Fréttatíminn - 27.01.2017, Qupperneq 26
Þeir sem hafa áhuga á framúr stefnu legum
kvikmyndum í hæsta gæða flokki ættu að vera
á tánum á næstu dögum. Nú brestur á með
bæði þýskum og frönskum kvikmynda dögum,
auk þess sem kvikmyndir í kappi um Óskars
verðlaun, streyma í bíó. Því er tilvalið að ýta
daglegu amstri til hliðar og skella sér á vertíð.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Þýskir kvikmyndadagar
10. til 19. febrúar, Bíó Paradís
Í sjöunda sinn standa Bíó Paradís
og Goethe Institut í Danmörku
fyrir Þýskum kvikmyndadögum í
samstarfi við Þýska sendiráðið. Að
þessu sinni verða á boðstólum sex
nýjar myndir sem eru þverskurður
af því besta sem þýsk kvikmynda-
list hefur upp á að bjóða. Þjóðverj-
ar framleiða flestar kvikmyndir af
öllum Evrópuþjóðum en afar fáar
þeirra rata í íslensk kvikmynda-
hús. Þessi sannkallaða kvikmynda-
veisla hefst með hinni margum-
töluðu Toni Erdmann í leikstjórn
Maren Ade.
Ekki missa
af þessum
Moonlight
Ekki að ástæðulausu er þessi
kvikmynd talin ein sú besta á
árinu 2016. Myndin er upp-
vaxtarsaga Chirons, svarts
samkynhneigðs stráks sem
elst upp á Flórída í Bandaríkj-
unum. Myndin er einstaklega
hjartnæm saga af grimmd og
hlýju, einelti og vináttu. Hér
er framúrskarandi leikur og
dúndurgott handrit sem skilar
áhrifamikilli mynd sem gengur
upp að öllu leyti.
Moonlight ristir djúpt og á
brýnt erindi við bandarískan
samtíma.
Sýnd í Bíó Paradís um þessar
mundir.
Lion
Lion fjallar um hinn fimm ára
gamla Saroo sem týnist í lest
á leið í burtu frá heimili sínu.
Myndin byggir á sönnum at-
burðum sem Saroo lýsti sjálfur
í bókinni The Long Way Home
sem vakti mikla athygli í Ástral-
íu og á Indlandi.
Saroo tekst að lifa af margar
hremmingar, heimilislaus á göt-
unni, áður en hann fær pláss
á munaðarleysingjahæli, sem
er þó ekki öruggasti staðurinn
til að vera á. Að lokum er hann
ættleiddur af áströlsku pari
sem taka á móti honum með ást
og umhyggju. Hann bælir niður
minningar sínar úr fortíðinni
og vonina um að finna móður
sína og bróður á ný, af ótta við
að særa nýju foreldra sína. En
þegar hann hittir nokkra Ind-
verja fyrir tilviljun vaknar þrá-
in á ný. Fáar æskuminningar
sitja eftir í huga hans en með
hjálp Google Earth leggur hann
af stað í leitina að nálinni í hey-
stakkinum.
Sýnd í Bíó Paradís um þessar
mundir
Hjartasteinn
Hjartasteinn er örlagarík
þroskasaga sem gerist í litlu
sjávarþorpi á Íslandi. Myndin
fjallar um sterka vináttu tveggja
drengja sem eru að taka sín
fyrstu skref inn í unglingsárin
og uppgötva ástina.
Myndin hefur verið ausin lofi
og flogið inn á stærstu kvik-
myndahátíðir heims.
Hjartasteinn er fyrsta kvik-
mynd Guðmundar Arnars Guð-
mundssonar og hefur sópað til
sín verðlaunum.
Sýnd í Smárabíói og Há-
skólabíói um þessar mundir.
Ruglaðasta myndin
Toni Erdmann
Áður en þessi mynd verður mærð
er rétt að taka fram að hún tæpir
þrír klukkutímar að lengd, á þýsku
og ensku og gerist í Rúmeníu. Það
er kannski mikið á áhorfandann
lagt en útkoman er drepfyndin og
hárbeitt mynd sem sækir á mann
lengi.
Gagnrýnendur halda ekki vatni
yfir þessari óvenjulegu sögu sem
sýnir allt aðrar persónur og við-
fangsefni en venjulega eru dregin
upp á hvíta tjaldið. Myndin er frá-
brugðin öllu sem ratað hefur í ís-
lensk kvikmyndahús í háa herrans
tíð. Hún er raunar svo geggjuð að í
gagnrýnendur hafa lýst henni sem
„game changer“.
Sagan er dramatískt grín og
fjallar um föður sem leitast við að
tengjast dóttur sinni, en hún er
framakona í viðskiptum. Faðirinn
fer óvenjulegar leiðir til að höfða
til dótturinnar og grípur til þess
ráðs að elta hana uppi í Rúmeníu
þar sem hún starfar. Þar laumast
hann inn í hversdagslíf hennar
í tíma og ótíma og brýtur allar
óskrifaðar reglur í samskiptum.
Hann ruglar í öllum sem á vegi
hans verða og á köflum er ruglið
svo súrrealískt að ómögulegt er
að skilja um hvað myndin fjallar.
Hinar absúrd uppákomur sem
faðirinn setur af stað, fara svo að
öðlast merkingu þegar þær ögra
tómhyggjunni og tilfinningadoð-
anum sem einkenna viðskipta-
heim dótturinnar.
Leikstjórinn Maren Ade er ein
skærasta stjarnan í evrópskri kvik-
myndagerð eftir þessa mynd og
aðalleikararnir, þau Sandra Hüller
og Peter Simonischek, eru ógleym-
anleg í hlutverkum sínum.
Ef þig langar að sjá mynd sem
ruglar í hausnum á þér, veldu
þessa!
Frumsýnd í Bíó Paradís 10.
febrúar
Kvikmyndaáhugafólk,
upp úr sófanum!
Franskir kvikmyndadagar
27. janúar til 10. febrúar í Reykjavík
28. janúar til 3. febrúar á Akureyri
Á hátíðinni verða 11 áhugaverðar
og fjölbreyttar kvikmyndir sýnd-
ar á 14 dögum. Hver um sig hefur
vakið mikla athygli á kvikmynda-
hátíðum. Umtöluðust er líklega
opnunarmyndin Elle eftir Paul
Verhoevens. Leikstjórinn á að baki
myndir eins og Basic Instict, Ro-
boCop og Total Recall, en spreytir
sig í þessari atrennu á afar um-
deildum sálfræðitrylli.
Myndinni er ýmist hrósað upp
í skýin eða slátrað af gagnrýnend-
um en flestar umsagnir stóru kvik-
myndamiðlanna eru þó sam-
mála um að myndin sé þess
virði að sjá. Elle var sýnd á
Cannes í fyrra og er framlag
Frakklands til Óskarsverð-
launa sem besta erlenda
myndin.
Hún segir frá afar ógn-
vænlegri árás sem aðal-
persónan verður fyrir á heim-
ili sínu af grímuklæddum manni.
Eftir því sem sögunni vindur fram
er óljóst hversu mikið fórnarlamb
konan í raun er. Myndin dans-
ar við eldfimt málefni og hefur
framkallað heiftarleg viðbrögð af
öllum toga. Óhætt er að segja að í
myndinni sé erfitt að greina svart
frá hvítu og rétt frá röngu heldur
fer hún með áhorfandann á miklu
óþægilegri slóðir.
Aðalleikkona myndarinnar,
Isabelle Huppert, hefur nú þegar
hlotið fern verðlaun fyrir leik sinn
í myndinni, meðal annars Gotham
verðlaunin í New York.
Á frönsku kvikmyndahá-
tíðinni eru flestar myndirn-
ar með enskum texta, nema
teiknimyndin Huldudreng-
urinn sem er með íslensk-
um texta.
Nánar um hátíðina á
smarabio.is/fff
Elle er opnunarmynd frönsku kvik-
myndahátíðarinnar en hún er ýmist
elskuð eða hötuð af gagnrýnendum.
Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands
verða veitt í 14. skipti þann 4. mars næstkomandi.
Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en
skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er föstudagurinn 27. janúar.
Eins og á síðasta ári verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir
eru þessir:
• Besta umfjöllun ársins 2016
• Viðtal ársins 2016
• Rannsóknarblaðamennska ársins 2016
• Blaðamannaverðlaun ársins 2016
Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna á skrifstofu
Blaðamannafélagsins í Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma
ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni.
Jafnframt er hægt að tilnefna með rafrænum hætti á heimasíðu BÍ,
www.press.is
26 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. janúar 2017