Fréttatíminn - 27.01.2017, Blaðsíða 44
Hvað er meistaramánuður?
Meistaramánuður var fyrst haldinn árið 2008. Þá voru þátttak-
endur aðeins tveir en þátttekendafjöldi og umfang mánaðarins óx ár
frá ári og voru þáttakendur vel á annan tug þúsunda víðsvegar um
heiminn árið 2014.
Í Meistaramánuði skora þátttakendur sjálfa sig á hólm og setja
sér markmið. Markmiðin geta verið stór og smá en í gegnum árin
hafa þáttakendur til að mynda sett sér markmið um að heimsækja
ömmu og afa oftar, taka mataræðið í gegn, lesa fleiri bækur, klífa
fjöll, hætta að drekka áfengi og fara fyrr á fætur en aðra daga.
Upphafsmenn Meistaramánuðar voru þeir Magnús Berg
Magnússon, Þorsteinn Kári Jónsson og Jökull Sólberg Auðunsson.
4 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2017 HEILSA
Unnið í samstarfi við Icecare.
Íris Ásmundardóttir er á fullu í framhaldskólanámi og æfir ball-ett í rúmlega tuttugu klukku-stundir á viku ásamt því að vinna
sem aðstoðarkennari í ballett fyrir
þau sem eru að taka fyrstu sporin.
„Þegar ég lærði að stærsti hluti
ónæmiskerfisins væri í meltingar-
færunum ákvað ég að gera eins vel
og ég gæti til að styðja við og halda
þeim í sem bestu standi. Ég ætla
mér langt í ballettinum og mér hefur
undanfarin tvö ár hlotnast sá heiður
að fá að stunda nám við sumarskóla
Boston Ballet ásamt því að hafa
tekið tíma bæði í Steps on Broad-
way og í London. Til þess að geta
stundað þetta allt saman af fullum
krafti tek ég Bio-Kult á hverjum degi
til að styrkja ónæmiskerfið og koma
í veg fyrir að ég fái allskonar um-
gangspestir sem ég má ekkert vera
Margrét Alice heilsumarkþjálfi mælir
heilshugar með meltingargerlunum frá
Bio-Kult.
að því að eyða tímanum í,“ segir Íris.
Henni finnst Bio-Kult gera sér
gott samhliða heilsusamlegu matar-
æði. „Ég er allavega mjög hraust,
sjaldan þreytt, með góða ein-
beitingu og hlakka nær undantekn-
ingarlaust að takast á við verkefni
dagsins.“
Bio-Kult fyrir alla
Innihald Bio-Kult Candéa-hylkj-
anna er öflug blanda af vinveittum
gerlum ásamt hvítlauk og grape
seed extract. Bio-Kult Candéa hylk-
in virka sem vörn gegn candida-
-sveppasýkingu í meltingarvegi
kvenna og karla og sem vörn gegn
sveppasýkingu á viðkvæmum svæð-
um hjá konum. Candida-sveppasýk-
ing getur komið fram með ólíkum
hætti hjá fólki svo sem munnangur,
fæðuóþol, pirringur og skapsveifl-
ur, þreyta, brjóstsviði, verkir í liðum,
mígreni eða ýmis húðvandamál.
Bio-Kult Original er einnig öflug
Styrkir ónæmiskerfið
og meltinguna
Hreysti og betri einbeiting fyrir tilstuðlan Bio-Kult.
Íris Ásmundardóttir ballerína er
mjög hraust, sjaldan þreytt og
með góða einbeitingu.
blanda af vinveittum gerlum sem
styrkja þarmaflóruna. Bio-Kult
Candéa og Bio-Kult Original henta
vel fyrir alla, einnig fyrir barnshaf-
andi konur, mjólkandi mæður og
börn. Fólk með mjólkur- og sojaóþol
má nota vörurnar. Mælt er með Bio-
Kult í bókinni Meltingarvegurinn og
geðheilsa eftir Dr. Natasha Camp-
bell-McBride.
Upplýsingasími: 530 3000
skidasvaedi.is
Opið
Virka daga: kl. 14–21
Helgar: kl. 10–17
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
OPIÐ KL. 10–17
UM HELGINA Í BLÁFJÖLLUM
KOMDU
Í FJÖLLIN
DAGSKORT FÁST Á N1 ÁRTÚNSHÖFÐA,
STÓRAHJALLA,
LÆKJARGÖTU
HAFNARFIRÐI OG
MOSFELLSBÆ
Vinsælt og nothæft námskeið fyrir einstkalinga og pör sem ég
hef verið með í 25 ár. Námskeiðið byggist upp á slökunarnuddi
á bak, háls og handleggi með sérvöldum ilmkjarnaolíum.
Djúp- og þrýstipunktanuddi ásamt svæðameðhöndlun.
Farið í ilmolíur og góðar uppskriftir.
Ath! Námskeiðið er þessa tvo daga,
laugardaginn 4. febrúar frá kl. 11.00-15.00
og fimmtudaginn 9 febrúar
frá kl. 17.00 - 21.00
Verð: kr. 33.000 innifalið í
verði ilmolíuflaska og mappa.
Ath! aðeins 6 manns í hóp.
Nánari upplýsingar:
heilsusetur.is og 896-9653
Baknudds-
námskeið
Helgina 30. apríl - 1. maí
næstkomandi.
Verð 32.000 kr. með olíu
og bæklingi.
BAKNUDDNÁMSKEIÐ
Skráning og nánari upplýsingar
í síma 552 1850 / 896 9653. netfang:
thorgunna.thorarinsdottir@gmail.com.
Meistaramánuður
endurvakinn í febrúar
Pálmar Ragnarsson, fyrirlesari og fyrrum körfuboltakappi, er andlit og aðalskipuleggj-
andi Meistaramánaðar sem verður haldinn í febrúar.
Á annan tug þúsund Íslendingar tóku þátt árið 2014 og nýr skipu-leggjandi stefnir að því að fá sem flesta
með í ár.
Meistaramánuður verður endur-
tekinn í febrúar eftir að hafa legið
í dvala um tveggja ára skeið. Að
þessu sinni verður fyrrum körfu-
boltakappinn Pálmar Ragnarsson
andlit og aðalskipuleggjandi Meist-
aramánuðar og Íslandsbanki er
bakhjarl verkefnisins.
Pálmar hefur farið mikinn í
kynningu á Meistaramánuði síð-
ustu vikuna, hefur mætt í viðtöl í
fjölmarga útvarpsþætti og lýst því
yfir að hann sé svo mikill keppnis-
maður að hann ætli að fá metþátt-
töku í ár. Það er ekki lítið verk því
síðast þegar Meistaramánuður
var haldinn, árið 2014, tóku vel á
annan tug þúsund Íslendinga þátt
víðsvegar um heiminn.
Fram til þessa hefur
Meistaramánuður verið
haldinn í október en
Pálmar segir að hann
hafi verið færður í
stysta mánuð ársins vegna þess að
algengt sé að fólk setji sér markmið
í janúar en gefist svo upp á þeim í
febrúar.
„Við viljum með þessu hvetja
fólk til þess að halda áfram að
reyna vera besta útgáfan af sjálfu
sér,“ var haft eftir honum hjá Nú-
tímanum.
Eins og fyrr verður hægt að búa
til eigið markmiðadagatal inni á
heimasíðu Meistaramánaðar og
prenta það út. Það er hverjum og
einum í sjálfsvald sett hver mark-
miðin eru; hvort þau snúa að heilsu
eða öðru sem fólk vill bæta í eigin
fari. Sjálfur sagði Pálmar frá því
í útvarpsviðtali að hann setti sér
fjögur markmið; að sofa í átta tíma
á nóttunni í febrúar, hætta að nota
enskuslettur, skrifa eina sögu í
hverri viku og að reyna að fá sem
flesta til að taka þátt í Meistara-
mánuði.
Allar nánari upplýsingar má
finna á www.meistaramanud-
ur.is og á Facebook. Hægt er
að fylgjast með á samfélags-
miðlum með því að nota
myllumerkið #meistaram.