Fréttatíminn - 27.01.2017, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 27.01.2017, Blaðsíða 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. janúar 2017 Mjúk og falleg „satin striped“ Policotton sængurföt. Sængurver 140x200 cm Koddaver 50x70 cm Fullt verð: 6.490 kr. DORMA HOME sængurföt Aðeins 4.868 kr. Svart eða brúnt PU-leður. Stærð: 80x90 H: 105 cm. Fullt verð: 39.900 kr. POLO hægindastóll ÚTSALA DORMA NÚ Á FJÓRUM STÖÐUM Nýttu tækifærið ÚTSALAN í fullu fjöri ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 10–18 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 12–16 (Smáratorgi) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði 25% AFSLÁTTUR Aðeins 19.950 kr. 50% AFSLÁTTUR NATURE’S REST heilsurúm m/classic botni Verðdæmi 120 x 200 cm Fullt verð: 79.900 kr. 25% AFSLÁTTUR af 120x 200 cm á meðan birgðir endast. Svart PU leður á botni. Aðeins 59.920 kr. OPIÐ Á SUNNUDÖGUM Í DORMA SMÁRATORGI Laxeldi - Tvö eldisfyrirtæki þurftu að farga eldislöxum vegna nýrna- veiki. Framkvæmdastjóri Arctic Seafarm, segir að öllum seiðum fyrirtækisins hafa verið fargað og að fjárhagslegt tjón sé mikið. Dýralæknir Matvælastofnunar segir að smitið megi líklega rekja til óvarkárni en að villtum löxum stafi engin ógn af nýrnaveiki. Orri Vigfússon hefur sent Úr- skurðarnefnd um upplýsingamál kæru vegna skorts á upplýsingum um málið. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Laxeldisfyrirtækin Arnarlax og Arctic Sea Farm þurftu að farga um 200 tonnum af eldislaxaseiðum í haust eftir að nýrnaveiki kom upp í seiðaeldisstöðvum fyrirtækjanna í Tálknafirði. Siggi Pétursson, fram- kvæmdastjóri hjá Arctic Seafarm, segir að um verulegt fjárhagslegt tjón hafi verið að ræða hjá fyrirtæk- inu þar sem þurft hafi að slátra öllum seiðum fyrirtækisins fyrir árið 2016. „Þetta voru um 500 þúsund seiði sem voru allt frá 100 grömmum og upp í 600 grömm. Þetta voru því all- mörg tonn hjá okkur.“ Hann segir að hluti þess lax sem þurfti að slátra hafi verið seldur í dýrafóður. „Fjárhags- lega tjónið liggur ekki fyrir ennþá en við erum að klára ársuppgjörið.“ Laxinum var fargað í Sorphirðunar- stöð Vesturlands en aðeins þar má farga sýktum eldisfiski á Íslandi. Gísli Jónsson, dýralæknir hjá Mat- vælastofnun, segir að stofnunin hafi uppgötvað smitið við reglubundið eftirlit. Eldislaxinn smitast af nýrna- veikinni með því að smit berst úr náttúrunni, frá villtum löxum, og í eldisfiska. Smitið getur til dæmis borist með saurgerlum úr villtum löxum og inn í opnar sjókvíar og eins getur smit borist inn í seiðaeld- isstöðvar með sýktum sjó. Gísli segir að ekki liggi fyrir hvernig smitið átti sér stað. „Það var tekin sú ákvörðun að farga fiskunum vegna þess að nýrnaveikin er nú þannig að það eru ekki til nein lyf gegn henni. Þetta er svona riðuveikin okkar. Það eina rétta er að farga. Bæði smitin eru rakin til tengsla við villta laxa.“ Gísli segir að þó að nýrnaveikin grasseri í eldisstöðvunum þá geti hún ekki valdið tjóni hjá villtum laxastofn- um þar sem nýrnaveikin valdi ekki klínískum sjúkdómi hjá viltum fisk- um. „Það eru engin rök sem hníga að því að náttúrunni stafi ógn af eldiskvíunum. Þessu eru oft snúið á haus. Þessir sjúkdómar hafa bókstaf- lega engin áhrif á villtan fisk.“ Til stendur að margfalda fram- leiðslu á eldislaxi á Íslandi á næstu árum og hefur komið fram opinber- lega að laxeldisfyrirtækin ætli sér að fara úr samtals 10 þúsund tonna framleiðslu og upp í 100 þúsund á nokkrum árum. Arnarlax er stærsta laxeldisfyrirtæki Íslands og stefnir á 30 til 40 þúsund tonna framleiðslu á meðan Arctic Sea Farm ætlar að stórauka framleiðsluna hjá sér, með- al annars í Ísafjarðardjúpi. Gísli segir að langlíklegast sé að starfsmenn laxeldisfyrirtækjanna hafi verið óvarkárir. „Þetta ger- ist nú líklega þannig að menn eru ógætnir. Það hefur verið mikil upp- bygging sérstaklega hjá öðru fyrir- tækinu. Tálknafjörður hefur verið okkur erfiður á síðastliðnum árum hvað varðar nýrnaveiki. Það er mik- il nýrnaveiki í villtum fiski og menn þurfa að gæta sín extra vel. Mönnum tekst misvel að verjast villta fiskin- um, menn eru kannski að fara með verkfæri sem komist hafa í snertingu við sjóinn inn í seiðaeldisstöðvar og annað slíkt.“ Orri Vigfússon, formaður NASF - verndarsjóðs íslenskra laxastofna, segir að hann hafi kært Sorp- hirðunarstöð Vesturlands til úr- skurðarnefndar um upplýsingamál þar sem fyrirtækið hafi neitað að veita honum nákvæmar upplýsingar um förgun laxsins í þessum tveimur tilfellum. „Við viljum bara fá að vita um þetta. Ef það kemur upp svarti- dauði getur opinber stofnun þá bara neitað að veita upplýsingar um það? Þetta gildir í landbúnaði til dæm- is, ef það kemur upp gin- og klaufa- veiki, þá er öllum sagt frá því strax svo menn geti verið á varðbergi.“ Orri segist ekki hafa fengið svar frá nefndinni ennþá. Laxeldisfyrirtækið Arnarlax, sem Víkingur Gunnarsson stýrir, þurfti að slátra og farga eldislaxaseiðum sem sýktust af nýrnaveiki í fyrra. Dýralæknir hjá Mat- vælastofnun segir óvarkárni líklega skýringu á sýkingunni þar sem uppbygging hafi verið hröð í laxeldinu. Þurftu að farga um 200 tonnum af eldislaxi vegna sjúkdóms Heilbrigðismál Páll Matthíasson segir að skýrslan um plastbarka- málið verði tilbúin í maí. Skiptar skoðanir um hvort skipa þurfi aðra óháða rannsóknarnefnd í plastbarkamálinu. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Skýrsla um íslenska anga plast- barkamálsins sem óháð, þriggja manna nefnd vinnur að beiðni Landspítala-háskólasjúkrahúss (LSH) og Háskóla Íslands (HÍ) verð- ur gerð opinber á heimasíðum þessara stofnana í maí. Þetta kem- ur fram í svari frá Páli Matthíassyni, forstjóra Landspítalans. Skýrsla nefndarinnar, sem Páll Hreinsson hæstaréttardómari stýrir, verður kynnt fyrir fjölmiðlum áður en hún verður gerð opinber samkvæmt svarinu. Umræða hefur skapast um það eftir sýningar Ríkisútvarpsins á sænskri heimildarmynd um plast- barkamálið hvort ríkisvaldið þurfi ekki að leggja í sérstaka, óháða rannsókn á málinu. Sú rannsókn myndi því bætast við óháðu rann- sókn LSH og HÍ. Bæði þingmaður- inn Brynjar Níelsson og Ögmund- ur Jónasson hafið haldið þessum skoðunum fram. Miðað við svör Páls Matthíasson- ar þá er rannsóknarnefndin hins vegar alveg óháð LSH og HÍ og verða niðurstöður nefndarinnar birtar óbreyttar að því leyti sem Skýrslan um plastbarkamálið verður gerð opinber óbreytt Í hnotskurn Plastbarkamálið snýst um ígræðslur ítalska skurðlæknis- ins Paulo Macchiarinis á plast- börkum í nokkra einstaklinga á árunum 2011 til 2013. Einn af þeim var Andemariam Beyene, Erítreubúi sem bjó á Íslandi og glímdi við krabbamein í hálsi. LSH sendi hann til meðferðar í Stokkhólmi. lög leyfa. Hér er átt við að upplýs- ingar upp úr sjúkraskrá fyrsta plast- barkaþegans Andemariam Beyene kunna að vera þess eðlis að lög um persónuvernd heimila ekki að þær séu birtar. „Um er að ræða ytri nefnd, skipaða óháðum aðilum og hefur hún fullt forræði á niðurstöð- um rannsóknarinnar. Efni skýrslu nefndarinnar verður því ekki breytt frá þeirri útgáfu sem nefndin skilar af sér.“ Starf nefndarinnar virðist því ekki vera svo ólík vinnu Rann- sóknarnefndar Alþingis á sínum tíma. Manndráp „Við getum ekki gefið upp hvort áhald hafi verið notað, en það er engin skipulögð leit að því, “ segir Grímur Grímsson um hvort lögreglan hafi lagt áherslu á að finna morðvopn í tengslum við dauða Birnu Brjánsdóttur. Réttarmeinafræðingur staðfesti í vikunni að lík sem fannst í fjörunni nærri Selvogsvita væri af Birnu og að henni hefði örugglega verið ráð- inn bani. Fram kom í fjölmiðlum á mið- vikudag að lögreglan útilokaði ekki að þarna hefði verið um manndráp af gáleysi að ræða, en aðspurður sagði Grímur að málið væri rann- sakað sem manndráp. Þeir útilok- uðu hinsvegar enga möguleika við rannsókn mála. Þeir væru hins- vegar ekki að leita að morðvopni. Grænlendingarnir tveir sem eru í haldi hafa verið yfirheyrðir nokkrum sinnum í vikunni, en þeir hafa hvorugir játað verknaðinn og því liggur afstaða þeirra til sakaefn- anna ekki fyrir.| vg Ekki leitað að morðvopni Grímur Grímsson á blaðamannafundi lögreglunnar síðustu helgi þegar til- kynnt var að lík Birnu væri fundið.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.