Fréttatíminn - 27.01.2017, Side 42
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Söngkonan Hildur Krist-ín Stefánsdóttir var mikið fyrir skyndibita og óhollar kökur, en ákvað að gera dramat-
ískar breytingar á mataræði sínu
í ágúst á síðasta ári. Hún hafði
reyndar ekki mikla trú á sér í
þessum efnum og það kom henni
á óvart hvernig þessi nýi lífsstíll
vatt upp á sig. Hún hefur nú opn-
að opnað bloggsíðuna hipaleo.
com þar sem hún birtir hollar og
girnilegar uppskriftir og ýmsar
vangaveltur og upplýsingar um
bæði paleo og whole30 mataræði.
En slíkt matarræði snýst um að
borða sem hreinasta fæðu. Um er
að ræða svipaða hugmyndafræði
en á whole30 mataræðinu gilda þó
aðeins strangari reglur.
Breyttur hugsunarháttur
„Mér finnst alltaf gaman að taka
áskorunum. Ég borðaði mjög mik-
ið af skyndibita og var löt við að
elda. Ég hugsaði mikið um hollan
mat og að ég ætti nú að fara að
borða hann einhvern tíma, en það
var aldrei alveg tími til þess. Svo
kynntist ég Whole30 mataræðinu
og fannst það spennandi leið til að
prófa þetta almennilega. Um leið
og maður tekur ákvörðun um að
gera eitthvað sem er bannað að
svindla á er maður líklegri til að
halda sig efnið.“
Hildur segir að þessar
breytingar hafi vissulega verið erf-
iðari í fyrstu, enda þurfti hún að
breyta hugsunarhætti sínum gagn-
vart mat. „En þetta vakti áhuga
minn á því að elda hollan og
góðan mat. Mér hefur alltaf þótt
gaman að elda, en samt meira að
baka óhollar kökur. Það leiðinlega
við að baka risastóra óholla köku
er að maður fær oft samviskubit
þegar maður borðar hana. Hins
vegar áttaði ég mig á því að ef ég
gerði hollari mat og sætindi þá
væri bæði gaman að elda og mér
liði vel þegar ég borðaði.“
Ekki heilög í mataræðinu
Eftir að Hildur kláraði mánuð á
Whole30 þá ákvað hún að halda
sig við hreint mataræði, en skipti
yfir í paleo mataræði þar sem að-
eins fleiri fæðutegundir eru leyfi-
legar.
„Heilt yfir er ég þó alls ekki
heilög hvað varðar mataræðið.
Ég get alveg verið heilög í mánuð
en til lengri tíma þá er fínt að
hafa það viðmið að elda svona
heima hjá sér en þegar maður fer í
veislu að borða það sem er í boði.
Annars verður þetta mjög erfitt til
lengdar.“
Hún ákvað svo að prófa að taka
annan whole30 mánuð í janúar,
nú með meiri þekkingu en síðast
og breiða út boðskapinn. „Það
hafði blundað í mér frá því ég
breytti mataræðinu að mig langaði
að opna blogg, því fólk í kringum
mig var svo áhugasamt. Ég hafði
tekið myndir og sett á instagram
þannig það var ekki mikið viðbót-
arvesen að henda í blogg. Það er
heldur ekki mikið um paleo upp-
skriftir á íslensku, þannig það var
þörf fyrir þetta.“
Kom sjálfri sér á óvart
Hildur fær innblástur af upp-
skriftunum víða og hefur prófað
sig áfram með ýmis hráefni. Sum-
ar uppskriftirnar á síðunni eru
alveg hennar á frá grunni á meðan
hún breytir öðrum lítillega frá
upprunalegri útgáfu.
Hún segist í raun hafa komið
sjálfri sér mikið á óvart að hafa
haldið þetta mataræði út í svona
langan tíma. Og það sem var enn
óvæntara; hana langar nú mjög
sjaldan í óhollan mat.
„Þegar ég prófaði þetta fyrst þá
bjóst ég ekki við því að klára 30
daga. Mér finnst skyndibiti svo
geðveikt góður og borðaði mjög
óhollt. Ég var ótrúlega hissa þegar
þrítugasti dagurinn rann upp.
Ég var í fyrsta lagi hissa á að mér
hefði tekist þetta og í öðru lagi að
mig langaði ekki að fara beint út
að fá mér hamborgara. Mér leið
það vel og tilhugsunin um að fá
mér eitthvað óhollt var ekkert
spennandi.“
Varð mjög slæm í húðinni
Hildur fann fljótt mikinn mun á
sjálfri sér bæði líkamlega og and-
lega þegar hún byrjaði að borða
hollari fæðu. Og þegar hún ákvað
að leyfa sér allskonar óhollustu
um jólin þá varð hún mjög slæm í
húðinni og meltingin fór úr skorð-
um. „Ég var með höndina ofan
í konfektkassanum og leið illa
í maganum öll jólin. Ég held að
ástæðan hafi verið tvíþætt. Bæði
var ég orðin meðvitaðri um hvern-
ig mér líður í tengslum við mat og
líkaminn var orðinn vanur öðru.
Eitt af því sem gerist þegar mað-
ur breytir mataræðinu þá verður
maður meðvitaðri um hvernig
maturinn hefur áhrif á líkamann.
Fólk sem hefur ekki prófað hreint
mataræði þekkir ekki muninn og
veit ekki hvernig óhollur matur
hefur áhrif á það.“
Dreymir um Eurovision
Annars er nóg að gera hjá Hildi
um þessar mundir og hún er með-
al annars að undirbúa sig fyrir
þátttöku í Söngvakeppni Sjón-
varpsins með lagið Bambaramm.
Hún semur bæði lag og texta og
flytur lagið. Hildur er sjálf mikill
aðdáandi Eurovision-keppninnar
og dreymir um að fá að standa á
stóra sviðinu. „Þessi keppni var
heilög stund þegar ég var barn.
Mér fannst þetta geðveikt og það
var fjarlægur draumur að fá að
standa á þessu sviði. Mér finnst
þessi heimur svo spennandi og
klikkaður og ég held að það sé
ólýsanleg tilfinning að vera hluti
af þessu samfélagi.“
Úr skyndibitanum
í hreint mataræði
Hildur Kristín söngkona kom sjálfri sér á óvart þegar henni tókst að
klára whole30 áskorunina í ágúst síðastliðnum. Síðan þá hefur hún að
mestu leyti verið á hreinu fæði og opnaði nýlega bloggið hipaleo.com.
Þegar ég próf-
aði þetta fyrst
þá bjóst ég ekki við
því að klára 30 daga.
Mér finnst skyndi-
biti svo geðveikt
góður og borðaði
mjög óhollt. Ég var
ótrúlega hissa þegar
þrítugasti dagurinn
rann upp.
Hildur bjóst ekki
við að sér tækist að
klára heilan mánuð af
whole30 mataræðinu.
Mynd | Hari
2 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2017 HEILSA
Útgefandi: Morgundagur ehf. Ábyrgðarmaður: Valdimar Birgisson. Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300
hollur kostur á 5 mín.
Gríms fiskibollur
hollur kostur á 5 mín.
Plokkfiskur