Fréttatíminn - 27.01.2017, Qupperneq 20
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Við fórum að pæla í þessu þegar mamma og pabbi ákváðu að losa sig við gamla bílinn sinn,“ segir
Örn Eldjárn en hann deilir bíl
með tveimur vinum sínum, þeim
Snorra Helgasyni og Gunnari
Tynes.
Vinirnir búa allir í miðbænum,
Örn og Gunnar búa saman en
Snorri með kærustunni, og þeir
starfa allir sem tónlistarmenn.
„Við fórum að ræða hvað það væri
mikið bruðl að eiga bíl svo við
ákváðum að kaupa hann bara allir
saman. Það er svo miklu sniðugra
fyrir okkur að deila bíl því okkur
vantar eiginlega bara bíl til að
róta og fara í IKEA. Svo förum
við alltaf allir saman einu sinni á
sumri í Galtarvita fyrir vestan og
þá vantar okkur alltaf bíl. En þar
sem við búum í miðbænum þurf-
um við ekki bíl dagsdaglega.“
Örn og Gunnar leigja saman í
blokkaríbúð með aðgang að bíla-
kjallara svo það kemur í þeirra
hlut að hýsa bílinn. Hingað til
hefur það fyrirkomulag ekki verið
neinum vandkvæðum bundið.
„Við erum allir frekar afslappaðir
svo þetta gengur vel upp,“ segir
Örn. „Við Gunni erum kannski
dáldið að taka bílinn yfir því
Snorri er farinn að fá aðgang að
bíl tengdaforeldra sinna. Og ég er
sá eini af okkur sem á barn svo
ég er yfirleitt meira á bílnum. Svo
búa foreldrar mínir í Svarf-
aðadal, svo ég get notað
bílinn til að komast
þangað í fríum. Ætli
ég sé ekki frekastur en
ef kallið kemur þá er
hann alltaf laus. Þetta
er bara fullkomin sam-
búð. Við erum við ekki
með neitt fast skipulag, það
er bara hringt og spurt eða þá
við notum spjallþráðinn okk-
ar sem heitir Felles, í höf-
uðið á bílnum. Þetta er gott
fyrirkomulag fyrir fólk sem
býr og starfar í miðbænum
og ég veit að margir vinir
mínir hafa pælt í þessu,
sérstaklega til að komast
í IKEA. Það vantar alltaf
alla Billy hillu.“
Þrír menn og einn bíll
Fullkomin sambúð
Vinirnir Örn Eldjárn,
Gunnar Tynes og
Snorri Helgason nota
bílinn fyrst og fremst
til að flytja hljóðfæri
og Billy-hillur.
Þrír menn og bíll.
Bíllinn Felles er
af Skoda Oktavia
Station gerðinni, ekta
fjölskyldubíll fyrir
nútímafjölskylduna
Örn, Gunnar og Snorra.
SJÓNMÆLINGAR
Tímapantanir:
Optical Studio í Leifsstöð, 4250500
Optical Studio í Smáralind, 5288500
Optical Studio í Keflavík, 4213811
20 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. janúar 2017