Fréttatíminn - 27.01.2017, Qupperneq 30

Fréttatíminn - 27.01.2017, Qupperneq 30
ALLT UM LEYNDARDÓMA HÚÐARINNAR ★★★★★ AMAZON.DE BJARGAÐU EIGIN SKINNI! 20% afsláttur af öllum vörum til 17. júní Túnika kr. 3000 Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í ittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega 20% afsláttur af öllum vörum til 17. júní Túnika kr. 3000 Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í ittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglegaost.tiskufataverslun most.c_tiska 280cm 98cm ALLT Á SLIKK - VERÐSPRENGJA KR 1000, KR 2000, KR 3000, KR 4000 OG EKKERT DÝRARA EN KR 5000 30 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. janúar 2017 Ríkharður Friðriksson kann vel við tölvur í tónlist. Hann er einn listamannanna á tónlistarhátíð- inni Myrkir músíkdagar sem hófst í gær. Hann segir hátíðina rétta staðinn fyrir þá sem eru með op- inn huga þegar kemur að tónlist og vilja heyra eitthvað aðeins annað en þeir heyra venjulega. Ríkharður býður upp á verk á tónleikum í kvöld sem flutt er með hvelfingu 29 hátalara. Guðni Tómasson gudni@frettatiminn.is Tónskáldið Ríkharður Friðriks- son gleðst í hvert sinn sem Myrkir músík dagar hefjast í Hörpu, en á há- tíðinni er lögð áhersla á fjölbreytta samtímatónlist. „Jú jú, það má alveg segja að ég kætist. Á hátíðinni opn- ast eiginlega mín deild í tónlistinni. Alveg frá því að ég var í pönkhljóm- sveitum í gamla dag og gafst upp á því hefur raftónlistin verið málið. Ég spilaði í hljómsveitum í nokk- ur ár og fékk síðan alveg upp í kok, leiddist rokkið alveg svakalega. Ég grínaðist með að ég hafi gengið í klaustur þegar ég fór að læra tón- smíðar, fór sem sagt alveg á bólakaf á hina hliðina.“ Ríkharður rifjar upp þegar hann sá hljóðgervil (synthesizer) í fyrsta sinn. „Það hefur verið árið 1980 þegar einn vinur minn keypti sér svona græju. Ég hafði auðvitað heyrt í þessum tækjum á plötum en þetta var í fyrsta sinn sem ég fékk sjálfur að fikta í tökkunum. Það var strax alveg svakalega gaman. Síð- an þá hafa takkarnir fengið að vera með í minni tónlist svo langt sem það hefur náð. Ég var samt uppi á svolítið erfiðum tíma því að hlið- ræna tækinin (analog) var búin að ganga sína leið og ekki mikil fram- tíð í henni, en tölvurnar voru ekki komnar inn í þetta af neinu viti. Þetta var því dálítið snúið og ég fór í meira hljóðfæratónlistarnám en ég hefði viljað því að ég hélt í einlægni minni að ég myndi aldrei hafa efni á því tölvuafli sem ég þyrfti til að gera tónlist. Það hefur aldeilis breyst. Á þessum tíma voru kannski tvær nægilega öflugar tölvur á Íslandi í þessi verkefni og Háskóli Íslands átti aðra en Reiknistofa bankanna hina,“ segir Ríkharður. Síðan þá hefur orðið algjör bylting í notkun tövutækni við tón- listarsköpun, á öllum sviðum. Rík- harður hlær þegar hann er spurður að því hvort allt sé mögulegt í þess- um heimi í dag. „Ég veit það ekki, en ég held það sé kannski meiri þröskuldur að láta sér detta það í hug, heldur en endilega að geta framkvæmt það tæknilega. Tölv- urnar geta gert voða mikið voða hratt, svo er bara spurning hvað okkur dettur í hug að gera.“ Raftónlistarsenan á Íslandi hefur vaxið og dafnað á síðustu árum og Ríkharður á sinn þátt í því, hefur kennt fjölmörgum tónlistarmönn- um réttu handtökin. „Þetta hef- ur þróast að miklu leyti utan við „klassíska“ tónlistargeirann, sem er líklega bara fínt. Mér finnst samt kannski almennt að of margir í því boxi séu með tónlistarlega víðsýni, en þá vanti tæknibakrunninn. Í raf- tónlistinni eru hins vegar margir sem hafa einbeitt sér svo svakalega að tækninni að þeir kunna kannski ekkert of mikið í músík.“ Í kvöld kl. 20, á tónleikum í Hörpu rætist gamall draumur hjá Ríkharði. „Ég verð þarna með tón- list fyrir margvíða hátalarahvelf- ingu. Fólk kannast kannski við „sur- roundhljóm“ með fimm hátölurum. Ég verð með 29 hátalara í hring og fyrir ofan þá sem hlusta. Þannig að hljóðið fer fram og til baka í rým- inu. Svona margvíða hátalarahvelf- ingu heyrði ég fyrst í Belfast árið 2008 og hef gengið með svona verk í maganum síðan. Framkvæmd- in á þessu hefði verið gjörsamlega ómöguleg hér á Íslandi fyrir Hörpu og það er því um að gera að nota möguleikana sem opnast.“ Allar upplýsingar um Myrka músíkdaga er að finna á vefnum myrkir.is. Tölvutæknin takmarkast bara af því sem okkur dettur í hug Ríkharður Friðriksson hefur lengi verið í framvarðarsveit raftónlistarmanna hér á landi. Alveg frá því að ég var í pönkhljómsveitum í gamla dag og gafst upp á því hefur raftónlistin verið málið. Ég spilaði í hljómsveitum í nokkur ár og fékk síðan alveg upp í kok, leiddist rokkið alveg svakalega.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.