Fréttatíminn - 27.01.2017, Blaðsíða 46
Veislur og árshátíðir geta verið afar krefj-andi. Fólk leggur gjarnan mikið á sig til þess að líta sem best
út og jafnvel eru kaup fest á nýjum
kjól eða jakkafötum. Margt fólk
nýtir sér þjónustu alls kyns fagað-
ila fyrir stóra kvöldið; förðunar-
fræðinga, hárgreiðslufólks,
brúnkumeðferðaraðila og einka-
þjálfara. En það er ekki til neins að
líta vel út ef þú kannt ekki að haga
þér í samræmi við það.
Íslendingar eru kannski ekki
þeir allra flinkustu í mannasiðum,
það verður að segjast eins og er
að smáspjall (e. small talk) er ekki
þeirra sterkasta deild. En það er
alltaf hægt að æfa sig og þjálfast
í samskiptum og þeim óskráðu
reglum sem gilda þegar þú ferð
út á meðal fólks. Og hafðu í huga
að þessar reglur eiga sér í lagi við
þegar þú ferð á árshátíð maka eða
þvíumlíkt.
Hagaðu þér í veislunni
Ô Ef þú ert í veislu á vegum þíns
fyrirtækis eða þess háttar og
tekur maka þinn með, ekki
gleyma að kynna makann fyrir
fólki. Ef þú gleymir því er meiri
hætta á að hann verði utan-
gátta og finnist hann ekki eiga
heima þarna.
Ô Gott er að hugsa um 2-3 um-
ræðuefni á leiðinni í veisl-
una sem gott væri að tæpa á.
Stundum eru samtöl stirð-
busaleg framan af veislum og
þá er gott að geta gripið til
þægilegs umræðuefnis sem
allir geta tengt við.
Ô Ekki troðast inn í samræður
sem augljóslega eru einka-
samræður. Ef fólk talar fremur
lágum hljóðum og stendur
þétt saman er það að ræða
eitthvað sem ekki allir eiga að
taka þátt í en ef fólk stendur
með bil á milli sín og samræð-
urnar greinilega almennar, er
ekkert að því að slást í hópinn.
Ô Reyndu að „mingla“, ekki bara
við þau sem þú umgengst
mest í vinnunni. Það er alltaf
gott að „networka“ og efla
tengslin út fyrir þinn þrönga
hóp.
Ô Haltu á drykknum þínum í
vinstri hendi svo sú hægri sé
alltaf laus fyrir handabönd.
Hafðu höndina hreina og
þurra.
Ô Ávarpaðu fólk með nafni, „sæll
Haraldur - sæl Ingibjörg“, en
bara ef þú ert viss um nafnið á
viðkomandi.
Ô Áfengi getur verið besti vinur
þinn en líka versti óvinur. Það
vill enginn mæta í vinnuna á
mánudegi eftir að hafa ver-
ið fulli kallinn í vinnustaða-
partíinu.
Ô Ef veislan er í heimahúsi er
gott að koma með gestgjafa-
gjöf. Vínflösku, konfekt eða
ostakörfu, til dæmis. Ekki koma
með einhvern hlut því þú getur
ómögulega vitað smekk þess
sem býður í partíið, nema hann
sé þeim mun nákomnari þér.
Ô Ef veislan er í heimahúsi er fal-
legt að bjóða fram aðstoð við að
framreiða matinn eða ganga frá.
Ô Ef veislan er í heimahúsi er
ekki gott að vera þaulsetnasti
gesturinn. Ef það fer að fækka
mjög í veislunni skaltu fara að
huga að brottför.
Ô Ef verið er að skála, taktu þá
upp glasið og horfðu í augun á
sessunautum og þeim sem skál-
ar á meðan. Passaðu að það sé
eitthvað í glasinu þínu en ef þú
ert bara með tómt glas er betra
að lyfta því upp en að sleppa
því að skála. Glasið á ekki að
fara hærra en í augnhæð og
mundu að taka sopa þegar búið
er að skála.
6 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2017 ÁRSHÁTIÐIROGVEISLUR
Sveit í borginni
Einstök staðsetning fyrir veisluna.
Unnið í samstarfi við Nauthól.
Nauthóll við Nauthóls-vík hefur vakið verð-skuldaða athygli fyrir einstaklega vel heppn-
aðan matseðil og dásamlega
staðsetningu. Sannkölluð sveit
í borginni þar sem hægt er að
borða ljúffengan mat og njóta
nálægðar við náttúruna.
Gott aðgengi er fyrir
alla og næg bílastæði.
Auk þess að bjóða upp á fjöl-
breyttan matseðil þar sem allir
ættu að finna eitthvað við sitt
hæfi býður Nauthóll upp á al-
hliða veisluþjónustu. Hægt er að
leigja glæsilegan sal á staðnum
auk þess sem hægt er að panta
veitingaþjónustu og fá veisluna
annað hvort heim eða í sal út í
bæ.
Salurinn á Nauthóli hentar
fyrir hvers konar mannfögnuði;
árshátíðir, fundi, fermingarveisl-
ur, brúðkaup, afmæli eða ráð-
stefnur. Hægt að taka við allt frá
20 upp í um 120 manns. Salur-
inn er bjartur og skemmtilegur
og heldur vel utan um hópinn.
Útsýnið er einstakt og salurinn
hefur raunar algera sérstöðu
hvað varðar umhverfið allt.
Boðið er upp á pinnaveislur
eða hlaðborð eða 2-3 rétta mál-
tíðir sem fólk velur eftir smekk.
Lögð er áhersla á fjölbreytt og
vandað hráefni og allur matur er
lagaður frá grunni. Umhverfis-
vernd og sjálfbærni er ofarlega
á blaði og reynt er að kaupa allt
sem hægt er beint frá býli.
Allar upplýsingar og tillögur
að matseðli eru aðgengilegar á
nautholl.is.
AFMÆLI
BRÚÐKAUP
FERMINGAR
ERFIDRYKKJUR
FUNDIR
RÁÐSTEFNUR
Smiðjuvegur 1 - 200 Kópavogur - S: 5806720 - gala@gala.is