Fréttatíminn - 11.03.2017, Side 2

Fréttatíminn - 11.03.2017, Side 2
2 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 11. MARS 2017 Allar tölur á verðlagi desember 2016 20% afsláttur af öllum vörum til 17. júní Túnika kr. 3000 Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Mikið úrval skart, skór, túnikur, gallabuxur og yfirhafnir MIKIÐ ÚRVAL AF SKARTI TUNIKA KR 3.900 OPIÐ TIL 16:00 Í DAG TUNIKA KR 3.900 TUNIKA KR 3.900 SKÓR KR 9.900 TASKA KR 5.900 20% afsláttur af öllum vörum til 17. jú í Túnika kr. 3000 Bláu húsi axafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum up n r vörur da lega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háa í mittinu r. 5500. Tökum u p nýj r vörur daglega 280cm 98cm Húseigendur éta upp kaupmátt leigjenda Mannshvarf Artur Jarmosz ko, 26 ára, virðist hafa horfið sporlaust en enginn hefur séð hann frá 1. mars. Fjölskylda hans óttast um hann og hafði samband við lögreglu á miðvikudag. „Ég óttast að honum hafi verið gert eitthvað,“ segir Róbert, yngri bróðir hans. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Ekki er vitað um ferðir Art urs síð- an rétt fyr ir miðnætti 1. mars síðast- liðins en þá var hann staddur í mið- borginni. Hann er búsettur á Íslandi ásamt tveimur bræðrum sínum en foreldrar hans búa í Póllandi. Artur bjó í Breiðholti ásamt vinnu- félaga sínum og vann á veitinga- staðnum Saffran í Glæsibæ. Hann hætti skyndilega störfum fyrir mánuði, síma hans var lokað fyrir skemmstu og hann hefur ekki farið inn á Facebook-síðuna sína um hríð, þá hefur öllum myndum af síðunni verið eytt. „Þegar ég fór heim til hans til að leita að honum tók her- bergisfélagi hans á móti mér. Mér fannst mjög óþægilegt að hann var í fötum bróður míns,“ segir hann. „Ég var ennfremur mjög reiður að hann hefði ekki látið vita að bróðir minn hefði ekki sést frá því um mánaða- mótin. Hver lætur ekki vita ef besti vinur hans hverfur skyndilega? Ég tók fartölvu bróður míns og síma- númerabókina hans en hann hafði ekki tekið þetta frekar en fötin sín. Eina sem ég fann ekki var vegabréfið hans og debetkortið.“ Hann segist ekki óttast að bróðir sinn hafi framið sjálfsmorð. „Hann hefði ekki gert neitt slíkt án þess að skilja eftir bréf eða einhverja kveðju. Ég óttast frekar að hann hafi verið myrtur en mér er illa við að segja það upphátt.“ „Hann er hreinlega horfinn af yf- irborði jarðar,“ segir Szymon Karol Landowski, sem er giftur frænku Arturs. Hann segir að fjölskyldan hafi heyrt eftir á að hann hafi verið í vondum félagsskap, drykki mikið og notaði fíkniefni. En þau hafi ekki haft neina vitneskju um það sjálf. Óttast að honum hafi verið gert mein Artur er 186 sm hár og með græn augu og stutt dökkt hár. Hann er tal inn vera klædd ur í svarta úlpu eða mittisjakka, blá ar galla bux ur og hvíta striga skó. Þeir sem hafa orðið hans varir eru beðnir um að hafa samband við lögreglu.Stundum finnst manni tíma Alþingis varið í óttaleg smá-mál sem gera þingmennina stóra í augum einhverra kverúlanta úti í bæ sem í staðinn hafa látið sig hafa það að sleikja frí- merki á kosningapóstinn. Hvern- ig geta margir þingmenn talað kafrjóðir í framan af æsingi og af sjaldgæfum eldmóði um hvort það eigi að selja áfengi í búðum og ef ekki, þvílík frelsisskerðing það sé? Það er ekki verið að elta ólar við raunverulega þræla sem eru látnir halla sér eftir 18 tíma vinnu- dag í aflóga verksmiðjum eða heilsuspillandi iðnaðarhúsnæði. Og það er ekki verið að ræða frels- isskerðingu þeirra barna sem eru á götunni ásamt foreldrum sínum af því ekkert húsnæði stendur til boða, eða sjúklinga sem sofa í kaffistofum eða bílageymslum Landspítalans, af því ekki var rúm fyrir þá „í gistiheimilinu.“ En við fáum þá stjórnmálamenn sem við eigum skilið. Þjóðin sem kaus yfir sig þing- mennina virðist líka hugsa smátt. Ef það örlar á kaldlyndi eða fálæti í stóru samfélagslegu óréttlæti, hleypa önnur mál af stað stríði, þar sem margir liggja sárir eftir. Þannig var þegar nokkrar manneskjur sem töldu sig jaðar- settar stofnuðu félagið, Truflandi tilvist. Félagið vakti enga athygli heldur spunnust fjörlegar um- ræður um hvort þulurinn á Stöð 2 væri hugsanlega jaðarsettur. Skömmu seinna var hann kallaður epalhommi á Facebook og þá var fjandinn laus. Öll lyklaborð lands- ins iðuðu af lífi, kjálkarnir gengu nýsmurðir í öllum kjaftaþáttum. Epalkommar vígbjuggust gegn epalhommum og létu skína í víg- tennurnar. Síðan gátu báðar fylk- ingar fallist hlæjandi í faðma yfir fallegum hommum í velheppnaðri og krúttlegri auglýsingu frá Epal. Félagið Truflandi tilvist féll hins- vegar í gleymskunnar dá eða var jaðarsett í kyrrþey, eins og ein- hver orðaði það. Einhvernveginn held ég samt ekki að við spyrjum hvert annað eftir 20 ár: Hvar varst þú þegar Sindri Sindrason var kallaður epalhommi. Þóra Kristín SMJÖRKLÍPU- ÞJÓÐIN Gunnar Smári Egilsson gunnarsmari@frettatiminn.is Húsnæðismál Ef við tökum þrjú ímynduð dæmi af einstæðu for- eldri sem er í dag með 400 þúsund krónur í mánaðartekjur og býr í 55 fermetra, tveggja herbergja, íbúð í vesturhluta Reykjavíkur þá hafa ráðstöfunartekjur heimilisins, eftir skatta og húsaleigu, dregist saman um tíu þúsund krónur á mánuði þótt launatekjurnar hafi hækkað um heilar 77 þúsund krónur síðustu fjögur árin. Ríkið tekur mikið Ef við gerum ráð fyrir að efnahag- ur þessarar fjölskyldu, foreldri með eitt barn undir sjö ára aldrei, hafi sveiflast eins og íslenska hagkerf- ið að meðaltali frá 2012 hafa laun- in hækkað um 77 þúsund krón- ur. Tekjuskattur og launatengdar greiðslur hafa hækkað á sama tíma um 27 þúsund krónur, bæði vegna þess að persónuafsláttur hefur hvorki fylgt verðlagi né launaþró- un og vægi afsláttarins því minnk- að með hærri launum. Til viðbótar hafa barnabæt- ur líka lækkað, sé miðað við fast verðlag, um 4 þúsund krónur. Rík- ið hefur því tekið til sín 31 þúsund krónur af þeim 77 þúsund krónum sem tekjur fjölskyldunnar hækk- uðu. Húseigandinn tekur mest Eftir skatt fær fjölskyldan í dag 46 þúsund krónum meira útborgað en fyrir fjórum árum. Húsaleigan hef- ur hins vegar hækkað um meira en það, eða um 49 þúsund krónur, sé miðað við meðalverð íbúðarleigu á 55 fermetra tveggja herbergja íbúð í vesturhluta Reykjavíkur. Þessi fjölskylda hefur því horft upp á að ríkissjóður og íbúðareigandinn éta upp alla kaupmáttaraukningu umliðinna ára, tímabils sem kallað hefur verið mesta kjarabótatímabil sögunnar. Þessu til viðbótar þá hafa húsaleigubætur lækkað. Í desem- ber 2012 hefði þessi fjölskylda feng- ið 28 þúsund krónur í húsaleigu- bætur á núvirði, en fær í dag aðeins 21 þúsund krónur. Niður- staða þessara fjögurra ára er því 10 þúsund krónur minni ráðstöf- unartekjur en í árslok 2012. Kjarabætur hafa farið fram hjá þessari fjölskyldu. Hún skilur ekk- ert hvað ráðamenn eru að tala um þegar þeir vísa látlaust í bættan hag allra landsmanna. Sama sagan Niðurstaðan er svipuð ef við skoð- um einstakling í smærri íbúð með eilítið lægri tekjur eða einstætt foreldri með meiri tekjur í stærri íbúð. Ráðstöfunartekjur einstak- lingsins hefur lækkað um 15 þús- und krónur en foreldrið með börn- in tvö hefur í dag um þrjú þúsund krónum meira til ráðstöfunar. Og á ábyggilega jafn erfitt og hinir með að skilja allt þetta tal um bættan hag. Samhliða lágri verðbólgu og nokkrum launahækkunum hafa bætur úr skattkerfinu verið lækk- aðar og persónuafslætti haldið niðri. Þetta leiðir til þess að kjara- bæturnar verða minni því lægri sem laun fólks eru. Skattalækkan- ir hafa verið eilitlar, en aðeins á hærri laun. Í þessu umhverfi hefur gríðarleg hækkun húsaleigu virk- að eins og efnahagslegar hamfar- ir, komið mörgum fjölskyldum á vonarvöl. Eins og sést af þessum dæmum eru þær hamfarir ekki aðeins afleiðing ráðaleysis stjórn- valda til að höndla húsnæðismark- aðinn heldur allt eins breytingar á skattkerfinu, sem hefur þrengt að hinum tekjulægri barnafjölskyld- um og sérstaklega leigjendum. Desember 2012: Tekjur: 282 þús. kr Frádráttur: 62 þús. kr. Útborgað: 220 þús. kr. Húsaleiga: 77 þús. kr. Húsaleigubætur: 16 þús. kr. Ráðstöfunartekjur: 166 þús. kr. Desember 2016: Tekjur: 350 þús. kr +68 þús. kr. Frádráttur: 77 þús. kr. -15 þús. kr. Útborgað: 263 þús. kr. +43 þús. kr. Húsaleiga: 123 þús. kr. -46 þús. Húsaleigubætur: 11 þús. kr. -15 þús. Ráðstöfunartekjur: 151 þús. kr. -15 þús. kr Einstaklingur í 35 fermetra stúdíóíbúð Desember 2012: Tekjur: 323 þús. kr Frádráttur: 80 þús. kr. Barnabætur: 29 þús. kr. Útborgað: 272 þús. kr. Húsaleiga: 110 þús. kr. Húsaleigubætur: 28 þús. kr. Ráðstöfunartekjur: 180 þús. kr. Desember 2016: Tekjur: 400 þús. kr +77 þús. kr. Frádráttur: 107 þús. kr. -27 þús. kr. Barnabætur: 25 þús. kr. -4 þús. kr. Útborgað: 318 þús. kr. +46 þús. kr. Húsaleiga: 159 þús. kr. +49 þús. kr. Húsaleigubætur: 21 þús. kr. Ráðstöfunartekjur: 170 þús. kr. -10 þús. kr. Einstætt foreldri eins barns í 55 fermetra tveggja herbergja íbúð Launafólk á leigumarkaði hefur ekki notið neinnar kaupmáttaraukningar á umliðnum árum, tímabili sem sagt hefur verið tímabil fordæmalausra kjarabóta. Að hluta til hefur hærra skatthlutfall og lækkaðar bætur út úr skattkerfinu dregið úr kjarabótunum en mest munar um hækkun húsaleigu, sem hefur verið langt umfram verðlag og launaþróun. Í Fréttatímanum í gær lýsti Jóhann Már Sigurbjörnsson, fyrrum formað- ur leigjendasamtakanna, áralangri baráttu sinni við að fá stjórnvöld til að bregðast við bráðum vanda á húsnæð- ismarkaði. Mynd | Hari Desember 2012: Tekjur: 363 þús. kr Frádráttur: 97 þús. kr. Barnabætur: 51 þús. kr. Útborgað: 317 þús. kr. Húsaleiga: 157 þús. kr. Húsaleigubætur: 34 þús. kr. Ráðstöfunartekjur: 194 þús. kr. Desember 2016: Tekjur: 450 þús. kr +87 þús. kr. Frádráttur: 128 þús. kr. -31 þús. kr. Barnabætur: 47 þús. kr. -4 þús. kr. Útborgað: 369 þús. kr. +52 þús. kr. Húsaleiga: 197 þús. kr. +40 þús. kr. Húsaleigubætur: 25 þús. kr. Ráðstöfunartekjur: 197 þús. kr. +3 þús. kr. Einstætt foreldri tveggja barna í 75 fermetra þriggja herbergja íbúð

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.