Fréttatíminn - 27.01.2017, Qupperneq 22
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Krizstina G. Agueda er fædd og uppalin í Szekesfehervar, sem er næsta stóra borg við Budapest. Frá
unga aldri hafði Krizstina mikla
orku og þörf fyrir að hreyfa sem
varð til þess að ung var hún sett í
fimleika. Hún segir uppeldi sitt, í
fimleikunum og í kommúnistarík-
inu Ungverjalandi, hafa einkennst
af miklum aga sem hafi mótað allt
hennar líf.
Ólst upp við heraga
„Þetta voru auðvitað svakalegir
tímar. Það var til dæmis ekkert
atvinnuleysi í borginni minni því
þeir sem vildu ekki eða gátu ekki
unnið var bara stungið í fangelsi,
leynilögreglan sá um að leita það
fólk uppi. Í skólanum þurftum
við að standa grafkyrr í röð þar
til kennarinn gaf merki um
annað, allsstaðar í samfé-
laginu var heragi. Foreldr-
ar mínir skildu þegar ég var
þriggja ára sem þýddi að við
mamma vorum slæmar fyrir-
myndir og að ég fékk ekki að-
gang að menntaskóla. Ég fékk
seinna séns því ég var svo
góður námsmaður en
annars höfðu börn án
föður ekki tækifæri til
náms. Svo var líka
bannað að læra
önnur tungumál
en rússnesku og
þýsku, því það
var svo hættu-
legt að lesa
efni frá öðrum
löndum,“ segir
Krizstina á sinni
reiprennandi
íslensku. Í
dag rekur hún
Hreyfiland, fjöl-
skyldu- og barn-
væna heilsurækt
á Seltjarnarnesi, þar
sem hún vinnur meðal
annars með tvítyngdum börnum
og getur varla hugsað sér meiri
kúgun en að banna fólki að læra
tungumál.
Fitness stjarna í Ungverjalandi
Þegar leið á unglingsárin færði
Krizstina sig hægt og rólega úr
fimleikunum og yfir í fitnessið.
Fitness er mjög vinsæl íþrótt í
Ungverjalandi, og snýst ekki um
vaxtarrækt eins og það fitness sem
þekkist betur hér á landi, heldur
er íþróttin blanda af þolfimi og
nútímafimleikum. Krizstina náði
fljótt miklum árangri í íþróttinni
og var ung orðin hálfgerð stjarna
á heimaslóðunum. „Ég stofnaði
mína eigin líkamsræktarstöð sem
var sérstaklega fyrir konur. Ég
fór líka í þolfimikennaranám og
þar sem mig hafði alltaf dreymt
innst inni um að vinna
með börnum þá
sérhæfði ég
mig í kennslu
barna. Ég fór
að kenna
börnum
fitkid sem er
barnaíþrótt
sem keppt er
í út um allan
heim og snýst
fyrst og fremst
um að
sýna
Elti ástina til Íslands og stofnaði
líkamsræktarstöð
Krizstina G. Agueda er fyrrverandi fitness
stjarna og rekur vinsæla heilsurækt fyrir
barnafjölskyldur á Seltjarnarnesi. Krizstina er
frá Ungverjalandi, er gift Spánverja en segir
hjarta sitt slá á íslensku.
Krizstina G. Agueda rak líkams-
ræktarstöð og vann við fjölmiðla í
Ungverjalandi þegar hún hitti óvænt
ástina í lífi sínu og ákvað að flytja
til Íslands. „Sko, hann er í fyrsta lagi
mjög fallegur, en þegar hann sagðist
búa á Íslandi þá varð hann skyndilega
ennþá meira spennandi.“
EF ÞÚ ERT RÉTTA MANNESKJAN ,
ÞÁ ERUM VIÐ MEÐ RÉTTA STARFIÐ!
Við leitum af starfsmanni sem er með brennandi
áhuga á sölu ásamt færni í mannlegum samskiptum.
Um er að ræða 100% starf í
auglýsingasölu og markaðsráðgjöf.
Reynsla af sölustörfum æskileg
auglysingar@frettatiminn.is 531 3300
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu berast á
sigridurdagny@frettatiminn.is
fyrir 1.febrúar nk.
Þegar leið á unglingsárin færði Krizstina sig hægt og rólega úr fimleikunum og yfir í fitnessið. Hér er hún í líkamsræktarstöð-
inni sinni árið 1994.
fram á þol með hreyfingum úr
fimleikum. Hún snýst líka um
heilbrigðan lífsstíl, líf án tóbaks
og áfengis, ekki að vera sterkastur
og bestur heldur að hafa gaman,“
segir Krizstina sem kennir einmitt
fitkid í Hreyfilandi og börnin
hennar fjögur hafa öll keppt í
fitkid út um allan heim.
Krizstina stjórnaði auk þess
sjónvarps - og útvarpsþætti í
heimalandinu þar sem áherslan
var á hreyfingu og heilsutengd
málefni. „Það eru rúm tuttugu ár
síðan og sjónvarpið í Ungverja-
landi var annað en það er í dag. Ég
hugsa að ég hafi nú fyrst og fremst
verið fengin til að kynna þennan
sjónvarpsþátt því ég var ung og
falleg,“ segir hún og hlær.
U-beygja til Íslands
Auk þess að reka líkamsræktar-
stöð og vinna við fjölmiðla ferð-
aðist Krizstina um allan heim og
keppti í fitnessi. Eitt þessara ferða-
laga átti eftir að hafa mikil áhrif
á líf hennar. „Ég var í vinnuferð í
Barcelona þegar ég hitti Juan José.
Hann var þarna í viðskiptaferð
og við byrjuðum að hittast og
eitt leiddi af öðru. Sko, hann er í
fyrsta lagi mjög fallegur, en þegar
hann sagðist búa á Íslandi þá varð
hann skyndilega ennþá meira
spennandi,“ segir Krizstina og
hlær. „Það er svo langt síðan þetta
var að sambandið fór fram í gegn-
um faxtæki til að byrja með. Þegar
hann svo bauð mér að koma í
heimsókn til Íslands sagði ég strax
já, því ég var jafn spennt fyrir
landinu og honum. Ég kom hingað
í fyrsta sinn í ágúst og það bara
gerðist eitthvað, þetta var ást við
fyrstu sýn. Landið var fullkomið,
hitastigið var fullkomið og mað-
urinn var fullkominn! Mér fannst
allt í einu allt vera fullkomið og ég
man að ég hugsaði að ég hér vildi
ég setjast að.“
Ákvörðunin um að flytja var
samt alls ekki auðveld því hún
þýddi að Krizstina þurfti að skilja
við allt sem hún hafði byggt upp
í heimalandinu. Hún ákvað þó að
selja fyrirtækið og flytja til Íslands
árið 1999. „Stuttu síðar fór ég að
Foreldrar mínir skildu
þegar ég var þriggja
ára sem þýddi að við
mamma vorum slæmar
fyrirmyndir og að ég
fékk ekki aðgang að
menntaskóla. Ég fékk
seinna séns því ég var
svo góður námsmaður
en annars höfðu börn án
föður ekki tækifæri til
náms.
22 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. janúar 2017