeyr-
ismál.
„Sjóðfélagar eru að sjálf-
sögðu alltaf velkomnir á skrif-
stofu sjóðsins í Sigtúni 42 til að
fá frekari upplýsingar um lífeyr-
isréttindi sín.“
Allar nánari upplýsingar má
finna á heimasíðu sjóðsins,
www.lifbru.is.
Þórdís Yngvadóttir,
verkefnastjóri hjá Brú
lífeyrissjóði, hvetur fólk til
þess að sækja sér fræðslu
um lífeyrisréttindi sín.
Mynd | Hari
komið inn á skattskýrsluna, laun
og lán, en skattskýrslan getur
verið flókin ef einstaklingurinn
er með rekstur. Þá þarf að skila
inn rekstrarskýrslu samhliða
þínu persónulegu skattframtali
og getur það vafist fyrir mörg-
um hvernig það er gert. Eins ef
um íbúðarkaup og sölu sum-
arhúsa og eignar eins og bíla og
fleira er að ræða,“ segir Bryndís.
Aðspurð segir Bryndís að Ís-
lendingar standi sig almennt
mjög vel þegar kemur að skatt-
skilum. Rafræn skil hafi einfald-
að hlutina til muna og stór hóp-
ur fólks vilji hafa allt sitt í lagi.
Ef skýrslan sé rétt út fyllt komi
engir bakreikningar frá skattin-
um, enda geti fólk reiknað út
skattana eftir að það hefur fyllt
út skýrsluna.
Fræðsla við unga fólkið
Þó Íslendingar standi sig al-
mennt vel þegar kemur að
skattskilum telur Bryndís að
þörf sé á aukinni upplýsingagjöf
um fjármál. Sér í lagi fyrir ungt
fólk.
„Það ætti að kenna ungu fólki
í skóla að geta lesið launaseðl-
ana sína og vita hvers vegna
þú ert að greiða í lífeyris-
sjóð. Einnig hvað gjalddagi og
eindagi reiknings er,“ segir hún.
Bryndís segir að mikið hafi
borið á því að ungt fólk stofni
fyrirtæki samhliða fastri vinnu,
eins og með leigu á gistiað-
stöðu.
„Það hugsar með sér að snið-
ugt sé að leigja út íbúðina sína
og hirða gróðann en því miður
er það ekki svona einfalt og
ætti unga fólkið að kynna sér
út í hvað það er að fara áður en
bakreikningur kemur frá ríkisfé-
hirði upp á dágóða upphæð sem
það hefur ekki staðið skil á. Það
setur unga fólkið í slæma stöðu
að þurfa að fara borga til ríkis-
féhirðis vexti og gjöld sem það
hefur ekki hugmynd um hvers
vegna það þarf að greiða. Þetta
er ekki eins einfalt eins og það
lítur út fyrir að vera og er Rík-
isskattstjóri með námskeið um
þessi málefni. Lykilatriði í þessu
öllu saman er fræðsla.“
Bryndís Björk Karlsdóttir
hjá Réttskilum segir að
fræðsla við ungt fólk sé
afskaplega mikilvæg.