Fréttatíminn - 27.01.2017, Side 24
vinna í Baðhúsinu sem þá var
eina stöðin sem var sérstaklega
fyrir konur. Þar tók ég eftir því að
margar mæður voru með unga-
börnin í barnabílstólnum á meðan
þær æfðu. Ég benti þeim á að við
þyrftum að bæta úr þessu, börnin
yrðu að fá að vera með því það er
fullkomin örvun fyrir barn að vera
lyft af foreldrinu á meðan foreldr-
ið æfir,“ segir Krizstina sem var
með sérstaka mæðratíma í Bað-
húsinu í mörg ár. Hana dreymdi
þó alltaf um að stofna sína eigin
stöð sem væri sérstaklega fyrir
mæður og börn.
Alltaf útlendingur án tungumálsins
„Það var dáldið erfitt fyrir mig að
venjast lífinu hér því þegar maður
er vinsæll á heimaslóðunum þá
áttar maður sig ekki á því hvað
það er erfitt að byrja alveg frá
grunni, og auðvitað án allra gömlu
sambandanna. Ég var ánægð í
Baðhúsinu en eftir nokkur ár var
orðið erfitt fyrir mig að búa hér
og mig langaði aftur til baka. En
þetta snerist líka að miklu leyti
um tungumálið. Ég talaði enga ís-
lensku og ég vildi ekki læra hana,
líklega vegna þess að innst inni
ætlaði ég aftur heim. Þegar mað-
urinn minn spurði mig svo hvað
hann gæti gert til að gera mig ham-
ingjusama á Íslandi þá sagði ég
honum að ég yrði að framkvæma
drauminn um að stofna mína
eigin líkamsræktarstöð, ég gæti
ekki verið hér án þess að byggja
eitthvað upp sjálf,“ segir Krizstina.
Það varð úr að hjónin ákváðu að
fjárfesta í nokkrum áhöldum og
stofnuðu svo Hreyfiland, heilsu-
rækt fyrir mæður og börn, árið
2003. Um leið og Krizstina hafði
tekið ákvörðun, um að vera hér og
byggja upp sitt eigið fyrirtæki, fór
henni að líða betur. „Þegar mér
fór að líða betur ákvað ég að læra
íslensku og eftir að ég lærði tungu-
málið er ég allt önnur manneskja.
Þú verður alltaf útlendingur ef þú
lærir ekki tungumálið, en í dag
slær hjarta mitt á íslensku og því
finnst mér ég vera íslensk. Maður
kemst ekkert inn í kerfið án tungu-
málsins en það þarf að taka þessa
ákvörðun með sjálfum sér, annars
gengur ekkert upp.“
Gott að vera á Seltjarnarnesi
Auk þess að vera með tíma fyr-
ir mæður og börn og fitkid fyrir
krakka í Hreyfilandi, þá leggur
Krizstina sérstaka áherslu á lík-
amsrækt fyrir tvítyngd börn. „Ég
var hrædd um að það gæti orðið
erfitt að ala börnin upp við mörg
tungumál en veit í dag að því fleiri
tungumál sem þau læra því betra,
og ég veit að hreyfing hjálpar börn-
um með fleiri en eitt tungumál
mikið,“ segir Krizstina en á heimili
hennar eru töluð fjögur tungumál.
Hún talar ungversku við börnin,
Juan José talar spænsku við þau,
þau hjónin tala ensku sín á milli og
börnin íslensku sín á milli.
„Þegar ég lærði til íþróttaþjálf-
ara í Ungverjalandi kynntist ég
kenningu sem ég hef mikla trú
á. Hún er sú að hreyfingar sem
tengja saman hægra og vinstra
heilahvelið henti sérstaklega vel
fyrir málþroska tvítyngdra barna.
Þetta hefur virkað mjög vel fyrir
börnin mín og ég er fegin í dag að
hafa verið svona ákveðin við þau
að tala öll þessi tungumál. Þegar
við erum með matargesti heima
snúast samræðurnar oftast um öll
tungumálin sem hljóma í bland
við hvort annað,“ segir Krizstina
sem hefur nú búið á Seltjarnarnesi
í nær tuttugu ár. „Við keyptum
okkur hús á Nesinu stuttu eftir
að ég flutti hingað og árið 2013
flutti ég Hreyfiland líka til Sel-
tjarnarness. Hér er gott að vera en
við erum líka duglega að ferðast.
Þó að hjarta mitt slái á íslensku
og móðurmál barna minna sé ís-
lenska þá vil ég að börnin mín viti
hvaðan þau eru.“
Krizstina ferðaðist um allan heim og
keppni í fitnessi, hér er hún á móti árið
1995.
Líkamsræktarstöð Krisztinu í Ungverjalandi var fyrir konur og börn.
SVÍNVIRKAR
FYRIR HÓPA
SÆTA SVÍNIÐ // Hafnarstræti 1–3 / Sími 555 2900 / saetasvinid.is
KJALLARINN á Sæta svíninu er skemmtilegur staður
fyrir hópa af öllum stærðum og gerðum.
KJALLARINN er frábær fyrir alls konar tilefni;
árshátíðir, hádegis- eða kvöldverð, veislur, vinnufundi,
kokteilboð, bjórkvöld eða fyrir „Happy Hour“ eftir vinnu.
FYRSTA FLOKKS AÐSTAÐA Í NOTALEGUM SAL
• Sæti fyrir allt 50 manns
– hægt er að taka á móti fleirum í standandi veislu
• Skjávarpi og tjald
• Tilvalið er að koma með eigin tónlist og/eða skemmtiatriði
• Bar
• Frábær staðsetning í hjarta Reykjavíkur
Í boði eru fjölbreyttar veitingar; girnilegir hópmatseðlar, spennandi
veitingar fyrir standandi veislur og auðvitað fljótandi veigar.
Við hlökkum til að taka á móti þínum hóp!
GASTROPUB
ELDHÚSIÐ
ER OPIÐ
11.30–23.30
Þegar ég lærði til íþrótta-
þjálfara í Ungverjalandi
kynntist ég kenningu
sem ég hef mikla trú á.
Hún er sú að hreyfingar
sem tengja saman hægra
og vinstra heilahvelið
henti sérstaklega vel fyr-
ir málþroska tvítyngdra
barna. Þetta hefur virk-
að mjög vel fyrir börnin
mín og ég er fegin í dag
að hafa verið svona
ákveðin við þau að tala
öll þessi tungumál.
24 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. janúar 2017